Staðarfell

Staðarfell Contact information, map and directions, contact form, opening hours, services, ratings, photos, videos and announcements from Staðarfell, Real Estate, Staðarfell á Fellsströnd, Búðardalur.

ÞEGAR HJARTAÐ RÆÐUR FÖR Það var sterkt innsæi og hjartans köllun sem leiddi okkur Baldur vestur að Staðarfelli á Fellsst...
23/12/2025

ÞEGAR HJARTAÐ RÆÐUR FÖR

Það var sterkt innsæi og hjartans köllun sem leiddi okkur Baldur vestur að Staðarfelli á Fellsströnd. Okkur var fagnandi tekið af fólki í sveitinni - af ótæmandi Kærleika, hjálpsemi, greiðvikni, samstöðu og glaðværð.

Á Valþúfu, þar næsta bæ við til austurs, höfum við tengst einstökum vináttuböndum við Sæþór og Rúnu sem vinna sem einn maður órofa allan daginn alla daga við býli og börn, en það er tilvera sem við hjónin þekkjum vel – vinna 24/7/365. Á Valþúfu var Styrmir Snær 15 ára vinnumaður sl sumar, tók á móti 150 lömbum og smiðssonurinn gekk í öll umbeðin verk alsæll og jafnlyndur. Þar á Snæfríður Ísold 11 ára lamb sem heitir Myrka og sefur alla jafna þegar í sveitina er komið og leikur sér með öðrum heimalingum, hvort sem um börn eða lömb er að ræða.

Jólagjöfin mín í ár er fullvissan um að sama blóð rennur í æðum mér sem Rúna Blöndal - enda segir Styrmir Snær "þú hljómar alveg eins og Rúna!" - enda þykjum við fallegar, gáfaðar og geðprúðar með eindæmum – duglega til verka og þjáumst af ólæknandi Sígleði. Vont ástand og versnar hratt - bráðsmitandi í þokkabót…

Ormur Sigurðsson bjó á Fremri-Langey í Hvammsfirði og það er sonarsonarsonur hans, langalangafi okkar Rúnu, Þórhalli Þórhallason, sem flytur á mölina úr Dölunum vegna verkaskorts en síðan eru það við stúlkurnar sem rötum til baka… …það eru engar tilviljanir kæru vinir...

Ljósið býr að Staðarfelli. Sólin rís í austri, glitrar náttúrunnar glimmeri allan liðlangan daginn í óteljandi litum þar til hún sest út við eyjar í vestri. Það áttar vel að Staðarfelli með Háfell sér að baki sem jarðtengdan máttarstólpa. Yfir sveimar svo konungur lofts, láðs og lagar sem á sér hreiður í Húshólma – Haförninn.

Staðarfell ber með sér tækifærið til endurfæðingar. Að opna hjartað, tengjast sjálfri/um sér, stunda líf Þrenningar og helga sig Efni, Anda og Almættinu, finna Frið og Kærleika streyma og leyfa þannig hinu Eilífa, Óendanlega Alheims Ljósi flæða frá hjarta til samfélags.

Megi Ljósið og landsins Vættir vernda og vakta okkar leið með Kærleika, Náð, Gleði, Von og Þakklæti. Verið aufúsugestir að Staðarfelli á komandi sumri á viðburðaröðinni Fjársjóðir Fellsstrandar, en við munum meðal annars heiðra minningu Húsmæðraskólans sem og efla hug og hönd í Sköpunargleði.

Meðfylgjandi er staðfesting þess að Almættinu líður vel ágætlega á venjulegum dögum að Staðarfelli á Fellsströnd.

Hugheilar hátíðar og nýárskveðjur frá Staðarfelli - þar sem Ljósið býr.

STAÐURINN DREGUR FRAM ÞAÐ BESTA Í FÓLKI…heyrðist frá gesti á Staðarfelli á Fellsströnd… ekki hægt að andmæla þeirri uppl...
25/08/2025

STAÐURINN DREGUR FRAM ÞAÐ BESTA Í FÓLKI

…heyrðist frá gesti á Staðarfelli á Fellsströnd… ekki hægt að andmæla þeirri upplifun...

Hvílík himnasæla að draga fána að húni í morgunsárið og kíkja á hitamælinn kl 10:00, nudda augun og trúa vart sínum eigin augum;16°C. Fáninn blakti ljúflega alveg fram undir kaffileytið en þá lagðist hann utan í fánastöngina þar til vinnudegi lauk.

Sveitin hefur sitt eigið tímaskyn – í takt við umhverfið. Klukkan 12 þýðir frá klukkan 11:40 til 12:20. Það gæti þurft að stöðva og taka myndir af óviðjafnanlegu útsýni, eða hægja ferðina vegna vegavinnu, eða hlaða bílinn á leiðinni. Fólk mætir þegar það mætir. En í kringum hádegið hófst hugvekja í Staðarfellskirkju sem Ástvaldur Traustason zenki, Búddaprestur og organisti í Bessastaðakirkju leiddi. Kirkjugestir fengu frið og kyrrð í hjarta, nutu ljúfra harmonikkutóna og brustu í samsöng.

Því næst var haldið inn í félagsheimilið á Fellsströnd þar sem Hrefna Guðmundsdóttir fékk gesti til að framkvæma teygjur og léttar jógaæfingar áður en hún hélt stutt erindi um mátt hugans – hvers við erum í raun megnug og skapandi. Á meðan mallaði kaffivélin og fyrr en varir var gestum boðið að gæða sér á krásum úr héraði framreiddum á sparistellinu – hrært skyr frá Erpsstöðum með ferskum berjum úr Flekkudal og rjómablandi með, hjónabandssælu frá Dúu frænku, brakandi fersku grænmeti frá Ásgarði, ostum frá Erpsstöðum og auðvitað MS Dalaostum… svo fátt eitt sé nefnt… borðskreytingar voru hauststrá í litlum blómavösum…Inga stofnandi og eigandi Urðar ullarvinnslu kynnti vörur sínar og seldi þeim dokkur sem vildu prófa – endilega kíkið á vefverslun www.urdurull.is… og látið boðin berast á rétta staði. Frá Urði kemur mjúkt gæðagarn, bæði ær og lambsull.

Gestabókin tók við áritun gesta og þeir hvattir til að styrkja Staðarfellskirkju – sem þarfnast endurbóta og við gerum okkar allra besta til að aðstoða við þær. Reikningsnúmer kirkjunnar er 312-03-5878 kt 610269-0369 ef þið eruð aflögufær og áhugasöm um að styðja við það verkefni. Allir fóru sáttir, sælir og saddir til baka og bros í augum „en hvað þetta var ljómandi gaman“.

Alveg týpískt fyrir Dalina að þegar keyrt var inn í Miðdali um morguninn opnuðust himnarnir og ljósið streymdi um tún og fjöll. Þegar keyrt var til baka eftir annasaman dag byrjaði að rigna við Bröttubrekku – svona rétt til að skola ferðarykið af bílnum og þakka fyrir komuna.

Nú hefst haustrútínan - skóli, réttir, uppskera, berjamó og sultugerð. Við skulum njótum dýrmætra daga og huga vel að okkur sjálfum, fólkinu okkar og umhverfi.

Kveðjur frá Staðarfelli
– þar sem Ljósið býr og þar sem okkar bestu eiginleikar fá að njóta sín

VALKVÍÐI NÆSTKOMANDI HELGARÞetta er heimagert hreinræktað lúxusvandamál.Spáin er 20°C í Sveitarfélagið Dalabyggð fyrir k...
20/08/2025

VALKVÍÐI NÆSTKOMANDI HELGAR

Þetta er heimagert hreinræktað lúxusvandamál.

Spáin er 20°C í Sveitarfélagið Dalabyggð fyrir komandi helgi og frábærir viðburðir í gangi þar sem hægt er að næra líkama, anda og sál. Tengjast landinu okkar, fólkinu og okkur sjálfum.

Á Staðarfelli verðum við með viðburðinn Sköpunarkraftur sveitarinnar https://fb.me/e/6DxHlZNHl á sunnudaginn kl 12 að tengjast og nærast á náttúru, útsýni, dýralífi, berjamó og borða mat úr Dölunum. Lái okkur hver sem vill.
Með okkur verða Ástvaldur Traustason, Urður Ull, Rúna Blöndal, Hrefna Guðmundsdóttir og fleiri frábærir einstaklingar að nýta daginn til góðra hugsana, orða og verka. Ókeypis aðgangur, léttar veitingar og allir fara sáttir, sælir og endurnærðir til baka.

Í sveitinni stöndum við saman og vitum að í samvinnu og samstöðu vinnum við að hagsmunum heildarinnar. Það er því rétt að auka á valkvíðann og benda á aðra frábæra viðburði á sama tíma í grenndinni:

Á Nýp er málþing um Magnús Ketilsson, nýsköpun og upplýsingu á 18. öld. Þann 24. ágúst kl. 14:00 til 16:00.
https://fb.me/e/2OFYUkmNE

Beint frá býli dagurinn á Vesturlandi verður að þessu sinni haldinn á Erpsstöðum þann 24. ágúst. kl. 13.00-16.00
https://fb.me/e/3lRLnBJoP

Laugardaginn 23. ágúst kl. 12.00-17.00 er prjónakaffi í fjósinu á Stóra Múla og auðvelt að taka alla helgina í Dölunum ef út í það er farið... 😎🥰😇

Nú ef einhver vill ekki fara til baka eftir helgina þá tekur sveitarstjórn nýjum íbúum fagnandi - það er verið að byggja meira í Búðardal, ný íþróttaaðstaða að rísa og tækifæri til að stútfylla grunnskólann eins og annars staðar á landinu.

SKÖPUNARKRAFTUR SVEITARINNARVerið velkomin í sköpunarkraft sveitarinnar á Staðarfell á Fellsströnd nk sunnudag 24. ágúst...
16/08/2025

SKÖPUNARKRAFTUR SVEITARINNAR

Verið velkomin í sköpunarkraft sveitarinnar á Staðarfell á Fellsströnd nk sunnudag 24. ágúst kl 12. Við munum næra líkama, anda og sál með samveru, fræðslu og góðum veitingum úr Dalabyggð.

Á dagskrá eru m.a. Urður ullarvinnsla sem mun kynna vörur sínar, Rúna á Valþúfu sýnir okkur einstakar ullargærur og Hrefna Guðmundsdóttir leiðir okkur í gegnum mátt hugans. En mögulega er ekki allt upp talið og okkur langar að halda óvæntum liðum leyndum fram að sunnudegi. Látið ykkur hlakka til... 🥰

Nú er lag! Þið skellið ykkur í dagsferð með ykkar hjartans vinum / vandamönnum og stingið beint í samband við núvitund, náttúru og nýjar hugmyndir. Öll fara sátt, sæl og endurnærð til baka.

Óþarfi að segja að Fellsströnd skartar sínu fegursta. Sjón er sögu ríkari. Sjáumst næstu helgi.

ps. þið kunnið þetta - læka, deila og tala um eins og vindurinn... einnig hægt að gera það með FB viðburðinn

https://www.facebook.com/urdurull
https://www.facebook.com/jensandhrefna

Fyrir frekari afþreyingu á svæðinu: https://www.west.is/en/destinations/towns-regions/visit-dalir

HVAÐ ER JÖRVAGLEÐI?Við mælum eindregið með ferð vestur í Dali og taka þátt í Jörvagleði 2025, sjá meðfylgjandi dagskrá. ...
23/04/2025

HVAÐ ER JÖRVAGLEÐI?

Við mælum eindregið með ferð vestur í Dali og taka þátt í Jörvagleði 2025, sjá meðfylgjandi dagskrá. Þið verðið ekki svikin af náttúru, mat og samveru. 🦋

En hvaðan kemur Jörvagleði? Jörfi (eða Jörvi) er bær í Haukadal í Dalasýslu. Bærinn er þekktur fyrir veislur eða „gleðskap“ sem voru haldnar þar amk frá 17. öld og fram á 18. öld. Jörvagleði var haldin á krossmessu á hausti (14. september) og svipaði til töðugjalda, því heyskap var lokið og kaupafólk var farið að huga að vistaskiptum. Á Jörvagleði voru dansaðir vikivakar og stundaðir ýmsir leikir.
Önnur sambærileg samkoma var Staðarfellsgleði, sem haldin var á Staðarfelli í Dölum um nýár (þurfum að endurvekja það...).

Þessar samkomur voru þyrnir í augum yfirvalda, enda fór miklum sögum af lauslæti og gjálfífi á þeim. Björn Jónsson sýslumaður á Staðarfelli afskipaði Staðarfellsgleði 1695. Hann bannaði reyndar Jörfagleði líka en hún virðist þó hafa haldið áfram fram yfir aldamót en þegar Jón Magnússon, bróðir Árna handritasafnara, varð sýslumaður Dalamanna 1708 bannaði hann gleðina og bar fyrir sig, auk lausungarinnar, Stórubólu sem þá gekk enn um landið. Gleðin var ekki endurvakin en orðið jörfagleði hefur síðan verið haft um ýmiss konar óheftar skemmtanir.

Hamingjuóskir til nágranna okkar í Rauðbarðaholti í Hvammssveit með splunkunýja ullarvinnslu ull - megi gæfan elta ykkur á röndum.

Skilaboð fyrir komandi helgi: et, drekk og ver glaðr!

DAGSKRÁ Jörvagleði, lista- og menningarhátíð Dalamanna verður haldin dagana 23.-27. apríl 2025. Hér má kynna sér dagskrá hennar: MIÐVIKUDAGURINN 23. APRÍL – Síðasti vetrardagur 10:00 – 17:00 – Opið á Eiríksstöðum í HaukadalHægt að skoða svæðið eða kaupa leiðsögn ...

NÝÁRSKVEÐJA FRÁ STAÐARFELLIHvað boðar nýjárs blessuð sól?Hún boðar náttúrunnar jól,hún flytur líf og líknarráð,hún ljóma...
02/01/2025

NÝÁRSKVEÐJA FRÁ STAÐARFELLI

Hvað boðar nýjárs blessuð sól?
Hún boðar náttúrunnar jól,
hún flytur líf og líknarráð,
hún ljómar heit af Drottins náð.

Sem Guðs son forðum gekk um kring,
hún gengur ársins fagra hring,
og leggur smyrsl á lífsins sár
og læknar mein og þerrar tár.

Ó, sjá þú Drottins björtu braut,
þú barn, sem kvíðir vetrar þraut,
í sannleik: hvar sem sólin skín,
er sjálfur Guð að leita þín.

Því hræðst þú ei, þótt hér sé kalt,
og heimsins yndi stutt og valt,
og allt þitt ráð sem hverfult hjól,
í hendi Guðs er jörð og sól.

Hann heyrir stormsins hörpuslátt,
hann heyrir barnsins andardrátt,
hann heyrir sínum himni frá
hvert hjartaslag þitt jörðu á.

Í hendi Guðs er hver ein tíð,
í hendi Guðs er allt vort stríð,
hið minnsta happ, hið mesta fár,
hið mikla djúp, hið litla tár.

Í almáttugri hendi hans
er hagur þessa kalda lands,
vor vagga, braut, vor byggð og gröf,
þótt búum við hin yztu höf.

Vor sól og dagur, herra hár,
sé heilög ásján þín í ár.
Ó, Drottinn, heyr vort hjartans mál,
í hendi þér er líf og sál.

Matthías Jochumsson

Myndin er tekin á nýársdagsmorgun 2025.
Megi nýtt ár færa okkur öllum farsæld og frið.

HUGHEILAR HÁTÍÐARKVEÐJUR FRÁ STAÐARFELLIMegi friður og heilagt ljós fylla hjörtu okkar yfir hátíðarnar. Hugsun, tal og h...
23/12/2024

HUGHEILAR HÁTÍÐARKVEÐJUR FRÁ STAÐARFELLI

Megi friður og heilagt ljós fylla hjörtu okkar yfir hátíðarnar. Hugsun, tal og hegðun eru hlaðin mildi og kærleika. Þakklæti færum við fyrir liðnar samverustundir og blessum minningu látinna ástvina - í hjarta hvílir ró litla barnsins í jötunni sem boðar líkn, náð og frið.

Almættið færi okkur öllum gleðileg jól, farsæld og frið á komandi ári.

TUNGLIÐ TUNGLIÐ TAKTU MIG…berðu mig upp til skýja…Við vekjum góðfúslega athygli á þriðja ofurtungli ársins á morgun 17. ...
16/10/2024

TUNGLIÐ TUNGLIÐ TAKTU MIG

…berðu mig upp til skýja…

Við vekjum góðfúslega athygli á þriðja ofurtungli ársins á morgun 17. október. Ef hegðun og atlæti breytist er lítið við því að gera, þá er líklega um tunglsýki (e. lunatic) að ræða. Tunglið mun virðast fullt í nokkra daga og það er um að gera að njóta þess ef veður leyfir.

Kjöraðstæður eru því til þess að ganga til nytja á fjörur þessa vikuna. Fara í fjörumó.

Theodóra Thoroddsen orti um tunglið eftirminnilega en Theodóra er frá Kvennabrekku sem er í Dalabyggð. Theodóru og manni hennar Skúla Thoroddsen var 13 barna auðið, en 12 náðu fullorðinsaldri. Theodóra var afkastamikil skáldkona og rithöfundur þó hún hafi ekki sinnt ritstörfum fyrr en eftir miðjan aldur, en hún lést rúmlega níræð.

Hér er önnur mektarkona, Diddú, sem flytur okkur lagið sem byrjaði eflaust að óma um leið og við lásum fyrstu línur þessa innslags https://www.youtube.com/watch?v=FoRy4YwECbQ

Address

Staðarfell á Fellsströnd
Búðardalur
371

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Staðarfell posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to Staðarfell:

Share

Category