Krafla Lóðaframkvæmdir

Krafla Lóðaframkvæmdir Við hjá Kröflu Ehf. höfum margra ára reynslu í lóðaframkvæmdum og þeim verkefnum sem tengjast þeim, stórum sem smáum.

Krafla ehf fékk það staðfest á dögunum að við munum taka þátt í spennandi verkefni í Elliðaárdalnum, í hjarta borgarinna...
13/03/2026

Krafla ehf fékk það staðfest á dögunum að við munum taka þátt í spennandi verkefni í Elliðaárdalnum, í hjarta borgarinnar.
Svæðið er eitt vinsælasta útivistarsvæði borgarbúa og gegnir mikilvægu hlutverki fyrir gangandi og hjólandi.

Verkið felst í gerð þriggja göngu- og hjólabrúa yfir Elliðaár, þar sem áður var steyptur stokkur með stofnlögnum hitaveitu. Í framkvæmdinni felst einnig viðgerð á undirstöðum stokksins sem verða nýttar sem brúarstöplar.

Jafnframt verður gerður nýr göngu- og hjólastígur sem tengist núverandi stígum beggja vegna árinnar, ásamt áningar og dvalarsvæði fyrir gangandi og hjólandi.

Krafla ehf mun annast sögun á núverandi stöplum, malbikun á nýjum göngubrúm og almennan lóðafrágang í kringum framkvæmdasvæðið, ásamt uppbyggingu nýs dvalarsvæðis og hraungrjóthleðslu.

Við erum tæknilega sterk í hönnun einkagarða og framkvæmd stórra og flókinna lóða. Hafðu samband – við leysum málið!
30/01/2026

Við erum tæknilega sterk í hönnun einkagarða og framkvæmd stórra og flókinna lóða.
Hafðu samband – við leysum málið!

Hér koma nokkrar myndir frá bæði E7 og Brekknaási, þar sem Krafla ehf. vinnur að gerð göngustíga, malbikun og hellulögn ...
06/01/2026

Hér koma nokkrar myndir frá bæði E7 og Brekknaási, þar sem Krafla ehf. vinnur að gerð göngustíga, malbikun og hellulögn ásamt grjóthleðslu.
Nýju göngustígarnir eru steyptir bæði umhverfis og innan hverfanna. Við Brekknaás verða jafnframt reist tvö ný strætóskýli við spennustöðina.
Á E7 er verið að ganga frá lóð á bílastæðaplötu. Á lóðinni má meðal annars finna stálstalla og stálgróðurbeð úr cortenstáli.

Hjúkrunarheimilið á BoðaþingiKrafla sá um frágang lóðar við nýja hjúkrunarheimilið á Boðaþingi. Verkefnið er BREEAM-vott...
06/01/2026

Hjúkrunarheimilið á Boðaþingi
Krafla sá um frágang lóðar við nýja hjúkrunarheimilið á Boðaþingi. Verkefnið er BREEAM-vottað og við uppbyggingu lóðarinnar voru eingöngu notuð vottað efni.
Á lóðinni má finna blágrænar ofanvatnslausnir sem stuðla að sjálfbærri og umhverfisvænni hönnun. Allur frágangur á lóðinni fór fram á tímabilinu frá maí til september 2025.
Unnið var við krefjandi aðstæður og langar vinnuvikur, en niðurstaðan heppnaðist afar vel. Við óskum eigendum og rekstraraðilum hjúkrunarheimilisins innilega til hamingju með glæsilega lóð.

Á árinu hafði garðeigandi samband við okkur vegna þess að garðurinn var orðinn alsettur illgresi og óæskilegum trjágróðr...
06/01/2026

Á árinu hafði garðeigandi samband við okkur vegna þess að garðurinn var orðinn alsettur illgresi og óæskilegum trjágróðri. Þar sem hann dvaldi mikið erlendis yfir sumartímann og hafði takmarkaðan tíma til umhirðu garðsins var honum ráðlagt að fara einföldustu leiðina.
Allur eldri gróður var hreinsaður burt og lagt var nýtt torf, þannig að börnin gætu nýtt garðinn yfir sumartímann til boltaleiks og útiveru. Til að lágmarka viðhald var jafnframt gert ráð fyrir að róbót-sláttuvél sæi um grassláttinn.

Allur gróður sem er gróðursettur krefst þekkingar á þeim tegundum sem unnið er með. Aðstæður skipta einnig miklu máli. Ekki er ráðlegt að fá hvern sem er í slík verk – fáðu fagmann.
Hjá okkur starfa skrúðgarðyrkjufræðingar sem stefna á sveinspróf síðar á árinu. Veldu rétt.

Haustið 2025 fengum við símtal frá bæjaryfirvöldum vegna þess að gatan var farin að síga og miklir vatnspollar mynduðust...
06/01/2026

Haustið 2025 fengum við símtal frá bæjaryfirvöldum vegna þess að gatan var farin að síga og miklir vatnspollar mynduðust. Þau óskuðu eftir því að við kæmum á staðinn, skoðuðum aðstæður og tækjum að okkur viðgerðir á götunni.
Verkið tók alls s*x daga í framkvæmd. Um 300 m³ af jarðvegi var jarðvegsskipt, ný sandföng sett sitt hvoru megin við götuna til að koma í veg fyrir vatnssöfnun og nýjar frárennslislagnir lagðar. Jafnframt tókum við að okkur endurgerð innkeyrslunnar inn í götuna.
Að lokum var gatan malbikuð og mótuð samkvæmt okkar mælingum. Að framkvæmd lokinni myndast ekki lengur vatnspollar í götunni.
Að lokum var 80 m² plan hellulagt. Notað var efni af gerðinni þriggja steina grár óðalssteinn ótromlaður

Við hjá Kröflu kláruðum þessa lóð í desember 2025.Þetta er mjög fallegur og vel heppnaður innigarður í miðsvæði Reykjaví...
06/01/2026

Við hjá Kröflu kláruðum þessa lóð í desember 2025.
Þetta er mjög fallegur og vel heppnaður innigarður í miðsvæði Reykjavíkur. Á lóðinni má finna ýmsar tegundir gróðurs sem eiga eftir að vaxa og þroskast vel. Þar er einnig pergóla sem var sérpöntuð og smíðuð úr eik, og sáum við um uppsetningu hennar.
Nú er Krafla ehf. að vinna að frágangi á lóðinni í kringum húsið á borgarlandi.
Þar má einnig finna einstakt spírall-leiktæki sem var smíðað í Sviss í tveimur hlutum, og sáum við einnig um uppsetningu þess. Við erum mjög ánægð með útkomuna. Hellurnar á svæðinu eru tromplaður þriggjasteina óðalssteinn.

05/08/2025

Verkstjóri í jarðvinnu óskast

Ertu með reynslu af jarðvinnu og tilbúinn í ábyrgðarhlutverk?
Við leitum að öflugum og skipulögðum verkstjóra í jarðvinnuverkefni. Um er að ræða fullt starf með góðum starfskjörum.

Við bjóðum:
• Góð laun í samræmi við reynslu og ábyrgð
• Heitur hádegismatur alla virka daga
• Vinnutíma frá kl. 08:00–17:00 (mán.–fös.)
• Gott vinnuumhverfi og öflugan hóp

Starfið felur í sér:
• Umsjón og stjórnun jarðvinnuverkefna
• Verkstjórn á starfsfólki og verktökum á verkstað
• Skipulagningu, utanumhald og eftirfylgni með framkvæmdum

Hæfniskröfur:
• Reynsla af jarðvinnu nauðsynleg
• Leiðtogahæfni og færni í mannlegum samskiptum
• Skipulagshæfileikar og sjálfstæð vinnubrögð
• B-kort (annað ökuskírteini kostur)

Viltu vita meira eða sækja um? Hafðu samband í [email protected] eða sendu stuttan ferilskrá og kynningarbréf á [email protected]

Verk eftir okkur. Tókum allt hverfið. Við bjóðum upp á hellulagnir, malbkinum göngustíga og bílastæða, tyrfingar - trjá ...
04/03/2025

Verk eftir okkur. Tókum allt hverfið.
Við bjóðum upp á hellulagnir, malbkinum göngustíga og bílastæða, tyrfingar - trjá og runnaklippingar , lagnavinna og alla almenna jarðvinnu ásamt pallasmíðum.

Við kláruðum allt sem var hægt að klára áður en snjórinn kom og svo fórum við að hreinsa bílaplön.
01/01/2025

Við kláruðum allt sem var hægt að klára áður en snjórinn kom og svo fórum við að hreinsa bílaplön.

Við gerðum þetta huggulegt á Álftanesinu og gerðum klárt fyrir Ella vin okkar á Hrafnistu í Kópavogi.
01/01/2025

Við gerðum þetta huggulegt á Álftanesinu og gerðum klárt fyrir Ella vin okkar á Hrafnistu í Kópavogi.

Address

Járnháls, Reykjavíkurborg
Reykjavík
110

Opening Hours

Monday 08:00 - 17:00
Tuesday 08:00 - 17:00
Wednesday 08:00 - 17:00
Thursday 08:00 - 17:00
Friday 08:00 - 17:00

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Krafla Lóðaframkvæmdir posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to Krafla Lóðaframkvæmdir:

Share

Category