01/11/2026
Þú kemur til Spánar til að njóta — við sjáum um að græja! ☀️🔑
Hvort sem þú ert heima í þínu heimalandi eða nýkominn út og vilt fara í golf, sinna öðrum erindum eða einfaldlega njóta frísins, þá er ICE til staðar fyrir þig og eignina þína. ⛳🌴
Bara í október höfum við leyst tryggingamál, rafmagns- og vatnsmál, sinnt þýðingum, heimsóknum til viðskiptavina, uppsetningu á gardínum og fullt af alls konar aukaverkefnum. Við höfum samræmt vinnu rafvirkja, pípara, smiða, málara, meindýraeyða og sundlaugar- og garðteyma á mismunandi stöðum.
Þar að auki höfum við sinnt 25 alþrifum og unnið að tilboðum í fimm stór endurbótaverkefni. Tilboð í uppsetningu á sólarsellum og álverkefni hafa einnig verið samþykkt — allt þetta samhliða reglulegum eftirlitsferðum okkar! 💪
Vinnudagarnir hafa verið langir, frá snemma morgni fram á kvöld og stundum jafnvel fram að miðnætti. Það er að mörgu að huga og við leggjum metnað í að fylgja málunum eftir.
Við þekkjum markaðinn vel, vinnum með öflugum teymum fagfólks og leggjum alltaf áherslu á að þú fáir skýr og vönduð tilboð á sanngjörnu verði í þín verkefni.
Persónuleg þjónusta, sanngjarnt verð og fólk sem þú getur hringt í þegar eitthvað þarf að leysa.
Hér kemur smá myndabrot af verkefnum vikunnar hjá ICE! 📸
Takk fyrir traustið — og sendu okkur línu ef það er eitthvað sem þarf að græja hjá þér! 🔑🌴