07/11/2020
Um er að ræða fallegt hús sem staðsett er á besta stað á hinum vinsæla stað La Marina Urb, aðeins 25 mín akstur frá Alicante flugvelli.
Í húsinu er allt til alls, sólarverönd að framan góð stofa, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, góð eldhúsaðstaða, sólstofa á efri hæð og stór og nýendurgerð sólarverönd uppi á þaki. Þar er mjög góð aðstaða til að grilla, með nýjum útihúsgögnum.
Húsið er staðsett við hlið verslunarkjarna þar sem eru margir veitingastaðir og góð matvöruverslun og tekur það um tvær mínútur að ganga í góða matvöruverslun.
Aðgangur er að sameiginlegri sundlaug og sundlaugargarði en sundlaugin er í um 150 metra fjarlægð frá húsinu.
Í húsinu er internet, gott sjónvarp, uppþvottavél, þvottavél og nýjar loftkælingar. Fyrir vetrarleigu eru einnig ofnar í hverju herbergi.
Fallegt hús á rólegum og góðum stað á vinsælu svæði sem bíður upp á endalausa afþreyingarmöguleika. Þar má helst nefna skemmtigarða, golf, strandarferðir og fleira.
Verð á viku án þrifgjalds:
Október - Mars
45.000 kr.
Apríl - September
70.000 kr.
Þrifgjald: 90 evrur
Vinsamlegast hafið samband fyrir upplýsingar um hvaða dagsetningar eru lausar.
[email protected]
S: 690-6431