08/11/2022
Hluti af búsetuverkefninu í tilraunahúsinu, er að skrá kosti og galla þess að búa heilsársbúsetu í Arctic Tiny húsinu á norðurpólnum ❄️🇬🇱🏠
Búsetuskýrslan apríl til nóvember 2022 ❄️🌸☀️🍁
✅Húsið er ekki tengt opinberum lögnum og því er hægt að staðsetja hús nær hvar sem er, þetta hús er í jaðri miðbæjar Sisimiut 🏠
✅ca. 1 km. ganga að menningarhúsi bæjarins, pósthús og innkaup 🥦
✅ Húsið er byggt úr léttum einingum frá www.Fibra.is einingar sem standast alla storma, er stöðugt og vel einangrað 🏠
✅Húsið er mjög tæknivætt, það er hitaveitukerfi svo að fátt er nefnd og einhverskonar Ipad inni í húsi sem upplýsir íbúa um hverjar rafmagns, vatnsbirgðirnar, hvenær eigi að tæma gráa vatnið og hvenær er tímabært að panta olíu og vatn.
✅Baðherbergið er hlutfallslega stórt og rúmgott.
Góð svokölluð vatnssparandi úðasturta sem virkar vel 💦
Moltusalernið er lyktalaust, það þarf að tæma moltuskúffuna einu sinni í mánuði, verk sem er ekki fyrir viðkvæma en er verk sem venst 💛😬💛
✅Eldhúsið er lítið og praktískt, útigrill auðveldar matargerðina 🥦🔥 Tvær hellur koma manni langt og lítill örbylgjuofn til að poppa upp stemninguna🌽Til að toppa lífsgæðin er lítil expresso vél og mjólkurflóari sem fullkomnar morgunstundina☀️
✅Svefniherbergi / Stofa - Rúmið er veggrúm og með einu handtaki breytist svefniherbergið í stofu🧙
✅ Stofan rúmast vel í hvers dagsleikanum og líka þegar gesti ber að garði þá er hæglega er hægt að dekka upp fyrir 5-7 manna í matarboði þar sem rúmast vel um alla❤️
Tiny House líf er ákveðin lífsstíll 🇬🇱❄️
Ef og þegar annar tekur við búsetu í húsinu eru nokkur fyrirbyggjandi atriði sem þú þarft að vera búin að búa þig undir ☀️
Þú þarft að vera fær um að klífa skafla og skurði í stjörnuvitlausu veðri til þess að komast heim 🏠 = mikilvægt að vera líkamlega vel á sig kominn 🧗♂️
Vertu undir það búin að tæknin bregst og að þá verður rafmagns og vatnslaust, vatnspumpan er tengd rafmagninu ⚡️💦
Mikilvægt að vera með jöklaútbúnað til taks, dúnsvefnpoka, kerti /vasaljós innann seilingar 🔦
Frostið sem fer uppí -35C á þessum slóðum ❄️
Það þarf að tæma moltusalernið einu sinni í mánuði, fylgjast með vatnbyrgðum og spá í það hversu marga lítra af vatni eru notaðir, fylgjast með rafmagnsbyrgðum sem er mjög mjög lærdómsríkt.
Þrátt fyrir hinar ýmsu áskoranir og á köflum hark þá verðlaunar náttúran manni erfiðið í þessari náttúruparadís , verandi með gönguskíðabraut á heimsmælikvarða beint fyrir utan dyrnar breytir myrkri í sól 🌑☀️
Helstu/Bestu faratækin í bænum er snjósleði á veturna ❄️ fjórhjól á sumrin ☀️
Á snjósleða er hægt að komast í yfirburða fallegar dagsferðir í “baklandi Sisimiut” baglandet 🇬🇱
Þaðan er góð leið að jöklarótunum í Kangerlussuaq💥
Skammt frá Tiny húsi er hundabærinn þar sem búa yfir þúsund sleðahundar, sem eru alltaf tilbúnir í sleðaferð 🛷🐺
Menningalíf í Sisimiut mun koma á óvart og flottir viðburðir í menningahúsinu á maður ekki að láta framhjá sér fara 🤗
Arctic Sound tónlistahátíðinn , Arctic Race Circle eru viðburðir sem laða gesti frá öllum heimshornum og sannkölluð festivalstemning ríkir í bænum þá daga ... 🥳
Meira síðar ❤️🧡💛💚💙💜❤