15/06/2020
Tilboð sumar 2020 - Gisting 2 nætur-hvalaskoðun-heitir pottar og kvöldverður
Gisting í aldagömlu uppgerðu húsi við Lækjargötu 3 í innbænum á Akureyri í tvær nætur – á öðrum degi er farið í hvalaskoðunarferð frá Hauganesi (ca. 25 mínútna keyrsla frá Akureyri) og í framhaldi af henni farið í baðferð í heita potta og sjóinn á ströndinni við Hauganes og endað á máltíð í veitingahúsinu Baccalá bar á Hauganesi.
Um er að ræða þrjár íbúðir:
Lúxusíbúð með 4 svefnherbergjum, 2 setustofum, borðstofu, eldhúsi og baðherbergi.
Íbúð á jarðhæð með 2 svefnherbergjum, setustofu, eldhúsi og baðherbergi
Studíóíbúð með 1 svefnherbergi, setustofu með svefnsófa og eldhúskrók og baðherbergi
Íbúðirnar þrjár hafa aðgang að sameiginlegum heitum potti og útisturtu og eru ríkulega skreyttar með myndverkum eftir íslenska listamenn frá seinni hluta tuttugustu aldar.
Hvalaskoðunin á Hauganesi er elsta hvalaskoðun landsins. Notaðir eru tveir klassískir eikarbátar sem eru rómaðir fyrir að vera rúmgóðir og sérlega stöðugir í skjólsælum Eyjafirðinum. Hnúfubakarnir eru yfirleitt í ca. 20 mínútna fjarlægð frá Hauganesi. Innifalið í ferðinni sem tekur 2,5 til 3 tíma er sjóstangaveiði í lok ferðar þar sem stoppað er við þekkt fiskimið innan fjarðarins á leiðinni til baka. Aflinn er flakaður fyrir þá sem það vilja. Innifalið er hlýr heilgalli (sem einnig er flotgalli) kaffi, kakó, kleinur/snúðar. www.whales.is/ Whale Watching Hauganes
Veitingar á Baccalá Bar á Hauganesi, sem ber á borð meðal annars ferskan fisk og saltfisk „beint frá býli“ Staðurinn stendur við hlið húsnæðis Ektafisks sem er elsti saltfiskverkandi landsins. Á Baccalá Bar getur þú setið og snætt og notið útsýnis inn fallegan Eyjafjörðinn. Hægt er að fylgjast með Facebook síðunni Baccalá Bar - Ektafiskur og fá þar nánari upplýsingar um staðinn. Af matseðli er hægt að velja um nýjan fiskrétt eða saltfiskrétt. Heitu pottarnir eru staðsettir í fjörunni fyrir neðan veitingastaðinn.
Stúdíó f. 2 42.890
Stúdíó f. 4 61.380
Jarðhæð f. 2 46.880
Jarðhæð f. 4 64.980
Deluxe íbúð f. 4 76.980
Deluxe íbúð f. 6 95.470
Deluxe íbúð f. 8 117.960
Nánari upplýsingar í skilaboðum.