Nes fasteignasala ehf

Nes fasteignasala ehf Contact information, map and directions, contact form, opening hours, services, ratings, photos, videos and announcements from Nes fasteignasala ehf, Estate agent, Borgarbraut 57, Borgarnes.

Opið hús: sunnudaginn 21. júní milli kl. 13:00 og 14:00Hamrar í Haukadal, 371 Búðardal. Um er að ræða fallega jörð í Hau...
16/06/2026

Opið hús: sunnudaginn 21. júní milli kl. 13:00 og 14:00

Hamrar í Haukadal, 371 Búðardal.

Um er að ræða fallega jörð í Haukadal þar sem nú er rekinn sauðfjárbúskapur. Jörðin selst ásamt allri áhöfn.

Jörðin Hamrar eru í ofanverðum Haukadal, sunnan við Haukadalsá efri. Er talið að bærinn dragi nafn sitt af þverhníptum hömrum fyrir ofan bæinn. Fallegt umhverfi með mikla möguleika og útsýni.

Hamrar eru landstór jörð um það bil 1050 ha að stærð (gróf mæling skv. Nytjaland.is)) Land jarðarinnar liggur frá Haukadalsá og suður á mikið fjalllendi, Hamrafjall. Þar inná eru Skálagil og Skáladalur. Næstu jarðir eru Jörvi að vestan en Mjóaból að austan. Norðan Haukadalsár er svo jörðin Núpur. Fyrstu heimildir um Hamra er að finna í jarðasölubréfi frá 1541 en þá kemst jörðin í eigu Daða Guðmundssonar í Snóksdal.

Á Hömrum er nú búið með sauðfé og er greiðslumark jarðarinnar 395,7 ærgildi. Tún jarðarinnar er 18,7 ha að stærð samkvæmt skráningu HMS. Rjúpnaveiði er á fjalllendi jarðarinnar og veiðiréttur í Haukadalsá. Neysluvatn er tekið úr brunni á landareigninni. Á jörðinni er friðlýst náttúruvætti sem nefnist Saltadý og er uppspretta framan við bæinn. Í rennsli uppsprettunnar er salt sem sest á steina og sækja skepnur mjög í það.

Helstu byggingar á jörðinni:
Einbýlishús 135,30 fm að stærð á 2 hæðum byggt 1945. Á neðri hæð eru forstofa, hol, stofa, eldhús með góðri innréttingu og borðkrók, þvottahús,geymsla og baðherbergi með sturtu. Á efri hæð eru 3 herbergi og snyrting. Parket á gólfum utan votrýma.
Húsið er nokkuð endurnýjað: Klæðning á húsi endurnýjuð 1980. Skipt um þakefni 2003-2004. Gluggar á neðri hæði endurnýjaðir 2015 og gluggar á efri hæðinni og útihurðir 2020-21. Vatnslagnir og ofnakerfi endurnýjað 2007. Þá var baðherbergi endurnýjað 2010.
Við húsið er ágætur sólpallur með skjólveggnum.

Fjárhús með áburðarkjallara byggt 1981. Stálgrindarhús með steyptum kjallara 285 fm að stærð. Grindur í gólfi, endurnýjaðar 2011, og einangrað þak.
Hlaða byggð 1982. Klædd stálgrind með steyptu gólfi, 178 fm að stærð.

Eldri byggingar
Fjós byggt 1957 og fjárhús byggt 1960 ásamt sambyggðum hlöðum. Byggingar sem nýttar eru sem verkstæði og geymslur.

Hér er um mjög áhugaverða jörð að ræða sem býður upp á möguleiki í ferðamennsku svo sem rjúpnaveiði, og þá eru Skálagil, Bæjargil og Stekkjargil vinsælir staðir til að stunda ísklifur um vetur.

Listi yfir bústofn og tæki sem fylgja með jörðinni liggur fyrir. Nánari upplýsingar veitir Þórarinn Halldór Óðinsson Lögg. fasteignasali, í síma 8650350, tölvupóstur [email protected].

Nes fasteignasala kynnir í einkasölu eignina:Hamrar í Haukadal, 371 Búðardal. Um er að ræða fallega jörð í Haukadal þar sem nú er rekinn sauðfjárbúskapur. Jörðin selst ásamt allri áhöfn.Jörðin Hamrar eru í ofanverðum Haukadal, sunnan við Haukadalsá efri. Er talið að bær...

Opið hús fimmtudaginn 28. maí 2026 milli kl. 17:00 og kl. 17:30.Borgarbraut 55, 310 Borgarnes, Nýjar vandaðar íbúðir í t...
27/05/2026

Opið hús fimmtudaginn 28. maí 2026 milli kl. 17:00 og kl. 17:30.
Borgarbraut 55, 310 Borgarnes,

Nýjar vandaðar íbúðir í tveggja hæða fjölbýlishúsi byggt úr forsteyptum einingum.

Húsið skiptist í 16 íbúðir, stærðir eru:
Tveggja herbergja íbúðir, 54.3 fm að stærð:
https://fasteignir.visir.is/property/1050372
Þriggja herbergja íbúðir 85.6 fm að stærð:
https://fasteignir.visir.is/property/1050658
Fjögurra herbergja íbúðir 102.9 fm að stærð:
https://fasteignir.visir.is/property/1050636

Nánari upplýsingar veitir Þórarinn Halldór Óðinsson lögg. fasteignasali, í síma 497-0040 eða 865-0350, tölvupóstur [email protected].

Nes fasteignasala ehf kynnir í einkasölu eignina:Borgarbraut 55, 310 Borgarnesi, íb 206.Um er að ræða vandaða 4ja herbergja íbúð á jarðhæð með sérinngangi í fallegri nýbyggingu sem er steinsteypt fjölbýlishús með 16 íbúðum á 2 hæðum. Íbúðin er 102,9 fm. að stærð sam...

Opið hús: þriðjudaginn 28. apríl 2026 kl. 17:00 til 17:30Skúlagata 14, 310 Borgarnes.Um er að ræða fallegt og mikið uppg...
26/04/2026

Opið hús: þriðjudaginn 28. apríl 2026 kl. 17:00 til 17:30
Skúlagata 14, 310 Borgarnes.

Um er að ræða fallegt og mikið uppgert steinsteypt hús á tveimur hæðum með tveimur íbúðum.

Eignin er samtals 169,3 fm að stærð skv. skráningu HMS, þar af er íbúð á neðri hæð 67,4 fm og íbúð á efri hæð 101,9 fm. Íbúð á efri hæð var stækkuð með vandaðri viðbyggingu árið 2021.

https://fasteignir.visir.is/property/1032820

Húsið er allt endurnýjað af mikilli smekkvísi og hafa eigendur kappkostað að halda upprunalegu útliti hússins við endurnýjun og efnisval.
Eignin stendur á glæsilegri útsýnislóð í neðri hluta bæjarins, frábær staðsetning, stutt í skóla, íþróttahús og sundlaug.
Skúlagata 14 er sögufrægt hús í Borgarnesi, teiknað af Guðjóni Samúelssyni fyrrum húsameistara ríkisins. Húsið var upphaflega byggt árið 1920 undir starfsemi Sparisjóðs Mýrasýslu, með útibúi á neðri hæð og íbúð sparisjóðsstjóra á efri hæð.
Íbúð á neðri hæð:
Íbúðin skiptist í forstofu, alrými sem samanstendur af borðstofu, stofu og eldhúsi, 2 svefnherbergi, þvottahús og baðherbergi.
Miklar endurbætur hafa verið gerðar á íbúðinni á síðustu árum. Nýlegir bogadregnir gluggar setja mikinn svip á húsið. Allar lagnir endurnýjaðar; rafmagn, neysluvatn, hitalagnir og ofnar. Nýtt gólfefni í alrými og anddyri. Skipt um innréttingu og tæki í eldhúsi. Allar hurðir nýjar, bæði úti og innihurðir, nema á baðherbergi.
Íbúð á efri hæð:
Íbúðin skiptist í anddyri/skála, baðherbergi, þvottahús, 2 svefnherbergi, eldhús.
Gengið er í anddyri/skála, þaðan er gengið í baðherbergi, hjónaherbergi og þvottahús. Þessi hluti hæðarinnar er nýbygging með hita í gólfi. Þar innaf, í eldri hluta hæðarinnar, er svefnherbergi, eldhús, stofa og borðstofa.
Sólpallur: Rúmgóður Með háum skjólveggjum og heitum potti. Pallurinn er viðhaldsfrír, klæddur með Terrawood.
Lóðin er skráð 420 fm að stærð í fasteignaskrá en samkvæmt gildandi deiliskipulagi er lóðin 1.015 fm. Mjög skemmtilegt svæði með trjágróðri, stígum og leiktækjum og 9 fm geymsluskúr.
Nánari upplýsingar veitir Þórarinn Halldór Óðinsson Lögg. fasteignasali, í síma 497-0040 eða 865-0350, tölvupóstur [email protected].
Nes fasteignasala tekur ekki umsýslugjald af kaupendum.
Kostnaður kaupanda:
Stimpilgjald skv. 5. gr. laga nr. 138/2013 um stimpilgjald, 0,8% af fasteignamati fyrir einstaklinga. 0,4% við fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald kr. 3.800,- á hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá.
Engin umsýsluþóknun.

Nes fasteignasala ehf kynnir í einkasölu eignina:Skúlagata 14, 310 Borgarnes.Um er að ræða fallegt og mikið uppgert steinsteypt hús á tveimur hæðum með tveimur íbúðum. Eignin er samtals 169,3 fm að stærð skv. skráningu HMS, þar af er íbúð á neðri hæð 67,4 fm og íbúð á ...

Opið hús: 7. apríl 2026 kl. 17:00 til 17:30Arnarklettur 32, 310 Borgarnes.https://fasteignir.visir.is/property/1019543Um...
06/04/2026

Opið hús: 7. apríl 2026 kl. 17:00 til 17:30

Arnarklettur 32, 310 Borgarnes.

https://fasteignir.visir.is/property/1019543

Um er að ræða 3 herbergja 78,2 fm íbúð merkt 304 á 3. hæð í mjög góðu lyftuhúsi með sérinngangi af svölum. Íbúðin er með tveim svefnherbergjum en geymsla innaf forstofu er með glugga og opnanlegu fagi og getur nýst sem lítið svefnherbergi.

Íbúðin skiptist í forstofu, geymslu, tvö svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og alrými sem samanstendur af eldhúsi, borðstofu og stofu.
Lítið sérgeymsla, utan skráðra fermetra, er á sameignargangi.

Forstofa flísar á gólfi, fatahengi.
Geymsla parket á gólfi og skápur.
Herbergi eru með parket á gólfum. Fataskápur á heilum vegg í hjónaherbergi.
Baðherbergi er rúmgott, flísalagt í hólf og gólf með góðri innréttingu og sturtu. Ágætt skápapláss og vegghengt salerni.
Þvottahús er flísalagt með hillum.
Eldhús góð innrétting er í eldhúsi, ágætt skápapláss og góð vinnuaðstaða. Electrolux tæki – ofn í vinnuhæð, spanhella og háfur.
Stofa parket á gólfum, björt og rúmgóð. Gengið er úr stofu út á svalir. Mikið og fallegt útsýni úr stofu og af svölum.

Íbúðinni fylgir sér geymsla og hlutdeild í sameiginlegri hjólageymslu á jarðhæð. Sameiginleg hleðslustöð er fyrir rafmagnsbifreiðar á bílastæði.

Nánari upplýsingar veitir Þórarinn Halldór Óðinsson lögg. fasteignasali, í síma 497-0040 eða 865-0350, tölvupóstur [email protected]
Nes fasteignasala ehf. Borgarbraut 57, Borgarnesi.

Nes fasteignasala ehf. kynnir eignina: Arnarklettur 32, 310 Borgarnes.Um er að ræða 3 herbergja 78,2 fm íbúð merkt 304 á 3. hæð í mjög góðu lyftuhúsi með sérinngangi af svölum. Íbúðin er með tveim svefnherbergjum en geymsla innaf forstofu er með glugga og opnanlegu fagi og getu...

Borgarbraut 34, 310 Borgarnes.https://fasteignir.visir.is/property/1009295Um er að ræða mjög vel staðsett og rúmgott ein...
13/03/2026

Borgarbraut 34, 310 Borgarnes.

https://fasteignir.visir.is/property/1009295

Um er að ræða mjög vel staðsett og rúmgott einbýlishús með aukaíbúð á sér fastanúmeri. Húsið er steinsteypt og á tveimur hæðum með innbyggðum bílskúr, og er aðalíbúð með íbúðarherbergi yfir bílskúr 247,20 fm að stærð og séríbúðin 71,9, fm, alls 319,10 fm skv. skráningu HMS.

Nánari lýsing:
Gengið er í anddyri á neðri hæð. Þar innaf er þvottahús og geymslur ásamt gufubaði og snyrtingu. Úr forstofu er gengið upp steyptan stiga á efri hæðina. Af mið-stigapalli er gengt út á baklóðina. Af stigapalli á efri hæð er annars vegar í skrifstofu, eldhús, herbergi og snyrtingu en þetta svæði má nota sem sér íbúð, og hinsvegar hol, eldhús, stofa og svefnálma með 2 herbergjum og baðherbergi. Gengið er út á svalir úr stofu og hjónaherbergi.

Aðalíbúð:
Anddyri: Flísar á gólfi.
Þvottahús: Epoxymálning á gólfi.
Gufubað: Vatnsgufa, sturta og snyrting.
Geymslur: Dúkur á gólfum
Eldhús: Korkflísar á gólfi. Rúmgóð innrétting, eik , helluborð og háfur. Bakarofn i vinnuhæð og tvöfaldur ísskápur, borðkrókur og búr inn af eldhúsi.
Stofa og borðstofa: Eru samliggjandi, parket á gólfum. Gengið úr stofu út á svalir.
Herbergi: Eru 2 á svefnálmu, bæði með parket á gólfum. Mjög rúmgóðir fataskápar í hjónaherbergi
Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf. Góð hvít innrétting, baðkar og sturta.

Aukaíbúð/íbúðarherbergi á 2.hæð
Herbergi: Eru 2. Parket á gólfum og skápar í öðru.
Eldhús: Dúkur á gólfi , lítil eldri innrétting og eldavél
Snyrting: Dúkur á gólfi.

Bílskúr:
Er 49,0 fm. að stærð. Epoxy á gólfi, rafdrifin innaksturshurð og gönguhurð þar við hlið. Innréttingar og hillur á veggjum. Þar er vatnsinntak hússins og varmaskiptir á heitu vatni.

Íbúð með sérinngangi.
Íbúðin skiptist í forstofu, 2 herbergi, baðherbergi og stofu og eldhús sem mynda alrými.
Forstofa: Flísar og fatahengi
Herbergi: Parket á gólfum, skápar í öðru herbergingu.
Eldhús: Parket á gólfi, ágæt hvít innrétting. Bakarofn með helluborði.
Baðherbergi: Flísar í hólf og gólf, lítil innrétting og sturta.
Þvottahús: Lítið þvottahús á gangi.
Stofa: Parket á gólfi

Lóð: Er vel hirt með grasflöt og trám. Gengið er af svölum út á lóðina. Klettar mynda skemmtilega afmörkun á baklóð hússins. Bílaplan er malarborið en stéttir steyptar.

Mjög áhugaverð eign með mikla möguleika. Frábær staðsetning og útsýni. Stutt í íþróttahús, skóla og alla þjónustu.

Nánari upplýsingar veitir Þórarinn Halldór Óðinsson lögg. fasteignasali, í síma 497-0040 eða 865-0350, tölvupóstur [email protected]

Nes fasteignasala ehf. Borgarbraut 57, 310 Borgarnes.

Nes fasteignasala ehf kynnir eignina:Borgarbraut 34, 310 Borgarnes.Um er að ræða mjög vel staðsett og rúmgott einbýlishús með aukaíbúð á sér fastanúmeri. Húsið er steinsteypt og á tveimur hæðum með innbyggðum bílskúr, og er aðalíbúð með íbúðarherbergi yfir bílskúr 2...

Opið hús mánudaginn 16. mars 2026 kl. 17:00 - 17:30.Kvíaholt 16, 310 Borgarnesi. https://fasteignir.visir.is/property/10...
13/03/2026

Opið hús mánudaginn 16. mars 2026 kl. 17:00 - 17:30.

Kvíaholt 16, 310 Borgarnesi.

https://fasteignir.visir.is/property/1008913

Um er að ræða mjög fallegt 159,6 fm einbýlishús með innbyggðum bílskúr á einni hæð byggt 2002. Þar af er bílskúr 29,9 fm skv. skráningu HMS.

Húsið er kanadískt einingahús, mjög vandað og lóðin skemmtilega frágengin með steyptu bílaplani og hellulagðri gangstétt sem gengur í sveig meðfram húsinu og afmarkast af lágum hlöðnum vegg. Gluggar eru með frönsku yfirbragði sem setur skemmtilegan svip á húsið.
Á lóðinni er rúmgóður sólpallur með háum skjólveggjum og heitum potti.

Nánari lýsing:
Forstofa er rúmgóð. Þar er þvottahús á vinstri hönd. Úr þvottahúsi er innangengt í bílskúrinn. Úr forstofu er gengið inn í hol. Þaðan er gengið í baðherbergi, 2 svefnherbergi, eldhús og stofur. Gengið er úr borðstofu út á sólpallinn.
Forstofa: Flísar á gólfi og stór fataskápur.
Þvottahús: Er mjög stórt með mjög rúmgóðri hvítri innréttingu góð vinnuaðstaða og mikið skápapláss. Gólf er flísalagt.
Bílskúr: Er með flísar á gólfi. Góð rafdrifin bílskúrshurð og göngudyr út á bílaaplan. Vinnuborð og verkfæraskápar á vegg.
Stofa og borðstofa: Eru samliggjandi, fallegt og bjart rými, upptekið loft og parket á gólfi. Mjög fallegur arinn í stofunni, flísalagur að hluta, setur skemmtilegan svip á rýmið.
Eldhús: Parket á gólfi. Mjög rúmgóð innrétting með eyju. Helluborð og bakarofn í vinnuhæð. Uppþvottavél er í innréttingu.
Baðherbergi: Er rúmgott, flísalagt í hólf og gólf. Sturta og hornbaðkar. Hvít innrétting og vegghengt salerni. Gólfhiti er í baðherberginu.
Svefnherbergi: Eru 2, bæði parketlögð með fataskáp. Fataskápar á heilum vegg í hjónaherbergi.
Lóðin: Er falleg og vel hirt með grasflöt, runnum og trjágróðri og er aðkoma að húsinu frágengin og öll hin snyrtilegasta.

Nánari upplýsingar veitir Þórarinn Halldór Óðinsson lögg. fasteignasali, í síma 497-0040 eða 865-0350, tölvupóstur [email protected].

Kostnaður kaupanda:
Stimpilgjald skv. 5. gr. laga nr. 138/2013 um stimpilgjald, 0,8% af fasteignamati fyrir einstaklinga. 0,4% við fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald kr. 3.800,- á hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá.
Engin umsýsluþóknun.

Nes fasteignasala kynnir í einkasölu eignina:Kvíaholt 16, 310 Borgarnesi. Um er að ræða mjög fallegt 159,6 fm einbýlishús með innbyggðum bílskúr á einni hæð byggt 2002. Þar af er bílskúr 29,9 fm skv. skráningu HMS.Húsið er kanadískt einingahús, mjög vandað og lóðin skemmt...

Borgarbraut 55, 310 Borgarnesi. Nýjar vandaðar íbúðir í tveggja hæða staðsteyptu fjölbýlishúsi. Húsið skiptist í 16 íbúð...
06/03/2026

Borgarbraut 55, 310 Borgarnesi.

Nýjar vandaðar íbúðir í tveggja hæða staðsteyptu fjölbýlishúsi.

Húsið skiptist í 16 íbúðir, stærðir eru:

Tveggja herbergja íbúðir, 54.3 fm að stærð:
https://fasteignir.visir.is/property/995229

Þriggja herbergja íbúðir 85.6 fm að stærð:
https://fasteignir.visir.is/property/995273

Fjögurra herbergja íbúðir 102.9 fm að stærð:
https://fasteignir.visir.is/property/995205

Nánari upplýsingar veitir Þórarinn Halldór Óðinsson lögg. fasteignasali, í síma 497-0040 eða 865-0350, tölvupóstur [email protected].

Opið hús: Laugardaginn 7. mars 2026 kl. 14:00 til 14:30Hlíðarhjalli 52, íb 101, 200 Kópavogur.https://fasteignir.visir.i...
05/03/2026

Opið hús: Laugardaginn 7. mars 2026 kl. 14:00 til 14:30

Hlíðarhjalli 52, íb 101, 200 Kópavogur.

https://fasteignir.visir.is/property/999690

Um er að ræða vel skipulagða og mikið endurnýjaða íbúð með sérinngangi á neðri hæð í góðu steinsteyptu tvíbýlishúsi. Byggt 1988. Eignin er 66.0 fm að stærð skv skráningu HMS. Geymsla innaf eldhúsi var stækkuð og nýtt sem herbergi.

Vel staðsett eign, í botnlangagötu í rólegu og grónu hverfi þar sem stutt er í leikskóla, skóla, íþróttaaðstöðu, verslanir og þjónustu.

Nánari lýsing:
Forstofa: Flísar á gólfi, fatahengi.
Hol: Flísar á gólfi, fataskápur á gangi.
Eldhús: Flísar á gólfi. Nýleg innrétting og tæki, helluborð, bakaraofn í vinnuhæð og stæði fyrir uppþvottavél.
Geymsla: Stækkuð og nú nýtt sem herbergi. Parket á gólfi, fataskápur, rennihurð.
Stofa: Parket á gólfi, rúmgóð og björt með stórum gluggum í tvær áttir.
Baðherbergi: Flísar á gólfi, baðkar með sturtuaðstöðu, salerni, handklæðaofn, innrétting með vaski, stæði fyrir þvottavél og þurrkara í innréttingu.
Svefnherbergi: Parket á gólfi, fataskápur. Gengið út á sólpall.

Lóð: Sólpallur móti suðri með skjólveggjum og heitum potti (hitaveituskel).

Nánari upplýsingar veitir Þórarinn Halldór Óðinsson lögg. fasteignasali, í síma 497-0040 eða 865-0350, tölvupóstur [email protected].

Nes fasteignasala tekur ekki umsýslugjald af kaupendum.
Kostnaður kaupanda:
Stimpilgjald skv. 5. gr. laga nr. 138/2013 um stimpilgjald, 0,8% af fasteignamati fyrir einstaklinga. 0,4% við fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald kr. 3.800,- á hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá.
Engin umsýsluþóknun.

Nes fasteignasala ehf kynnir í einkasölu eignina:Hlíðarhjalli 52, íb 101, 200 Kópavogur.Um er að ræða vel skipulagða og mikið endurnýjaða íbúð með sérinngangi á neðri hæð í góðu steinsteyptu tvíbýlishúsi. Byggt 1988. Eignin er 66.0 fm að stærð skv skráningu HMS. Geyms...

Borgarbraut 63, 310 Borgarnesi.Nýjar glæsilegar íbúðir í hæsta gæðaflokki fyrir 55 ára og eldri í staðsteyptu lyftuhúsi....
20/02/2026

Borgarbraut 63, 310 Borgarnesi.

Nýjar glæsilegar íbúðir í hæsta gæðaflokki fyrir 55 ára og eldri í staðsteyptu lyftuhúsi. Hverri íbúð fylgir sér bílastæði í bílakjallara og sér geymsla á geymslugangi í kjallara.

Fjórar íbúðir á hverri hæð og skiptist í tvær tveggja herbergja íbúðir, uþb. 105 fm að stærð með geymslu og tvær tveggja herbergja íbúðir uþb. 74 fm að stærð með geymslu.

Hlekkur á auglýsingar íbúðanna á fasteignir.visir.is :

https://fasteignir.visir.is/search/results/?stype=sale #/?keyword=Borgarbraut%2063&stype=sale

Nánari upplýsingar veitir Þórarinn Halldór Óðinsson lögg. fasteignasali, í síma 497-0040 eða 865-0350, tölvupóstur [email protected].

Opið hús: 24. febrúar 2026 kl. 17:00 til 17:30Gunnlaugsgata 8, 310 Borgarnes. Eign með mikla möguleika fyrir réttan aðil...
20/02/2026

Opið hús: 24. febrúar 2026 kl. 17:00 til 17:30

Gunnlaugsgata 8, 310 Borgarnes. Eign með mikla möguleika fyrir réttan aðila!

Eignin er tilbúin til afhendingar við kaupsamning.

Um er að ræða steinsteypt einbýlishús á tveimur hæðum, byggt 1954 ásamt stakstæðum bílskúr. Eignin er samtals 179.6 fm stærð skv. skráningu HMS. Þar af er neðri hæð 120 fm, rishæð 32.2 fm, og bílskúr 27.4 fm.

Húsið skiptist í forstofu, stigapall, 2 stofur, eldhús, sjónvarpsherbergi, 5 svefnherbergi, baðherbergi, snyrtingu, þvottahús og geymslu.

Nánari lýsing:
Gengið er í forstofu. Þar á vinstri hönd er forstofuherbergi. Úr forstofu er gengið inn á gang sem tengir saman öll rými á hæðinnien þar eru 2 svefnherbergi, 2 stofur, snyrting og eldhús. Gengið er upp stiga af stigapalli inn á gang á rishæð, þar eru 3 svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús. Bílskúr er stakstæður.

Jarðhæð:
Forstofa: Teppi á gólfi og opinn fataskápur.
Svefnherbergi: 2 á hæðinni, fataskápar í báðum herbergjum.
Stofa og borðstofa: Rúmgóðar með parket á gólfi.
Snyrting: Dúkur á gólfi, salerni og innrétting með skápum á vegg.
Eldhús: Eldri innrétting, eldavél.

Rishæð:
Svefnherbergi: 3 á hæðinni.
Þvottahús: Steypt gólf.
Baðherbergi: Baðkar, salerni og lítil innrétting.

Bílskúr: Steypt gólf, eldri bílskúrshurð.

Eignin er komin til ára sinna og þarfnast viðhalds/endurnýjunar. Innrétting í eldhúsi er gömul og þarfnast endurnýjunar. Húsið þarfnast lagfæringa að utan. Þak og burðarvirki þarfnast endurnýjunar. Búið er að skipta um glugga á jarðhæð og útidyrahurðar.

Búið er að teikna og burðarþolshanna breytingar á einbýlishúsinu, sem gerir efri hæðina mun rýmri og allt húsið notadrýgra. Einnig er búið að kaupa glugga fyrir efri hæð og svalahurð fyrir neðri hæð. Teikningar, gluggar og svalahurð geta fylgt með kaupum ef óskað er eftir því. Ef endurbygging á þaki fer eftir þeim teikningum sem gætu fylgt, þá fer flatarmál hússins úr 152 fm og upp í 212 fm og því gott tækifæri til að auka verðmæti einbýlishússins töluvert.

Góð staðsetning í rólegri götu og stutt í grunnskóla.

Nánari upplýsingar veitir Þórarinn Halldór Óðinsson lögg. fasteignasali, í síma 497-0040 eða 865-0350, tölvupóstur [email protected].

Nes fasteignasala ehf kynnir eignina:Gunnlaugsgata 8, 310 Borgarnes. Eign með mikla möguleika fyrir réttan aðila!Eignin er tilbúin til afhendingar við kaupsamning.Um er að ræða steinsteypt einbýlishús á tveimur hæðum, byggt 1954 ásamt stakstæðum bílskúr. Eignin er samtals 179.6 fm...

Address

Borgarbraut 57
Borgarnes
310

Opening Hours

Monday 09:00 - 16:00
Tuesday 09:00 - 16:00
Wednesday 09:00 - 16:00
Thursday 09:00 - 16:00
Friday 09:00 - 16:00

Telephone

+3548650350

Website

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Nes fasteignasala ehf posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to Nes fasteignasala ehf:

Share

Category