Jóhanna Kristín Tómasdóttir, löggiltur fasteignasali

Jóhanna Kristín Tómasdóttir, löggiltur fasteignasali Eruð þið að hugsa um að selja??? nóvember 2011.

Kæru húseigendur,

Eins og fram hefur komið í fréttum er fasteignamarkaðurinn nú farinn að rétta úr kútnum og er nú svo komið að flesta fasteignasala er farið að vanta eignir á skrá. Í kjölfarið hafa margir fasteignasalar brugðið á það ráð að dreifa upplýsingabæklingum til að auglýsa eftir eignum til sölu. Það er og tilgangurinn með þessari síðu en mig langar að ganga skrefi lengra og langar að pr

ófa þessa nálgun.

Ég hef ákveðið að bjóða upp á hálfrar klukkustundar ráðgjöf - ykkur að kostnaðarlausu og án allra skuldbindinga – til þess að kynna söluferlið fyrir ykkur, því ekki er ótrúlegt að einhverjar spurningar vakni í sambandi við söluferlið.

Ég hvet ykkur til að hafa samband sem fyrst því ég hef ákveðið að bjóða þeim 15% afslátt af sölulaunum sem skrá hús sín í sölu hjá mér fyrir fyrir 24. Endilega hafið samband í síma 698 7695 eða á [email protected]


Með kveðju,
Jóhanna Kristín Tómasdóttir
Löggiltur fasteignasali
Fasteignasölunni TORG

07/08/2023
12/06/2023

Fasteignasalan TORG kynnir: Einkar fallegt, sérstakt og vel staðsett einbýlishús með 5 svefnherbergjum og auka 2ja herbergja íbúð á jarðhæð. Húsið stendur innst í botnlanga við jaðar Einarsreits í einstöku hverfi í hjarta Hafnarfjarðar og í göngufæri við miðbæinn.Í húsin...

Ofboðslega fallegt 232 fm. 8 herbergja hús í fallegustu götunni í Hafnarfirði :)
12/06/2023

Ofboðslega fallegt 232 fm. 8 herbergja hús í fallegustu götunni í Hafnarfirði :)

Fasteignasalan TORG kynnir: Einkar fallegt, sérstakt og vel staðsett einbýlishús með 5 svefnherbergjum og auka 2ja herbergja íbúð á jarðhæð. Húsið stendur innst í botnlanga við jaðar Einarsreits í einstöku hverfi í hjarta Hafnarfjarðar og í göngufæri við miðbæinn.Í húsin...

04/02/2021

Sé að það eru alltaf einhverjir að kíkka inn á síðuna mína og þar er bara ekkert að frétta - hef ekkert sett inn síðan í apríl í fyrra. Vil bara láta vita að þó ég sé hljóð er ég enn að starfa sem fasteignasali þannig að hikið ekki við að leita til mín ef ykkur vantar aðstoð.

Ráð nr. 1: Byrjið að pakka – aftur og nýbúin!Hlustaði á daglegan fréttamannafund framvarðasveitarinnar og alltaf kemur e...
05/04/2020

Ráð nr. 1: Byrjið að pakka – aftur og nýbúin!
Hlustaði á daglegan fréttamannafund framvarðasveitarinnar og alltaf kemur eitthvað gott út úr því áhorfi. Nú var verið að hvetja okkur – hvert og eitt – til góðra verka. Svo ég fékk hugmynd. Nú þegar við erum öll búin að vera að hreinsa úr skápum og skúffum og jafnvel byrjuð á geymslunni (það er reyndar ráð nr. 5: Geymsla og Bílskúr – svo við tökum smá forskot á sæluna) þá sitjum við vafalaust uppi með eitthvað fallegt sem hentar okkur ekki lengur. Hvernig væri að stilla því upp, taka mynd af því, og auglýsa það til sölu, hér eða á hvaða síðu sem er, og láta síðan andvirðið allt eða að hluta til renna til einhverrar góðgerðarstarfsemi. Heimurinn þarf á okkur öllum að halda núna og jafnvel lítil gjöf getur orðið stór ef margir standa saman. Það er fullt af hjálparstofnunum hér heima sem þjóna þeim sem minna mega sín og þurfa nú sem aldrei fyrr meira fjármagn. Úti í hinum stóra heimi eru svo enn fleiri sem þarfnast hjálpar. Fyrir okkur sem eigum eitthvað aflögu er okkur gert ótrúlega auðvelt fyrir að hjálpa. Við getum bara farið inn á heimasíður hjálparstofnanna og lagt inn okkar skerf.
Mig langar að ríða á vaðið og byrja á því að bjóða til sölu þessar fallegu bækur (ég er tiltölulega dugleg að losa mig við aukadót en hef alltaf átt erfitt með að losa mig við bækur. Nú er tíminn!). Bækurnar heita LIVES of The Most Eminent Painters Sculptors and Architecs og voru fyrst gefnar út árið 1550 og skrifaðar af listamanni sem hét Vasari, sem reyndar aldrei varð frægur listamaður eins og draumar hans stóðu til heldur vegna skrifa sinna á þessum bókum. Þessi útgáfa er frá árinu 1979 og gefin út af Harry N. Abrams. Þetta eru afar fallegar bækur og eru myndir af listaverkunum sérprentaðar og límdar á blaðsíðurnar.
Nú er bara að bjóða 😊 Andvirði bókanna mun ég gefa til Fjölskylduhjálpar Íslands. Sá sem býður best fær bækurnar, gefur þá gefið andvirði inn á Fjölskylduhjálpina og sent mér kvittun og fær þá afhentar bækurnar. Engin skriffinska, ekkert vesen og peningarnar fara bara á rétta staði. Ef viðkomandi er ekki í Reykjavík gerum við bara viðeigandi ráðstafanir til að koma bókunum til kaupanda!
Vona að fleiri taki upp á þessu. Það væri gaman ef þið senduð mér upplýsingar um hvað þið selduð, fyrir hvað mikið og hvert þið gáfuð það. Ég skal skrá það allt í excel og birta skjalið á þessari síðu.
Endilega deilið þessu og komum af stað spennandi verkefni.

03/04/2020

Ráð nr. 3: Laga það sem laga þarf.
Um daginn sá ég þessa setningu: "Hugur minn og samúð er hjá öllum mönnunum sem eru búnir að segja við konurnar sínar árum saman: '"Ég laga þetta þegar ég hef tíma"" :)
Þetta er tíminn!!! Oft eru það lítil atriði sem þið vitið að þarf að laga en þið komið því ekki í verk. Ef þið vitið af því getið þið verið viss um að kaupendur munu rekast á það - og þá fáið þið mínus í kladda kaupenda. Lagið það sem laga þarf og nú þegar þið eruð svona mikið heima sjáið þið vafalaust eitthvað fleira sem betur mætti fara. Lagið það líka. Nú á tímum jafnréttis á þetta ekki einungis við eiginmenn. Að sjálfsögðu hjállpumst við að! Góða skemmtun :)

29/03/2020

Ráð nr. 2: Setjið ykkur í spor kaupenda!
RÝMI, BIRTA, RÖÐ OG REGLA!
Það er mjög forvitnilegt að setja sig í spor þess sem er að koma í fyrsta skipti í heimsókn. Hvað sér hann/hún öðru vísi en ég? Það er ágætt að byrja á forstofunni (reyndar útihurðinni), loka augunum og ímynda sér að maður sé að sjá þetta í fyrsta skipti. Hvað blasir við? Útiföt, útiskór? dót? húsgögn? Hér er aðalatriðið rými og birta, röð og regla, eins og reyndar alls staðar. Allt sem heftir það er til trafala. Ef forstofan er lítil má stækka hana með spegli en passið að setja aldrei spegil á móti úithurð (kastar orkunni beint út aftur skv. Feng Shui en það er önnur saga!). Svo er bara að gera þetta í hverju rými :)

25/03/2020

Í gær lagði ég til að þeir sem eru að bíða eftir því að setja íbúðir sínar í sölu myndu nýta tímann núna og byrja að pakka, Það var ráð nr. 1, þ.e. að fara í gegnum skúffur og skápa og byrja að losa sig við þar sem þeir hvorki vilja né þurfa á að halda á nýja staðnum. Þó ég sé ekki að flytja ákvað ég að nýta heimadaginn og hlýta mínum eigin ráðum og ákvað að taka baðskápinn í gegn. Ég ætla ekki að uppljóstra hvað ég fann marga varaliti og naglalökk en í skápnum voru m.a. 7 handáburðir, mjög praktískt núna, 4 fótakrem, alls konar andlitsserum o.fl. o.fl. sem ég nota nánast aldrei. Það er skemmst frá því að segja að úr skápnum kom heill kassi sem fer beint á Sorpu því allt var þetta meira eða minna útrunnið og alls ekki fallið til gjafa. En nú veit ég líka hvað er í skápnum :) Hvet ykkur eindregið til að fara í skápana hjá ykkur. það er mjög fróðlegt. Góða skemmtun :)
P.S. Ekki tímabært að gefa ráð nr. 2. Þetta fyrsta getur verið svoítið tímafrekt!

24/03/2020

Nú þegar við allt í einu sitjum uppi með tíma til að gera það sem okkur langar að gera datt mér í hug að kannski væri sniðugt fyrir þá sem ætla að fresta því að setja íbúðir sínar eða hús í sölu að skoða hvað er hægt að gera til að gera eignina söluvænlegri, og þar með að fá betra verð fyrir hana þegar að sölu kemur. Mörg okkar erum föst heima fullhress og vitum ekki alveg hvernig við eigum að eyða tímanum. Nú er komið verkefni. Get eiginlega lofað ykkur því að jafnvel þó þið gerið ekki annað en það sem ykkur finnst vera smæstu atriði, geta skipt máli þegar kemur að sölu.
Ráð 1: Byrjið að pakka!
Hvort sem þið eruð að minnka við ykkur eða að stækka þurfið þið að fara í gegnum búslóðina eins og hún leggur sig. Það er ekkert leiðinlegra en að taka upp dót í nýrri íbúð sem þjónar engum tilgangi lengur - ég tala af reynslu. Farið í gegnum alla skápa og skúffur, skoðið notagildi húsgagnanna, hvaða myndir eruð' þið með á veggjunum, hvaða föt passa ekki lengur, o.s.frv., o.s.frv. Fáið ykkur kassa eða stóra ruslapoka, sorterið, gefið, seljið eða hendið, þið ráðið, en þetta er það mikilvægasta sem þið getið gert. Um leið og þið hafið lokið við að skoða fyrstu skúffuna eða fyrsta skápinn vaknar löngun til að fara lengra, treystið mér, og þá er ekkert annað en að halda áfram. Helst þangað til þið hafið farið í gegnum allar skúffur og skápa. Góða skemmtun :)

Address

Garðatorgi 5
Garðabær
210

Telephone

+3548378889

Website

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Jóhanna Kristín Tómasdóttir, löggiltur fasteignasali posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Share

Category