Torcargo

Torcargo Torcargo er alhliða flutningafyrirtæki ThorShip er alhliða þjónustufyrirtæki í fraktflutningum.

Meðal þeirrar þjónustu sem við bjóðum upp á er flutningsmiðlun, umboðsþjónusta, skipamiðlun, ráðgjafaþjónusta og skjalagerð. ThorShip leitast við að bjóða upp á heildstæða og persónulega þjónustu sem jafnframt getur þjónað fjölbreyttum þörfum viðskiptavina okkar, hvort sem um er að ræða flutninga í lofti eða á sjó. Með traustum og öflugum samstarsaðilum erlendis getur ThorShip boðið upp á góða og

áreiðanlega þjónustu á samkeppnishæfu verði, meðal annars frá Evrópu, Asíu og Bandaríkjunum. Starfsfólk ThorShip kappkostar við að veita góða, örugga og sveigjanlega þjónustu sem byggir á samvinnu og trausti við viðskiptavini. Starfsfólk ThorShip býr yfir áralangri þekkingu og reynslu af fraktflutningum og getur því veitt áreiðanlega þjónustu, sniðna að þörfum viðskiptavina okkar.

Á heimasíðu okkar (www.thorship.is) er hægt að nálgast ýmsar hagnýtar upplýsingar um inn- og útflutning ásamt upplýsingum um aðra þjónustu sem við höfum uppá að bjóða, starfmenn okkar. Þá er einnig hægt að óska eftir tilboði í flutninga.

Cargow Thorship verður TorcargoSautján ára saga okkar í flutningsþjónustu Cargow Thorship einkennist af farsælum vexti o...
02/02/2025

Cargow Thorship verður Torcargo

Sautján ára saga okkar í flutningsþjónustu Cargow Thorship einkennist af farsælum vexti og stöðugt sterkari viðskiptasamböndum bæði hérlendis og erlendis. Grunnurinn að áætlunarsiglingum okkar hefur byggst upp í samstarfi og þjónustu við álverin, fyrst í Straumsvík og síðar einnig á Reyðarfirði. Hlutdeild okkar í almennum flutningum fyrir inn- og útflytjendur hefur aukist jafnt og þétt á undanförnum árum. Fyrir það mikla traust sem okkur hefur ávallt verið sýnt í þessari mikilvægu þjónustu erum við afar þakklát.

Nýtt nafn og merki fyrir meginhlutann af starfsemi okkar er hér með kynnt til leiks. Torcargo hefur augljósa skírskotun til eldri nafnanna í hinu sameinaða félagi, Thorship og Cargow. Þrumuguðinn Þór heldur sínum gamla velli í nýju nafni og ef grannt er skoðað má e.t.v. sjá að áhrifa hans gætir mögulega líka í nýju myndmerki félagsins. Þór er sagður sterkastur allra ása og verndari mannkyns. Það er góður félagsskapur.

Sautján ára saga okkar í flutningsþjónustu Cargow Thorship einkennist af farsælum vexti og stöðugt sterkari viðskiptasamböndum bæði hérlendis og erlendis. Grunnurinn að áætlunarsiglingum okkar hefur byggst upp í samstarfi og þjónustu við álverin, fyrst í Straumsvík og síðar ...

31/12/2022

Thorship | Cargow óskar viðskiptavinum, samstarfsaðilum og landsmönnum öllum gleðilegs nýs árs og farsældar á árinu 2023

30/12/2021

Thorship & Cargow óska viðskiptavinum, samstarfsaðilum og landsmönnum öllum gleðilegs nýs árs og farsældar á árinu 2022.

Þökkum viðskiptin á árinu sem er að líða.

Við bjóðum núna vikulegar viðkomur frá bæði Danmörku og Svíþjóð þar sem við munum geta sinnt Skandinavíu með enn betri h...
25/11/2021

Við bjóðum núna vikulegar viðkomur frá bæði Danmörku og Svíþjóð þar sem við munum geta sinnt Skandinavíu með enn betri hætti en áður.

Kynntu þér þjónustuna betur:

Nýjung í þjónustu

23/12/2020
Og Framúrskarandi!
26/10/2020

Og Framúrskarandi!

Við erum stolt að vera Fyrirmyndarfyrirtæki
19/10/2020

Við erum stolt að vera Fyrirmyndarfyrirtæki

PáskakveðjaThorShip sendir öllum viðskiptavinum sínum kærar kveðjur um páskana. Það er okkar von að þú njótir hátíðarinn...
08/04/2020

Páskakveðja

ThorShip sendir öllum viðskiptavinum sínum kærar kveðjur um páskana.
Það er okkar von að þú njótir hátíðarinnar með fjölskyldunni á þessum óvenjulegu tímum.

Jafnframt vekjum við athygli á því að skrifstofa okkar verður lokuð á eftirfarandi dögum:


9. apríl - Skírdagur
10. apríl - Föstudagurinn langi
13. apríl - Annar í páskum
23. apríl - Sumardagurinn fyrsti
1. maí - Verkalýðsdagurinn
21. maí - Uppstigningardagur

Kær kveðja,
Starfsfólk ThorShip

Mikilvægar upplýsingar varðandi COVID-19Í ljósi þeirrar óvissu sem uppi er í þjóðfélaginu varðandi COVID-19 viljum við e...
16/03/2020

Mikilvægar upplýsingar varðandi COVID-19

Í ljósi þeirrar óvissu sem uppi er í þjóðfélaginu varðandi COVID-19 viljum við endilega koma þeim skilaboðum á framfæri til okkar viðskiptavina að allar flutningaleiðir frá öllum svæðum eru opnar. Við leggjum mikla áherslu á afhendingaröryggi og er öll þjónusta hjá ThorShip óskert sem og afhending og dreifing til okkar viðskiptavina.

Við höfum tekið mikilvæg skref til að tryggja velferð starfsmanna og rekstraröryggi eins og kostur er. Má meðal annars nefna að fyrirtækinu hefur verið skipt í tvo hópa og starfar annar hópurinn að heiman, þrif hafa verið stórlega aukin og er nú sótthreinsað tvisvar á dag, þá hefur aðgengi verið takmarkað og er allur umgangur um vöruhús undantekningalaust bannaður.

Við fylgjumst náið með þróuninni og bregðumst við henni og munum halda okkar viðskiptavinum upplýstum hverju sinni eftir því sem nýjar upplýsingar koma fram.

Address

Selhella 11
Hafnarfjörður
221

Opening Hours

Monday 08:30 - 16:30
Tuesday 08:30 - 16:30
Wednesday 08:30 - 16:30
Thursday 08:30 - 16:30
Friday 08:30 - 16:00

Telephone

+3545113250

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Torcargo posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to Torcargo:

Share

Category