13/06/2026
LIND fasteignasala og Helga Pálsdóttir löggiltur fasteignasali kynnir virkilega fallega og rúmgóða 3.herbergja neðri sérhæð með sérinngangi í tvíbýlishúsi við Bjarkarás 15 á besta stað á Garðabæ. Stór verönd frá stofu með skjólveggjum til suðurs. Þvottahús og geymsla innan íbúðar. Einnig fylgir 4,6 m2 útigeymsla. Birt stærðar eignar er 142 m2 , þar af útigeymsla 4,6 m2.
Nánari lýsing eignar
Forstofa með flísalögðu gólfi og fataskáp.
Hol með parketi á gólfi .
Stofa og borðstofa er mjög björt og rúmgóð með parketi á gólfi með útgengi út stóra verönd með skjólveggjum til suðurs.
Eldhúsið er opið inn í stofu með innréttingu með efri og neðri skápum með góðu skápaplássi og graníti á borðum, keramik helluborð með viftuháf yfir, gert er ráð fyrir uppþvottavél og ísskáp í innréttingu
Þvottherbergi og geymsla er innaf eldhúsi, góð innrétting með skolvaski, flísar á gólfi.
Baðherbergið er rúmgott með flísalögðu gólfi og veggjum, baðkar, sturta, innrétting með granítborðplötu með tveimur vöskum, handklæðaofn og innfeld lýsing.
Hjónaherbergi er mjög rúmgott með parketi á gólfi og fataskáp.
Barnaherbergi með parketi á gólfi og fataskáp.
Útigeymsla ( 4,6 m2 ) með hillum.
Í sameign er sameiginleg hjóla- og vagnageymsla.
Framkvæmdir og endurbætur síðustu ára á íbúð.
Eigendur hafa lagt áherslu á gott viðhald og endurbætur á íbúðinni. Parket hefur verið pússað og lýst upp, flísar á vegg í eldhúsi málaðar í steingráum lit og skjólveggur reistur á verönd árið 2022. Þá var skipt um öll blöndunartæki á baðherbergi í júní 2026.
Á undanförnum árum hefur einnig verið ráðist í umfangsmiklar framkvæmdir á sameign hússins, þar á meðal endurbætur á þaki með endurnýjun blikklista og yfirferð á dúk, múrviðgerðir ásamt endurbótum á tröppum og svalagólfi, endurnýjun á hurðum í geymslu og íbúð, auk uppsetningar rafhleðslustöðva. Sameign hússins hefur því fengið gott viðhald á síðustu árum.
Stutt í alla þjónustu, s.s skóla, íþróttahús, sundlaug og verslanir. Bjarkarás 15 er virkilega falleg íbúð og vel staðsett í rólegu Ásahverfi í Garðabæ. Stutt í þjónustu og gott aðgengi að stofnbrautum í allar áttir. Allar upplýsingar um eignina veitir Helga Pálsdóttir fasteignasali í síma 822 2123 eða [email protected]
LIND fasteignasala og Helga Pálsdóttir löggiltur fasteignasali kynnir virkilega fallega og rúmgóða 3.herbergja neðri sérhæð með sérinngangi í tvíbýlishúsi við Bjarkarás 15 á besta stað á Garðabæ. Stór verönd frá stofu með skjólveggjum til suðurs. Þvottahús og geymsla i...