Heimar

Heimar Heimar skapa nútímalega, sjálfbæra borgarkjarna sem nærast á drifkrafti mannlegra samskipta.

Undanfarna mánuði hefur markvisst verið unnið að því að uppfæra vörumerki Egilshallar með það að markmiði að styrkja ásý...
16/06/2026

Undanfarna mánuði hefur markvisst verið unnið að því að uppfæra vörumerki Egilshallar með það að markmiði að styrkja ásýnd hússins og bæta upplifun gesta. Verkefnið hefur meðal annars falið í sér uppfærslu á lógói, endurskoðun á litavali og myndmáli, samræmingu hönnunar og endurbætur á vefsíðu.

Ný vefsíða Egilshallar er nú komin í loftið á www.egilsholl.is. Þar geta gestir kynnt sér fjölbreytta starfsemi hússins og þá þjónustu sem Egilshöll hefur upp á að bjóða, allt í nýju og nútímalegu umhverfi.

Samhliða þessari vinnu hefur einnig verið lögð áhersla á að gera þjónustu Egilshallar aðgengilegri og sýnilegri fyrir viðskiptavini. Nú geta gestir bókað tíma á skautasvellinu, í íþróttasalinn eða á fótboltavöllinn með einföldum hætti í gegnum bókunarkerfi Egilshallar á www.sinna.is/egilsholl.

Mikil gróska er í starfsemi Egilshallar um þessar mundir og fjölmörg spennandi verkefni eru fram undan. Við hlökkum til að taka á móti gestum í nýjum búningi og halda áfram að þróa þá fjölbreyttu þjónustu sem í boði er í húsinu.

Heimar hækka í einkunn í UFS mati Reitunar.👏Mat Reitunar endurspeglar hvernig fyrirtæki standa að umhverfismálum, félags...
09/06/2026

Heimar hækka í einkunn í UFS mati Reitunar.👏

Mat Reitunar endurspeglar hvernig fyrirtæki standa að umhverfismálum, félagslegri ábyrgð og stjórnarháttum og er ætlað að veita fjárfestum og öðrum hagaðilum samanburðarhæfan mælikvarða á sjálfbærni og ábyrgð fyrirtækja.

Í mati ársins eru Heimar sagðir framúrskarandi félag í sinni atvinnugrein og til fyrirmyndar meðal fasteignafélaga. Félagið er yfir meðaltali í öllum flokkum og hlýtur 85 stig en meðaltal markaðarins er 73 stig.

Þetta er hæsta einkunn sem Heimar hafa hlotið í UFS mati Reitunar og erum við hjá Heimum stolt af þessum árangri. Sjálfbærni hefur fest sig í sessi sem hluti af daglegri starfsemi og ákvarðanatöku félagsins. Þessi árangur endurspeglar þá vegferð sem félagið hefur verið á undanfarin ár og þá áherslu sem lögð hefur verið á ábyrgan og sjálfbæran rekstur.

Aðsókn í Smáralind heldur áfram að aukast og var Miðnæturopnun á miðvikudaginn sú stærsta sem haldin hefur verið í júním...
05/06/2026

Aðsókn í Smáralind heldur áfram að aukast og var Miðnæturopnun á miðvikudaginn sú stærsta sem haldin hefur verið í júnímánuði frá upphafi. ☘

Yfir 30.000 gestir heimsóttu Smáralind á miðvikudaginn, sem er 23% aukning frá sama viðburði í fyrra. Um er að ræða næst stærstu Miðnæturopnun í sögu Smáralindar. Aðeins Miðnæturopnunin í október á síðasta ári var stærri, um 1%.

Á síðustu sjö mánuðum hafa yfir 20 nýjar verslanir og veitingastaðir hafið starfsemi í Smáralind. Á miðvikudaginn opnaði Levi's endurnýjaða og stækkaða verslun sína, en fyrirtækið hefur verið með starfsemi í Smáralind í 23 ár. Sama dag opnaði Elko glæsilega verslun í nýju verslunarrými við Garðinn. Á næstu dögum munu Lindex og Epli einnig opna nýjar verslanir í húsinu.

Góð aðsókn hefur einkennt árið hingað til. Nýliðinn maímánuður var 32% stærri en maí í fyrra og það sem af er ári hefur aðsókn aukist um 24% miðað við sama tímabil árið 2025. Smáralind fagnar 25 ára afmæli á þessu ári og framundan eru fjölmörg verkefni, nýjungar og viðburðir. Þá munu fleiri nýir rekstraraðilar hefja starfsemi í húsinu á næstu misserum.

„Við göngum afar bjartsýn inn í sumarið og afmælisárið. Þessi árangur er fyrst og fremst til marks um sterkt samstarf við rekstraraðila okkar og þann kraft sem ríkir í húsinu. Við hlökkum til að halda áfram að þróa Smáralind sem áfangastað fyrir verslun, veitingar og afþreyingu,“ segir Sandra Arnardóttir, markaðsstjóri Smáralindar.

03/06/2026

Teymið okkar í Smáralind sér um rekstur stærstu verslunarmiðstöðvar landsins, þar sem tugir þúsunda gesta og um 100 leigutakar treysta á að allt gangi upp á hverjum einasta degi.

Á bak við það eru ótal verkefni, allt frá bílastæðum og öryggi til ræstingar, tæknikerfa og þjónustu við gesti og rekstraraðila. Slíkur rekstur krefst víðtækrar reynslu og hún er einmitt kjarninn í starfsemi Heima. Þekking sem við höfum byggt upp og höldum innan okkar eigin teymis.

Við erum fólkið á bak við Smáralind og erum stolt af því að halda hjartslættinum í Smáralind gangandi.

Egilshöll hefur nú verið endurvottuð samkvæmt BREEAM In-Use umhverfisvottunarkerfinu með einkunnina "Very Good".👏Samkvæm...
03/06/2026

Egilshöll hefur nú verið endurvottuð samkvæmt BREEAM In-Use umhverfisvottunarkerfinu með einkunnina "Very Good".👏

Samkvæmt vottunarkröfum fer endurvottun fram á þriggja ára fresti en í tengslum við endurvottunina hafa verið gerðar ýmsar umbætur á rekstri byggingarinnar. Þar á meðal voru loftgæðamælar og Snjallsorp sett upp í byggingunni. Þá hafa verið unnin fjölmörg möt og greiningar fyrir bygginguna, meðal annars orkuúttekt, uppfærð viðbragðs- og rýmingaráætlun, loftslagsáhættumat, flóðaáhættumat og öryggisáhættumat.

Um 42% af eignasafni Heima hefur hlotið umhverfisvottun en með BREEAM In-Use vottun fasteigna er m.a. hægt að greina þær áhættur sem hver bygging skapar fyrir umhverfið. Að auki eru þær staðfesting þriðja aðila á því að rekstraraðili fylgi bestu stöðlum og kröfum í rekstri fasteigna.

18/05/2026

Teymið okkar í Egilshöll sér um rekstur einnar stærstu íþrótta- og afþreyingarmiðstöðvar landsins, þar sem þúsundir gesta koma daglega til að æfa, keppa og njóta.

Dagurinn getur falið í sér allt frá því að halda ís og gervigrasi í toppstandi til þess að sjá um þrif, öryggi, orkunýtingu og viðhald á flóknum kerfum. Flókinn rekstur af þessari stærðargráðu krefst reynslu og samhæfingar, og sú þekking er einmitt það sem gerir Heima að sterkum rekstrar- og þjónustuaðila.

Við erum fólkið á bak við Egilshöll og erum stolt af því að skapa umhverfi þar sem fólk vill vera.

15/05/2026

Við erum stoltur bakhjarl og styrktaraðili HönnunarMars en við höfum frá árinu 2020 stutt við framkvæmd hátíðarinnar með ýmsum hætti. Í ár fór HönnunarMars fram dagana 6.–10. maí og fóru fjölmargar sýningar og viðburðir fram í rýmum Heima, bæði á Hafnartorgi og í Grósku.

HönnunarMars er eitt helsta kynningarverkefni íslenskrar hönnunar og arkitektúrs, bæði innanlands og á alþjóðlegum vettvangi. Hátíðin gegnir mikilvægu hlutverki í að efla sýnileika skapandi greina, stuðla að samtali og skapa vettvang fyrir nýjar tengingar milli hönnuða, fyrirtækja og samfélagsins í heild.

Hlutverk Heima er að byggja upp og rækta sterka borgarkjarna þar sem fólk kemur saman og mannleg samskipti fá að blómstra. Stuðningur við hátíð eins og HönnunarMars, þar sem mannlíf, menning og skapandi starfsemi mætast á kjarnasvæðum félagsins, fellur vel að þeirri sýn og við erum stolt af því að geta lagt okkar að mörkum.

13/05/2026

💥 Tengslafundur hjá Heimum í næstu viku 💥

Fasteignageirinn er að breytast hratt og auknar kröfur og áhersla á sjálfbærni kalla á nýja nálgun í rekstri, fjárfestingu og uppbyggingu. Á síðasta Tengslafundi fyrir sumarið fáum við tækifæri til að kafa ofan í þessa þróun með sérfræðingum frá fasteignafélaginu Heimar sem hefur markað sér skýra stefnu í átt að sjálfbæru borgarsamfélagi sem hugar að velferð íbúa jafnt sem umhverfis.

Dagskrá:

🔸 Sjálfbærnisaga Heima – Dagbjört Einarsdóttir, framkvæmdastjóri innri rekstrar og yfirlögfræðingur
🔸 Breytt umhverfi fasteignarekstrar og fjármögnunar – María Rúnarsdóttir , forstöðumaður sjálfbærni
🔸 Uppbygging snjallra fasteigna – Páll V Bjarnason, framkvæmdastjóri fjárfestinga

📅 20. maí frá 8:30 - 10:00
📍 Hagasmári 1, Kópavogi

👉 Fundurinn er opinn öllu starfsfólki aðildarfélaga Festu. Skráningarhlekkur í fyrstu athugasemd.

Minnum á birtingu samþykkt uppgjörs fyrir tímabilið 1.1.- 31.3.2026, eftir lokun markaða á morgun, þriðjudaginn 12. maí ...
11/05/2026

Minnum á birtingu samþykkt uppgjörs fyrir tímabilið 1.1.- 31.3.2026, eftir lokun markaða á morgun, þriðjudaginn 12. maí 2026.

Af því tilefni bjóða Heimar til opins kynningarfundar samdægurs kl. 16:15. Fundurinn verður haldinn í höfuðstöðvum félagsins í Smáralind, Hagasmára 1, 201 Kópavogi. Boðið verður upp á léttar veitingar.

Halldór Benjamín Þorbergsson, forstjóri Heima, mun kynna uppgjörið og svara spurningum að lokinni kynningu. Skráning á kynningarfundinn fer fram í gegnum netfangið [email protected].

Fundinum verður einnig varpað í gegnum netið á eftirfarandi slóð:

Af því tilefni bjóða Heimar til opins kynningarfundar kl. 16:15. Fundurinn verður haldinn í höfuðstöðvum félagsins í Smáralind, Hagasmára 1, 201 Kópavogi. 

Address

Hagasmári 1
Kópavogur
201

Opening Hours

Monday 09:00 - 17:00
Tuesday 09:00 - 17:00
Wednesday 09:00 - 17:00
Thursday 09:00 - 17:00
Friday 09:00 - 17:00

Telephone

+3545128900

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Heimar posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to Heimar:

Share

Category