16/06/2026
Hvað hefur 23 ára ferill kennt mér?
Í meira en tvo áratugi hef ég hjálpað fólki að kaupa, selja og skipta um heimili.
Hvort sem þú ert að kaupa fyrstu íbúðina, selja fjölskylduheimilið eða bæði kaupa og selja á sama tíma, þá er markmiðið einfalt:
Að gera flókið ferli einfalt og öruggt.
Ánægðir viðskiptavinir segja meira en þúsund orð og það sem skiptir mestu máli er hvað viðskiptavinirnir segja þegar viðskiptunum er lokið og hvort að þeir komi aftur og/eða vísi vinum og vandamönnum til þín.
201 - 5 stjörnu umsögn þar sem
Fólk hrósar sérstaklega:
✔️ Fagmennsku ✔️ Persónulegri þjónustu ✔️ Hröðum svörum ✔️ Góðri eftirfylgni
✔️ Lausnum þegar hlutirnir verða flóknir
Það eru forréttindi að elska ennþá starfið sitt eftir 23 ár og vera stöðugt að þróa nýjungar og bæta þjónustuna með hagi viðskiptavina og starfsfólks í huga.