Falleg og björt 124,2 fm 3ja herbergja íbúð með sérinngangi neðst við sjávarsíðuna í Kópavogi. Íbúðin er á jarðhæð í vönduðu fjölbýlishúsi með afgirtri verönd og sjávarútsýni. Byggingaraðili hússins er Sérverk ehf, sem lengi hefur verið á byggingarmarkaði og er þekkt fyrir að skila vönduðum íbúðum. Allar innréttingar eru sérsmíðaðar á verkstæði Sérverks. Húsið var byggt 2017. Einstaklega rúmgóð og
vel hönnuð íbúð með þarfir nútímafólks í huga. Íbúðin er 3ja herbergja íbúð á jarðhæð með stórri verönd til suðvesturs. Íbúðin er skráð 124.2 fm með geymslu sem er í íbúðinni. Íbúðin skiptist í forstofu, hol, geymslu, þvottahús, tvö baðherbergi með sturtu þar af eitt innaf hjónaherbergi, tvö svefnherbergi, alrými með eldhúsi, borðstofu og stofu. Íbúðin snýr í suður. Sérafnotaréttur lóðar er 2.37 m út frá horni hússins og með suðurhlið íbúðarinnar. Íbúðin er með vönduðum sérsmíðuðum innréttingum og tækjum. Ekki er stæði í bílageymslu með þessari íbúð.