23/10/2024
Desjamýri 13
Staðsetningin er tilvalin fyrir ýmiskonar smáiðnað og þjónustufyrirtæki sem þurfa gott aðgengi og bílastæði. Mosfellsbær stefnir á öfluga uppbyggingu atvinnusvæðis í bæjarfélaginu en Mosfellsbær er það sveitarfélag á höfuðborgarsvæðinu þar sem íbúum mun fjölga hlutfallslega mest á næstu árum.
Hröð uppbygging kallar á meiri og fjölbreyttari þjónustu. Desjamýri er í góðum tengslum við vegakerfið enda nálægt Vesturlandsvegi og um leið nálægt þjónustu- og verslunarkjarna Mosfellsbæjar.
Sjá nánar á www.desjamyri.is