Múlinn samvinnuhús

Múlinn samvinnuhús Múlinn Samvinnuhús er klasi þar sem fjölmörg fyrirtæki, einstaklingar og stofnanir eru með aðsetur. Sannkallað Samvinnuhús.

Ef ykkur vantar að leigja fundarsal,
eða vinnuaðstöðu, hafið þá samband: [email protected] eða 893-3234

Hér er einstaklega jákvæð frétt um starfsemi okkar í sjónvarpsfréttum og á vefsíðu RÚV. Við þökkum góða umfjöllun.Við ós...
29/12/2025

Hér er einstaklega jákvæð frétt um starfsemi okkar í sjónvarpsfréttum og á vefsíðu RÚV. Við þökkum góða umfjöllun.

Við óskum leigjendum okkar og viðskiptavinum gleðilegrar hátíðar og farsældar á nýju ári.

Við eigum nokkur laus rými ef ykkur vantar vinnuaðstöðu í frábæru samvinnuhúsi.

Fréttin er í kommenti.

Má bjóða þér/ykkur að leigja frábæra aðstöðu í Múlanum í Neskaupstað? Við eigum laus rými til útleigu, bæði fyrir einsta...
26/08/2025

Má bjóða þér/ykkur að leigja frábæra aðstöðu í Múlanum í Neskaupstað?
Við eigum laus rými til útleigu, bæði fyrir einstaklinga og skrifstofur allt að 55 fm2. Í Múlanum eru nú 20 fyrirtæki og stofnanir og hátt í 50 starfsmenn. Allar nánari upplysingar veitir Guðmundur R. Gíslason framkvæmdastjóri: [email protected] og 893-3234

Það er algengt að bæði einstaklingar og hópar óski eftir því að fá að skoða Múlann. Við sýnum Múlann með stolti þeim sem...
17/07/2025

Það er algengt að bæði einstaklingar og hópar óski eftir því að fá að skoða Múlann. Við sýnum Múlann með stolti þeim sem vilja skoða.

Í gær heimsótti okkur glæsilegur hópur, árgangur 1951 í Neskaupstað ásamt mökum. Þau voru að skoða það markverðasta í heimabænum og auðvitað vildu þau kíkja í Múlann. Þau voru að halda upp á 60 ára fermingarafmæli og eru búin að bóka heimsókn í Múlann á 70 ára fermingarafmælinu.
Takk fyrir komuna flotta fólk!

Viðbygging við Múlann var vígð við hátíðalega athöfn laugardaginn 31. maí og var hluti af hátíðarhöldum sjómannadagshelg...
04/06/2025

Viðbygging við Múlann var vígð við hátíðalega athöfn laugardaginn 31. maí og var hluti af hátíðarhöldum sjómannadagshelgarinnar í Neskaupstað.
Við vígsluna tóku til máls Guðmundur R. Gíslason framkvæmdastjóri SÚN og Múlans, Guðmundur Helgi Sigfússon sem hafði yfirumsjón með framkvæmdum, Alfa Freysdóttir frá Grafít, arkitekt Múlans, Elín Björg Ragnarsdóttir Fiskistofustjóri, Þorsteinn Sigurðsson forstjóri Hafrannsóknastofnunar og Jón Björn Hákonarson forseti bæjarstjórnar Fjarðabyggðar.
Það voru svo Jón Björn og Smári Geirsson stjórnarmaður í Múlanum sem klipptu á borða og opnuðu þar með glæsilega 750 m2 viðbyggingu. Hótel Hildibrand sá svo um veitingar auk þess sem Nestak og Afl buðu upp á veitingar í sínum rýmum.
Í máli Guðmundar framkvæmdastjóra Múlans koma m.a. fram að nú eru 20 fyrirtæki, stofnanir og félög í Múlanum og starfsmenn að nálgast 50. Þetta er sannarlega mikið ævintýri sem hefur gerst hraðar er nokkurn óraði fyrir. Múlinn tók til starfa í janúar 2021.
Saga þessa húss sem hýsir Múlann er líka merkileg og skemmtileg en í upphafi var þetta hús á bökkunum 220 m2 verslunarhúsnæði Kaupfélagsins Fram, tekið í notkun í árið 1980. Nú er húsnæðið orðið 1700 m2 og í eigu annars samvinnufélags eða Samvinnnufélags útgerðarmanna Neskaupstað sem í daglegu tali er nefnt SÚN.
Við óskum öllum leigjendum okkar innilega til hamingju með nýja og frábæra aðstöðu sem gerir góðan Múla enn betri. Við þökkum öllum þeim sem komu að verkinu, Guðmundi Sigfússyni, Ölfu og öllum verktökum fyrir frábært verk. Allt þetta hús ber svo sannarlega framkvæmdaaðilum fagurt vitni.

Meðfylgjandi eru myndir frá vígsludegi sem Guðmundur R og Alfa (Grafít) tóku.

Enn einum merkisáfanganum náðum við í vikunni þegar við fengum öryggisúttekt á efri hæðina og Origo og Pearl Iceland fen...
16/05/2025

Enn einum merkisáfanganum náðum við í vikunni þegar við fengum öryggisúttekt á efri hæðina og Origo og Pearl Iceland fengu afhent stórglæsilega aðstöðu.
Þá er búið að afhenda öll útleigð rými í viðbyggingunni og iðnaðarmenn um það bil að ljúka við lokafrágang.

Við óskum Origo og Pearl til hamingju með nýju aðstöðuna. Báðir aðilar voru fyrir í Múlanum en færðu sig um set og Matís stækkar um það rými sem þeir voru í. Nánar um það síðar.
Góða helgi!!!

Eins og Norðfirðingar og nærsveitamenn vita hefur Landsbankinn verið með afgreiðslu á skrifstofu SÚN undanfarið ár. Það ...
13/05/2025

Eins og Norðfirðingar og nærsveitamenn vita hefur Landsbankinn verið með afgreiðslu á skrifstofu SÚN undanfarið ár. Það var til að brúa bilið þangað til aðstaða væri tilbúin fyrir bankann í Múlanum. S.l. föstudag opnaði svo Landsbankinn glæsilega aðstöðu í Múlanum þar sem Lífeyrissjóðurinn Stapi var áður. Af því tilefni bauð bankinn upp á glæsilegar tertur bæði hjá SÚN og í Múlanum og þökkum við fyrir það.

Í sumar mun Norðfirðingurinn Adam Örn Guðmundsson vinna fullt starf hjá Landsbankanum í Múlanum. Fyrir utan það að sinna afgreiðslu á opnunartíma mun hann vinna fjarvinnu frá útibúi Landsbankans á Akureyri

Við bjóðum Landsbankann hjartanlega velkominn í Múlann.

Mikilvægum áfanga var náð nú síðasta dag aprílmánaðar þegar afhentar voru nýjar skrifstofur á neðri hæð viðbyggingarinna...
02/05/2025

Mikilvægum áfanga var náð nú síðasta dag aprílmánaðar þegar afhentar voru nýjar skrifstofur á neðri hæð viðbyggingarinnar. Afl, Nestak, Stapi lífeyrissjóður, Hafrannsóknastofnum, Matvælastofnun og Fiskistofa eru nú flutt inn í nýja aðstöðu. Við óskum nýjum og núverandi leigjendum innilega til hamingju með nýju skrifstofurnar.

Meðfylgjandi myndir voru teknar er framkvæmdastjóri Múlans, Guðmundur R. Gíslason afhenti lyklana formlega.

Eftir helgi flytur svo Lansbankinn inn í aðstöðuna sem Stapi var í áður og svo styttist í að efri hæð viðbyggingar verði tilbúin líka en þar verða Origo, Pearl og Eygló.

Við erum með lausar skrifstofur/vinnuaðstöðu í nýbyggingunni og 2 einstaklingsrými í eldri Múla ef þið hafið áhuga. Einnig bjóðum við upp á vinnuaðstöðu í opnu rými.

Föstudaginn 25. apríl flutti fyrsta fyrirtækið, Lífeyrissjóðurinn Stapi,  inn í viðbyggingu Múlans.Húsið er að verða til...
28/04/2025

Föstudaginn 25. apríl flutti fyrsta fyrirtækið, Lífeyrissjóðurinn Stapi, inn í viðbyggingu Múlans.
Húsið er að verða tilbúið til notkunar, verið er að leggja lokahönd á ljósauppsetningu, aðgangsstýrikerfi, loftræstikerfi og annan lokafrágang. Óvæntar tafir urðu á afhendingu glerhandriða fyrir stiga og svalir og því fylgir smávægileg töf á að taka efri hæðina í notkun. Það ætti þó að takast um miðjan maí ef allt gengur eftir.
Lokið var við öryggisúttekt sl. föstudag áður en fyrstu notendur fluttu inn.
Núna um mánaðarmótin april/maí verða rýmin á neðri hæð viðbyggingarinnar tekin í notkun.
Um miðjan maí gerum við svo ráð fyrir að afhenda þau rými á efri hæðinni sem búið er að gera leigusamninga um.

Búið er að klæða húsið að utan þar sem notað er lerki. VInna við þann hluta sem klæddur verður álplötum er hafin. Það fer því að nálgast verklok þar líka.
Gera má ráð fyrir að framkvæmdum við lóð og bílastæði verði svo lokið í júní.
Á myndunum má sjá að uppsetning álklæðningar er hafin og einnig þegar starfsmenn Stapa eru að koma sér fyrir á nýrri skrifstofu.

Nú er langt komið með að klæða með lerki utan á húsið. Einungis norðurhliðin eftir. Síðan kemur álklæðning á neðri hæðin...
04/04/2025

Nú er langt komið með að klæða með lerki utan á húsið. Einungis norðurhliðin eftir. Síðan kemur álklæðning á neðri hæðina framan á svölunum.
Framkvæmdir innanhúss ganga mjög vel, búið að leggja öll gólfefni og langt komið að setja upp glerveggi og innihurðar. Framkvæmdum við ljós og loftræstingu miðar vel og uppsetningu nánast lokið í skrifstofurýmum. Verið er að setja upp tenglarennur og brunaviðvörunarkerfi.

Framkvæmdir við viðbyggingu Múlans ganga mjög vel og nálgast nú lokametrana. Lerkiklæðning er komin á vesturhlið hússins...
22/03/2025

Framkvæmdir við viðbyggingu Múlans ganga mjög vel og nálgast nú lokametrana.
Lerkiklæðning er komin á vesturhlið hússins og farin að teygja sig yfir á suðurhliðina. Í framhaldi kemur svo álklæðning, svört og gul, á lægri bygginguna sem skagar fram úr þeirri hærri.
Inni er nánast lokið við að mála veggi, langt komið með að leggja stofnlagnir fyrir rafmagn og byrjað að setja upp tenglarennur á veggi. Það styttist í uppsetningu og frágangi ljósa í loftin.
Uppsetning kerfislofta er hafin og verið er að ljúka frágangi á loftræstikerfi í skrifstofurýmin.
Eftir helgi verður byrjað að leggja út gólfefni og þá styttist í að hægt verði að setja upp glerveggi og innihurðar. Uppsetning lyftu mun svo hefjast þegar gólfefni eru frágengin.
Samvinna verktaka er til fyrirmyndar og allir leggja sig fram um að skila góðu verki.

Austurbrú heldur úti síðu með upplýsingum um möguleika á óstaðbundnum störfum á Austurlandi. Múlinn er einn möguleiki en...
14/02/2025

Austurbrú heldur úti síðu með upplýsingum um möguleika á óstaðbundnum störfum á Austurlandi. Múlinn er einn möguleiki en þeir eru fleiri. Endilega kíkið á :

Á Austurlandi eru fjölmargir byggðakjarnar hver með sína sérstöðu. Við höfum undanfarið lært að fjölbreyttum störfum má sinna nánast hvar sem er og hvenær sem er sé aðgengi að interneti gott. Sífellt fleiri sjá tækifæri í því að breyta um umhverfi og prófa að vinna ann...

Áfram miðar framkvæmdum við Múlann. Nú er nánast búið að einangra húsið að utan, og vinna við festingar á klæðningu komi...
10/02/2025

Áfram miðar framkvæmdum við Múlann. Nú er nánast búið að einangra húsið að utan, og vinna við festingar á klæðningu komin af stað. Lerkiklæðningin er framleidd í Fljótsdal og helmingur hennar kemur á svæðið í dag.
Frágangi á þakpappa miðar vel og mun ljúka í þessari viku ef veður helst gott.
Byrjað er að setja hellur á svalagólf og mun því verða lokið um miðja viku.
Framkvæmdum innanhúss miðar vel, búið er að hólfa öll rými af, plötuklæðning komin á nánast alla veggi og framkvæmdir við að setja gifslagið á þá eru að fara af stað.
Verið er að tengja gólfhitalagnir og stefnt að því að hleypa hita á kerfið á morgun. Húsið hefur verið kynnt með hitablásurum hingað til. Rakastig er að nálgast ásættanleg mörk þannig að vinna við spörtlun og málun getur farið að hefjast á næstunni.
Uppsetning á loftræstilögnum gengur vel og langt komið að setja þær upp í öll skrifstofurými. Þá gengur vinna við raflagnir vel, flestar lagnaleiðir komnar og byrjað að leggja út strengi í stofna.

Address

Bakkavegur 5
Neskaupstaður
740

Telephone

+3548933234

Website

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Múlinn samvinnuhús posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to Múlinn samvinnuhús:

Share

Category