Prodomo fasteignasala

Prodomo fasteignasala Hafðu samband og fáðu ráðgjöf frá löggiltum fasteignasölum PRODOMO. PRODOMO fasteignasala er til húsa að Hafnargötu 15 í Reykjanesbæ.

Símanúmer fasteignasölunnar er 4204030. Eigandi og ábyrgðarmaður fasteignasölunnar er Lilja Valþórsdóttir, löggiltur fasteignasali. Starfsmenn fasteignasölunnar eru fjórir. Markmið starfsmanna PRODOMO fasteignasölu er að veita vandaða þjónustu á skilvirkan og traustan hátt. Starfsmenn fasteignasölunnar reyna eftir bestu getu að veita persónulega og góða þjónustu. Það er markmið starfsmanna fasteig

nasölunnar að bregðast alltaf fljótt við fyrirspurnum viðskiptavina okkar – þannig að fasteignaviðskiptin geti gengið hratt og örugglega fyrir sig.

PRODOMO fasteignasala kynnir 5 herbergja parhús á einni hæð með bílskúr að Brimdal 14, 260 Reykjanesbæ. Innangengt er in...
09/06/2026

PRODOMO fasteignasala kynnir 5 herbergja parhús á einni hæð með bílskúr að Brimdal 14, 260 Reykjanesbæ. Innangengt er inn í bílskúr og hægt er að ganga út á stóra viðarverönd bæði frá stofu og bílskúr. Einstaklega glæsileg eign byggð 2020. Innan við 10 mín gangur er í leikskóla og grunnskóla. Handan götunnar í hina áttina eru göngustígar við sjávarsíðuna og yndislegt umhverfi. Eignin er skráð hjá Þjóðskrá Íslands alls 185 m2. Íbúð er skráð 143,5 m2 og bílskúr 41,5 m2.

Eignin skiptist í forstofu, stofu, eldhús og búr innaf eldhúsi, fjögur svefnherbergi, baðherbergi, gestasalerni og bílskúr. Búið er að gera aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara í innréttingu innst í bílskúr. Þvottahús var áður inn af eldhúsi þar sem er búr í dag.

Nánari lýsing:
Forstofa er með ljósum flísum á gólfi og fataskáp. Frá forstofu er gengið inn í bílskúr, gestasalerni og inn í alrými íbúðar.
Gestasalerni er með flísum á gólfi, upphengt salerni og innréttingu við vask..
Stofa og borðstofa hafa parket á gólfi og er í opnu rými með eldhúsi Útgengi frá stofu út á stóra verönd með skjólveggjum, heitum pott og nýlegum geymsluskúr.
Eldhús er opið inn í stofu og skilur eyja á milli. Whirlpool spanhelluborð í eyju, í innréttingu er innfelld Whirlpool uppþvottavél, sjálfhreinsandi bakaraofn og vínrekki ofan við ísskáp. Steingráar borðplötur á innréttingu.
Hjónaherbergi er mjög rúmgott og hefur parket á gólfi.
Barnaherbergin eru þrjú, parket á gólfum og góðir fataskápar í þeim öllum, einu herberginu hefur verið breytt í fataherbergi og eru skápar úr hjónaherbergi í því herbergi.
Baðherbergi hefur flísar á gólfi og veggjum. Sturta með gleri, baðkar, upphengt salerni, svartur handklæðaofn og góð innrétting við vask.
Bílskúr er með epoxy á gólfi. Lagnagrind, rafmagnstafla og ljósleiðari í bílskúr. Varmaskiptir á vatninu. Rafmagn er 3-fasa. Sjálfvirkur hurðaopnari.
Aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara er innst í bílskúr og útgengi er út á stóra verönd frá bílskúr.

Garður/lóð framan við hús er hellulagt upphitað bílaplan, á hluta lóðar er grasflötur og aftan við hús til suðvesturs er stór verönd með skjólveggjum, heitum potti og 15 fm nýlegum geymsluskúr..

* Innfelld lýsing er í öllum rýmum íbúðarhúsnæðis.
* Gólfefni eru flísar og parket og flæðir parket á milli rýma án þröskulda.
* Gólfhiti og stýring í öllum rýmum.
* Í bílskúr er epoxy á gólfi.
* Allar innréttingar eru sérsmíðaðar, svarbrúnar og ná upp í loft. Engar höldur á skápum og lokast skúffur og skápar með ljúflokun.
* Útiljós eru með birtunema.

Glæsileg eign sem vert er að skoða

Allar nánari upplýsingar veitir:

Hákon Ó. Hákonarson
Löggiltur fasteignasali
420-4030 / 899-1298
[email protected]

PRODOMO fasteignasala kynnir í einkasölu góða þriggja herbergja endaíbúð á þriðju hæð í lyftuhúsi að Vallarbraut 6 í Nja...
29/05/2026

PRODOMO fasteignasala kynnir í einkasölu góða þriggja herbergja endaíbúð á þriðju hæð í lyftuhúsi að Vallarbraut 6 í Njarðvík. Íbúðin er fyrir 55 ára og eldri.

Nánari lýsing:
Forstofa / hol með parketi á gólfi og fataskáp.
Stofa og borðstofa með parketi á gólfi. Þaðan er útgengt á svalir.
Eldhús með parketi á gólfi. Þar er góð innrétting, ofn í vinnuhæð, helluborð og háfur. Gert er ráð fyrir uppþvottavél. Inn af eldhúsi er bjart rými sem hægt er að nýta á ýmsa vegu.
Hjónaherbergi með parketi á gólfi og fataskáp.
Herbergi með parketi á gólfi.
Baðherbergi var endurnýjað fyrir nokkrum árum. Þar eru flísar á gólfi og veggjum að hluta, ljós innrétting og sturta. Aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara er á baðherbergi.
Geymsla er í sameign, dúkur á gólfi og hillur.

Björt og falleg eign með mikilli lofthæð. Sameign er mjög snyrtileg.

Allar nánari upplýsingar veitir Lilja Valþórsdóttir Löggiltur fasteignasali í síma 420-4030 / 860-6886 eða [email protected] og Hákon Ó. Hákonarson Löggiltur fasteignasali í síma 899-1298 eða [email protected]

PRODOMO fasteignasala kynnir í einkasölu góða fjögurra herbergja enda íbúð á annarri hæð að Dalsbraut 18 í Njarðvík.Góð ...
09/05/2026

PRODOMO fasteignasala kynnir í einkasölu góða fjögurra herbergja enda íbúð á annarri hæð að Dalsbraut 18 í Njarðvík.
Góð staðsetning þar sem nýr grunn- og leikskóli er í göngufæri.

Nánari lýsing - íbúð 206:
Forstofa með flísum á gólfi og fataskáp.
Stofa, eldhús og borðstofa er í opnu rými. Þar er parket gólfi og útgengt á svalir. Stílhrein eldhúsinnrétting, ofn í vinnuhæð. Gert er ráð fyrir uppþvottavél.
Hjónaherbergi er rúmgott, parket á gólfi og góður fataskápur.
Barnaherbergin eru tvö og hafa bæði parket á gólfi og fataskáp.
Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum. Þar er góð innrétting, upphengt salerni, handklæðaofn og sturta. Aðstaða fyrir þvottavél og þurkara er á baðherbergi
Sér geymsla í sameign ásamt sameiginlegri hjóla/vagna geymslu.

Merkt bílastæði fylgir eign. Tvær hleðslustöðvar eru við fjölbýlishúsið.

Texti á myndir:
Þrjú svefnherbergi
Endaíbúð 2. Hæð
Frábær staðsetning við Stapaskóla
Merkt bílastæði og hleðslustöðvar

PRODOMO fasteignasala kynnir í einkasölu góða fjögurra herbergja enda íbúð á annarri hæð að Dalsbraut 18 í Njarðvík.Góð ...
09/05/2026

PRODOMO fasteignasala kynnir í einkasölu góða fjögurra herbergja enda íbúð á annarri hæð að Dalsbraut 18 í Njarðvík.
Góð staðsetning þar sem nýr grunn- og leikskóli er í göngufæri.

Nánari lýsing - íbúð 206:
Forstofa með flísum á gólfi og fataskáp.
Stofa, eldhús og borðstofa er í opnu rými. Þar er parket gólfi og útgengt á svalir. Stílhrein eldhúsinnrétting, ofn í vinnuhæð. Gert er ráð fyrir uppþvottavél.
Hjónaherbergi er rúmgott, parket á gólfi og góður fataskápur.
Barnaherbergin eru tvö og hafa bæði parket á gólfi og fataskáp.
Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum. Þar er góð innrétting, upphengt salerni, handklæðaofn og sturta. Aðstaða fyrir þvottavél og þurkara er á baðherbergi
Sér geymsla í sameign ásamt sameiginlegri hjóla/vagna geymslu.

Merkt bílastæði fylgir eign. Tvær hleðslustöðvar eru við fjölbýlishúsið.

PRODOMO fasteignasala kynnir í einkasölu nýlegt og glæsilegt parhús með fjórum svefnherbergjum að Huldudal 21 í Reykjane...
19/04/2026

PRODOMO fasteignasala kynnir í einkasölu nýlegt og glæsilegt parhús með fjórum svefnherbergjum að Huldudal 21 í Reykjanesbæ.

Um er að ræða 175,5 fm hús og þar af er bílskúr 32,5 fm byggt 2024. Húsið samanstendur af fjórum svefnherbergjum, baðherbergi, eldhús og stofa í einu stóru opnu rými, sjónvarpsholi, þvottahúsi og bílskúr.

Nánari lýsing:
Forstofa hefur flísar á gólfi og góðan fataskáp
Eldhús er opið við stofu. Eldhúsinnréttingin er frá HTH og er annars vegar með ljósri mokka filmu og hins vegar úr dökkri eik. Innbyggður ísskápur, uppþvottavél, helluborð og bakaraofn.
Svefnherbergin eru fjögur og öll mjög rúmgóð. Fataskápar í öllum herbergjum frá HTH.
Baðherbergi er með flísum á gólfi og veggjum, innrétting frá HTH, baðkar, sturta og hurð út á verönd.
Þvottahús er með innréttingu frá HTH og vaski, gert er ráð fyrir þvottavél og þurrkara í innréttingu í vinnuhæð
Bílskúr er með epoxy á gólfi.
Lóð er frágengin með steyptum stéttum að framan með snjóbræðslu og verönd að aftan með skjólveggjum og heitum pott.

*Gólfsíðir gluggar í alrými.
*Aukin lofthæð
*Innréttingar í eldhúsi, á baðherbergi og fataskápar frá HTH.Innihurðir frá Birgisson
*Hiti er í öllum gólfum hússins.
*Rafmagnshleðslustöð
*60 fm verönd ásamt heitum potti

Stutt er í nýlegan Stapaskóla, leikskóla, íþróttahús og sundlaug.
Aðeins 20 mín að keyra á höfuðborgarsvæðið.

PRODOMO fasteignasala kynnir í einkasölu gott einbýlishús að Krossholti 9 í Keflavík.Eignin er skráð 163 m2, þar af er b...
15/04/2026

PRODOMO fasteignasala kynnir í einkasölu gott einbýlishús að Krossholti 9 í Keflavík.
Eignin er skráð 163 m2, þar af er bílskúr skráður 29 m2. Frábær staðsetning þar sem stutt er í skóla, leikskóla og íþróttamannvirki.

Nánari lýsing:
Forstofa með flísum á gólfi og fataskáp.
Gestasalerni með flísum á gólfi og veggjum að hluta, þar er góð innrétting.
Stofa og borðstofa með parketi á gólfi,
Eldhús með parketi á gólfi. Innrétting með góðu skápa og vinnuplássi, innbyggð uppþvottavél og ofn í vinnuhæð.
Herbergisgangur með parketi á gólfi.
Hjónaherbergi með parketi á gólfi. Þar er fataskápur.
Barnaherbergin þrjú eru með parketi á gólfum, fataskápur er í einu þeirra. Eitt herbergjanna er staðsett inn af þvottahúsi.
Baðherberig með flísum á gólfi og veggjum.
Þvottahús með flísum á gólfi. Þar er sturtuklefi. Útgengt er á baklóð frá þvottahúsi.
Bílskúr með máluðu gólfi. Fyrir aftan hann er köld geymsla.

Innkeyrsla er hellulögð og í henni er snjóbræðsla. Einnig er snjóbræðsla í hluta af stétt sem liggur að inngangi hússins.

Allar nánari upplýsingar veita Lilja Valþórsdóttir Löggiltur fasteignasali í síma 420-4030 / 860-6886 eða [email protected] og Hákon Ó. Hákonarsson Löggiltur fasteignasali í síma 420-4030 / 899-1298 eða [email protected]

PRODOMO fasteignasala kynnir í einkasölu 165 fm einbýlishús á frábærum stað í Keflavík.Um er að ræða einbýlishús með þre...
14/04/2026

PRODOMO fasteignasala kynnir í einkasölu 165 fm einbýlishús á frábærum stað í Keflavík.
Um er að ræða einbýlishús með þremur rúmgóðum svefnherbergjum og 35,6 fm bílskúr í Holtaskólahverfi í Keflavík þar sem stutt er í skóla, leikskóla og íþróttamannvirki ásamt flestri þjónustu.
Eignin skiptist í forstofu,hol,eldhús,baðherbergi, stofu, þrjú svefnherbergi, þvottahús og bílskúr. Einnig er geymsluloft yfir eigninni með gluggum sem bíður uppá ýmsa möguleika.

***Eignin getur verið laus til afhendingar fljótlega***

Nánari lýsing:
Forstofa hefur parket á gólfi, frá forstofu er inngengt í geymslu þar sem er stigi til að fara uppá loft.
Hol hefur parket á gólfi
Stofa/borðstofa hefur parket á gólfi
Eldhús hefur parket á gólfi og gamla innréttingu
Baðherbergi hefur innréttingu við vask, salerni og baðkar með sturtu.
Herbergin þrjú eru öll mjög rúmgóð með parket á gólfi.
Þvottahús hefur málað gólf og hurð út á baklóð
Bílskúr hefur rafmagnsopnun, hurð hefur verið endurnýjuð, skúr einangraður og klæddur fyrir nokkrum árum.

Búið er að endurnýja einhverja glugga og einnig útidyrhurð.
Rafmagnstafla endurnýjuð fyrir stuttu.
Neysluvatnslagnir endurnýjaðar að hluta.
Járn á þaki íbúðarhús endurnýjað en járn á bílskúr lélegt.
Verönd og skjólveggir nýlegir.

Allar nánari upplýsingar veitir:

Hákon Ó. Hákonarson
Löggiltur fasteignasali
420-4030 / 899-1298
[email protected]

PRODOMO fasteignasala kynnir í einkasölu glæsilegt endaraðhús með fjórum svefnherbergjum að Efstaleiti 55 í Keflavík.Um ...
11/04/2026

PRODOMO fasteignasala kynnir í einkasölu glæsilegt endaraðhús með fjórum svefnherbergjum að Efstaleiti 55 í Keflavík.
Um er að ræða 138 fm og þar af er bílskúr 36 fm, eignin skiptist í forstofu, bílskúr, eldhús, stofu/borðstofu, fjögur svefnherbergi og baðherbergi.
Alrýmið er opið og bjart, mikil lofthæð.

** Frábær staðsetning þar sem stutt er í skóla, leikskóla, íþróttamannvirki sem og flesta þjónustu **

Nánari lýsing:
Forstofa rúmgóð með flísum á gólfi, þar er gólfhiti. Frá forstofu er innangent í bílskúr.
Hol með parketi á gólfi.
Eldhús var allt endurnýjað 2021 og hefur parket á gólfi, stílhrein innrétting með innbyggðri uppþvottavél og ísskáp, marmari á borðum.
Stofa / borðstofa með parketi á gólfi. Þaðan er útgengt á verönd.
Barnaherbergin eru þrjú og hafa þau öll parket á gólfum og er hurð út á baklóð úr einu þeirra.
Hjónaherbergi er rúmgott og hefur parket á gólfi, góðan fataskáp og hurð út á baklóð.
Baðherbergi var allt endurnýjað 2021. Þar eru flísar á gólfi og veggjum, falleg innrétting, kvarts borðplata, upphengt salerni, baðkar, sturta og handklæða ofn. Gólfhiti er á baðherbergi.
Bílskúr er 36 m2, þar eru flísar á gólfi og gott geymsluloft ásamt þvottahúsinnréttingu.
Bílaplan og stétt er steypt, hiti er í plani. Hleðslustöð er við skúr og fylgir hún með.
Lóð er snyrtileg, graslögð að aftan og nýleg verönd að framan með skjólveggjum og heitum pott sem hefur Danfoss stýringu.

*** Eldhús endurnýjað 2021
*** Öll tæki í eldhúsi ný 2021
*** Baðherbergi endurnýjað 2021
*** Öll gólfefni nema á skúr síðan 2021
*** Allar innihurðar sérsmíðaðar 2021
*** Bílskúrshurð og opnari 2023
*** Pallur og verönd 2022
*** Svalahurð úr stofu endurnýjuð

Snyrtileg eign á frábærum stað í Keflavík sem vert er að skoða

Allar nánari upplýsingar veita:

Lilja Valþórsdóttir
Löggiltur fasteignasali
420-4030 / 860-6886
[email protected]

Hákon Ó. Hákonarson
Löggiltur fasteignasali
420-4030 / 899-1298
[email protected]

20/03/2026

Address

Hafnargata 15
Njarðvík
230

Opening Hours

Monday 09:00 - 16:00
Tuesday 09:00 - 16:00
Wednesday 09:00 - 16:00
Thursday 09:00 - 16:00
Friday 09:00 - 16:00

Telephone

+3544204030

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Prodomo fasteignasala posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to Prodomo fasteignasala:

Share

Category