29/04/2026
Komdu og skoðaðu lausar lóðir hjá okkur í Birkilandi í Mývatnssveit. Hér er einstök náttúra, landslag og friðsæld.
Birkiland er glæsileg sumarhúsabyggð í skjólgóðu birkivöxnu hrauni og er útsýnið þaðan einstaklega fallegt. Í sveitinni eru miklir möguleikar til alls konar útivistar og náttúruskoðunar hvort sem er að vetri eða sumri, akandi, fótgangandi, á reiðhjóli eða gönguskíðum. Stutt er í þjónustu í sveitinni ss. verslun, íþróttamiðstöð, bílaverkstæði, apótek og heilsugæslu. Fjölbreytt afþreying er í boði á svæðinu eins og Jarðböðin, golfvöllur, skíðasvæði ásamt úrvali veitingastaða og afþreyingarfyrirtækja. Vegalengdir til næstu þéttbýlisstaða eru 85 km til Akureyrar, 56 km til Húsavíkur og 170 km til Egilsstaða.
Fyrir frekari upplýsingar hafið samband í tölvupósti á [email protected] eða í síma 848-9338.