06/05/2026
Til sölu heil húseign með 12 íbúðum á besta stað í miðbæ Reykjavíkur. Einstakt tækifæri til að eignast fullbúna fasteign á einu sterkasta útleigusvæði landsins.
Fárfestingatækifæri í Þingholtunum.
Húsið er fjögurra hæða auk kjallara að hluta, steyptir útveggir og loftaplötur, báruáli er á þaki, útveggir eru einangraðir að utan og klæddir með vandaðri álklæðningu sem tryggir viðhaldslétta byggingu.
Birt stærð byggingarinnar er 703m2 sem skiptist í 12 sjálfstæðar íbúðareiningar frá 48m2 - 68m2.
Einstök staðsetning: Hér nýtur þú hins sjaldgæfa jafnvægis í rólegu og sjarmerandi hverfiskjarna Þingholtanna, með iðandi mannlíf miðbæjarins handan við hornið.
Skólavörðustígur og Laugavegur eru aðeins í tveggja mínútna göngufjarlægð.
Harpa, Þjóðleikhúsið, Hljómskálagarðurinn og Reykjavíkurtjörn eru innan við 5 mínútna göngufjarlægð, þessi staðsetning bíður upp á allt það besta sem miðbærinn hefur upp á að bjóða.
Byggingin hefur ávallt fengið stöðugt og gott viðhald. Íbúðarhótel hefur verið rekið í húsinu frá 2008 við góðan orðstír. Eignin selst með öllum búnaði þ.e.a.s. innréttingum, rúmum og búnaði, fullbúin rekstrareining til útleigu og búsetu.
Sjaldgæft tækifæri til að eignast fullbúna eign á einu sterkasta útleigusvæði landsins.
12 sjálfstæðar tekjueiningar.
Sveigjanlegt rekstrarform.
Miðbæjarstaðsetning með stöðugri eftirspurn.
Staðsetning með sterka verðþróunarsögu.
Traust langtíma fjárfesting.
https://www.mbl.is/fasteignir/fasteign/1669005
Nánari upplýsingar gefur seljandi í síma 786-1200