Fasteignasalan Tröð

Fasteignasalan Tröð Tröð ...... slóðin að eigninni þinni!

29/04/2023

Lifðu betur

26/08/2022

I’ve been the happiest since I’ve had children.
I’ve also been at my lowest.
I’m a much better version of myself.
I also haven’t always liked what I’ve seen when mirrors have been held up to me.
I’ve never been in more company.
And at times never felt so lonely.
Some days I don’t want to end.
Some days I wish away, oh and the guilt from feeling that when they grow so fast.
I’ve never been so sure of who I’m meant to be.
I’ve never wondered so much who I am.
I’ve never felt closer with my husband.
But at times, I’ve never felt more distant.
I believe in myself, I trust myself.
I’ve questioned myself and doubted myself.
I always want to be better for them.
But I’ve yelled and cried and wished I’d handled certain situations better.
I’ve never loved so hard and so fiercely.
And I’ve never felt so vulnerable.
I’ve never been more broken.
And I’ve never been more complete.
I’ve never smiled so much.
I’ve never cried so much.
I’ve never craved alone time more.
But when I am I always feel like somethings missing, like an arm.
I’ve never been so excited to watch them grow.
And simultaneously wished they’d stay little forever.
Some days I feel like I’ve achieved nothing.
But as I think of them at night, I know I’ve achieved everything.
I’ve never looked forward to so much.
And I’ve also, never looked back.
It’s one beautiful contradiction.
A journey of wrong turns that are probably still right.
And dreams of the future even if you don’t get enough sleep to dream.
Exhaustion but effortless love.
The hardest and most rewarding thing ever.
Motherhood. ✨
……………………………………….
✍🏼: Written by: Jess Urlichs, Writer
📸: O Trocatintas

10/05/2022

Að kjarna sig – viðvera í vatni

Sjálfseflandi iðkun

Fátt kann að reynast mörgum okkar jafn mikilvægt og gagnlegt í hröðum og oft krefjandi heimi eins og það að iðka reglulega það sem kalla mætti kjörnun. Auðvitað eru til margar fljölbreyttar leiðir til að kjarna sig - aðalatriðið er þó kannski að finna leið sem er ákjósanleg fyrir okkur sjálf.

Að kjarna sig virðist geta elft og styrkt okkur í flestu öðru sem við gerum og verður vægi þess að iðka reglulegra kjörnun líklega seint upptalið. Það mætti segja að við séum sjálf okkur eigin helsta auðlind sem við höfum til umráða og er kjörnun ein leiðin til að nýta hana sem best. Líklega erum við sjálf stærsti lykillinn af því sem við þurfum og viljum og öllum þar að lútandi lausnum og leiðum. Þess vegna mætti líta svo á að allt sem styður og greiðir aðganginn að okkur sjálfum sé auðlind. Allt sem greiðir okkur aðgang að því sem skiptir lífi okkar máli í raun mætti því teljast verðmætt og gagnlegt verkfæri - tækifæri til bætra lífsgæða hugsanlega.

Það mætti ætla að heimilislíf, vinnustaðir, umhverfið og allt annað sem við eigum erindi við njóti góðs af þeirri vinnu og þeim tíma sem við leggjum í okkur sjálf. Þeirri kjarngóðu iðkun að efla sig í því að vera við einfaldlega. Beina athyglinni að því sem skiptir lífi okkar máli í raun og lifa útfrá því sem við sjálf veljum og viljum, eins og mögulegt er. Það er auðvitað stöðugt ferli – lífstill sem fleiri og fleiri virðast sjá hag sinn í að leggja sig fram í að tileinka sér. Kannski er þó kjarni málsins sá að ætla sér það einfaldlega að rækta okkar sjálf – ætla sér að iðka það að kjarna sig og vera við.

Allskyns aðferðir til kjörnunar hafa verið iðkaðar og virkjaðar í gegnum árþúsundir af mannkyninu í blæbriðgum ólíkra menningarheima. Við þurfum þó ekki að skilja þessar aðferðir til hlítar til að ná fram þeim jákvæða og lífsgæða styðjandi áhrfium sem slík iðkun hefur í för með sér. Margt sem þótti mörgum helst til þokukennt fyrir ekki löngu síðan, er þó vel hægt að ústkýra með nútíma skilningi. Í dag eru kunnugustu og vinsælustu leiðirnar til að kjarna sig t.d hugleiðsla, núvitundar- og öndunaræfingar, nudd, kæling, líkamsrækt, fjallgöngur, jóga, persónuleg skrif, útivera, góður tími í markþjálfun og þannig mætti áfram telja.

Það sem allar þessar aðferðir eiga sameiginlegt er að þær styðja okkur í iðkun eigin lífsorku, sjálfsvirði, sjálfsvirðingu og eru því það sem mætti kalla sjálfseflandi í eðli sínu. En það er einfaldlega nýtingin á eigin athygli, lífsorku og sjálfsvirði sem höfum hvert og eitt aðgang að sem við erum að vinna með þegar við veljum að kjarna okkur. Það að kjarna sig á einhvern hátt mætti segja að ætti í raun erindi við alla á einhvern hátt.

Auðlind sem styður auðlind

Hér á landi er einstaklega mikið og gott aðgengi að vatni sem hægt er að nýta til eigin lífsgæða – það má halda því á lofti sem eiginleg forréttindi. Einn af eiginleikum vatnsins er að þar myndast af náttúrunnar hendi kjörskilyrði til að kjarna sig, eins og fjallað er um í bókinni ,,hinn blái hugur".. Jafnvel að fara út í göngutúr nálægt vatni eftir krefjandi vinnudag getur reynst mörgum kjarnandi iðkun. Viðvera í vatninu sjálfu er enn drýgri kostur er kemur að róandi áhrif á taugakerfið og hugann, sem auðveldar okkur vinnuna mikið að vera til staðar og stilla okkar af.

Að lokum eru það vatnsmeðferðirnar sem er ekki eins algengt fyrirbæri eins og ætla mætti á heimsvísu, kannski vegna þess að heitt vatn til slakandi viðveru er sjaldgæf auðlnd – forréttindi í raun. Vatnsmeðferðir sem við höfum aðgang að hér á landi er nálgun þar sem við virkjað er til hlítar samband vatns við líkama og huga.

Flotmeðferðin íslenka er eitt af því sem sprottið hefur af þessari ofgnótt vatns hér á landi. Þar blasir við kannski óvænt og nýleg aðferð til kjörnunar sem rís uppúr þeirri sérstöðu að eiga aðgang að eins miklum jarð- og vatnsvarma eins og raun ber vitni. Flotmeðferð er aðferð sem nýtir til fulls eiginleika vatnsins og dregur saman margar aðferðir til kjörnunar samtímis og er útkoman oft eftir því - sér í lagi ef það er ásetningurinn og iðkunin sem höfð er að leiðarljósi.

Vatn er auðlind sem nýtist sérlega vel í því viðvarandi ferli að iðka það að kjarna okkur reglulega. Auðlind sem í mörgum tilvikum virðist greiða aðganginn að okkar allra helstu auðlind – okkur sjálfum.

Höfundur er flotþerapisti, heilsunuddari
og markþjálfi

Má bóka í flotmeðferð hér:
https://forms.gle/bJhD1i3Gwe5wqtyU9

Address

Skipholt 50b
Reykjavík
105

Opening Hours

Monday 09:00 - 17:00
Tuesday 09:00 - 17:00
Wednesday 09:00 - 17:00
Thursday 09:00 - 17:00
Friday 09:00 - 17:00

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Fasteignasalan Tröð posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Share