Ægisgata 7 - 101 Rvk

Ægisgata 7 - 101 Rvk vinnustofur, geymslur, lagerpláss til leigu

Vinnustofur til leigu, ásamt geymslu- og lagerrými.Í húsinu eru nú um 50 manns með vinnustofur á fjórum hæðum á ýmsum sv...
10/04/2026

Vinnustofur til leigu, ásamt geymslu- og lagerrými.
Í húsinu eru nú um 50 manns með vinnustofur á fjórum hæðum á ýmsum sviðum. Lifandi og nærandi vinnuumhverfi.🤗 Nokkur rými eru laus strax.
Hafið samband: [email protected], Haukur s. 690 0022 eða FB-skilaboð.
_________________________

Coworking studios for rent, along with storage and warehouse space.
The building currently houses around 50 people with studios on four floors, working across a variety of fields. A lively and supportive working environment. 🤗 A few spaces are available immediately.
Contact: [email protected], Haukur, tel. 690 0022 or pm.

Sæl veriði, við erum með húsið á Ægisgötu 7 ásamt Nýlendugötu 9 og langar að segja aðeins frá þeim í kjölfar nýlegrar um...
28/09/2022

Sæl veriði, við erum með húsið á Ægisgötu 7 ásamt Nýlendugötu 9 og langar að segja aðeins frá þeim í kjölfar nýlegrar umfjöllunar í Morgunblaðinu.

Það eru engar breytingar utanhúss að fara í gang á næstu tveimur árum að minnsta kosti. Einungis lagfæringar. Við erum viss um að húsið muni vera hverfinu til sóma og í góðri sátt við nærumhverfið. Við erum núna með svipaða starfsemi í Laugalæk og Vitastíg/Frakkastíg og hefur samstarf við íbúa gengið mjög vel þar 🙂 Bílastæðamál eða rútuferðir hafa ekki verið vandamál.

Ægisgata 7 stóð tóm í talsverðan tíma eftir að hafa verið skjalageymsla fyrir Alþingi. Það hefur verið basl að láta leigu standa undir rekstrarkostnaði eins og sjá má á ársreikningum okkar og því var húsið á sölu. Nú er komið mjög skemmtilegt líf í húsið með nýjum leigjendum. Við erum hægt og rólega að vinna að framtíðar breytingum í samstarfi við Reykjavíkurborg til að húsið sé sjálfbært fjárhagslega. Ægisgata er aðalgata og er gert ráð fyrir atvinnustarfsemi á þeim.

Það er nokkrum sinnum búið að sækja um að breyta húsinu í íbúðir en kvaðir borgarinnar um bílastæði og íbúðastærðir og svalir hafa ekki hentað þessu húsi. Slíkar breytingar hefðu ekki staðið undir sér og skemmt útlit með svölum og bílakjallara. Þess vegna erum við nú að horfa til gististarfsemi í bland við vinnustofur listafólks. Ætlunin er að varðveita útlit og sögu hússins eins og kostur er. Hugsanlega mun starfssemin þróast í hægum skrefum yfir mjög langan tíma.

Kveðjur
Ægisgerði ehf
Alfreð, Haukur og Björn
[email protected]

Vinnustofa eða geymsla í kjallara um 164 m2 (196 m/sameign), þetta er sá hluti kjallara sem er fjær Ægisgötu.  Gluggalau...
10/06/2022

Vinnustofa eða geymsla í kjallara um 164 m2 (196 m/sameign), þetta er sá hluti kjallara sem er fjær Ægisgötu. Gluggalaust. Sameiginlegt eldhús og klósett í öðrum hluta hússins. Leigutími 12 mán eða lengur.

Vinnustofa í kjallara um 155 m2 (m/sameign 182), þetta er sá hluti kjallara sem er nær Ægisgötu.Sameiginlegt eldhús og k...
10/06/2022

Vinnustofa í kjallara um 155 m2 (m/sameign 182), þetta er sá hluti kjallara sem er nær Ægisgötu.
Sameiginlegt eldhús og klósett í öðrum hluta hússins.
Leigutími 12 mán eða meira.

Vinnustofa í kjallara um 24 fm (m/ sameign 28 fm).Sameiginlegt eldhús og klósett í öðrum hluta hússins.Leigutími 12 eða ...
10/06/2022

Vinnustofa í kjallara um 24 fm (m/ sameign 28 fm).
Sameiginlegt eldhús og klósett í öðrum hluta hússins.
Leigutími 12 eða meira.
Rýmið er um 5 x 3,5 m að stærð.

Vinnustofa í kjallara um 36 m2 (m/sameign 42).Sameiginlegt eldhús og klósett í öðrum hluta hússins.Leigutími 12 mán eða ...
10/06/2022

Vinnustofa í kjallara um 36 m2 (m/sameign 42).
Sameiginlegt eldhús og klósett í öðrum hluta hússins.
Leigutími 12 mán eða meira.
Rýmið er um 5,5 x 5,5 m að stærð.

Skrifstofurými á 1. hæð rúmlega 20 fm (m/sameign 20,5 fm).Sameiginlegt eldhús og klósett.Leigutími 12 mán eða meira.Rými...
10/06/2022

Skrifstofurými á 1. hæð rúmlega 20 fm (m/sameign 20,5 fm).
Sameiginlegt eldhús og klósett.
Leigutími 12 mán eða meira.
Rýmið er: 3,6m á breidd x 5,8m lengd.

Skrifstofurými inn af 3. hæð (suðurhlið), 32 fm (m/sameign 40 fm).Aðgengi upp stiga tvær hæðir. Sameiginlegt eldhús og k...
10/06/2022

Skrifstofurými inn af 3. hæð (suðurhlið), 32 fm (m/sameign 40 fm).
Aðgengi upp stiga tvær hæðir. Sameiginlegt eldhús og klósett. Rýmið leigist að öllum líkindum með hæðinni í heild sinni.

Skrifstofurými á 2. hæð (sunnan megin), 32 fm (m/ sameign 40 fm).Aðgengi upp stiga eina hæð og svo í gegnum sameiginlegt...
10/06/2022

Skrifstofurými á 2. hæð (sunnan megin), 32 fm (m/ sameign 40 fm).

Aðgengi upp stiga eina hæð og svo í gegnum sameiginlegt rými. Sameiginlegt eldhús og klósett.
Leigutími 12 mán eða meira.

Gott útsýni í dag :)
27/05/2022

Gott útsýni í dag :)

Atvinnurými við gömlu höfnina í Reykjavík á Ægisgötu 7. Heildarrýmið er 1.400 m2 sem hægt er að skipta upp í mörg smærri...
19/05/2022

Atvinnurými við gömlu höfnina í Reykjavík á Ægisgötu 7. Heildarrýmið er 1.400 m2 sem hægt er að skipta upp í mörg smærri rými allt frá 20 m2 upp í 250 m2 eða stærra.

Húsnæðið hentar fyrir skrifstofur, vinnustofur listafólks, verkstæði og geymslur. Húsið er á fjórum hæðum og stór innkeyrsla í kjallara og jarðhæð.

Húsnæðið er í útleigu eins og stendur.

Stærðir í fermetrum:
kjallari - aðalbygging 219 m2
kjallari - bakhús 230 m2
1. hæð - aðalbygging 219 m2
1. hæð - bakhús 261 m2
2. hæð 250 m2
3. hæð 250 m2

Address

Ægisgata 7
Reykjavík
101

Website

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Ægisgata 7 - 101 Rvk posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to Ægisgata 7 - 101 Rvk:

Share