Þingholtsstræti 35

Þingholtsstræti 35 Gísli Sigmundsson, eigandi að Breyting ehf. er með hugsjón. Hann festi kaup á Þingholtsstræti

Sæl. Gulli byggir verður með þátt á Stöð2 í kvöld um Þingholtsstræti 35. Spennandi :  )
26/09/2021

Sæl.

Gulli byggir verður með þátt á Stöð2 í kvöld um Þingholtsstræti 35. Spennandi : )

13/08/2021

Við Gísli eigum sameiginlega vin (Hrafnkell Marinósson - Keli) sem við kynnumst á mismunandi forsendum. Ég kynntist honum í gegnum sameiginlegan vinahóp en Gísli og Keli voru saman í Iðnskólanum Hafnarfirði sem heitir núna Byggingatækniskólinn í Hafnarfirði. Kela langaði að kíkja í heimsókn og auðvita drógum við hann í viðtal.

Takk Hrafnkell Marinósson minn fyrir skemmtilegt viðtal.

11/08/2021

Sæl og blessuð.

Það er allt á lokametrunum í húsinu. Þið þekkið þetta - gólflistar, bletta hér og þar, þrífa aðeins betur, laga það sem kemur í ljós og þar fram eftir götunum. Senn líður að afhendingu og ætlum við reyna að gera því skil.

Varðandi myndbandi:
Í sumar hafi kona samband við Gísla, en hún hefur fylgst með framkvæmdum á kantinum, og spurði hvort hún mætti koma í heimsókn og skoða húsið. Það var auðsótt en svo kom í ljós að hún átti heima í húsinu á sínum tíma. Pabbi hennar erfði húsið frá fyrsta eiganda og hann gerir síðan miklar lagfæringar á því árið 1954.
Hilda Lis Siemsen þekkir sögu hússins ágætlega og við svo heppnir að fá hana í heimsókn og hlusta á sögur : )

Takk Hilda fyrir skemmtilegar sögur og samveru.

p.s.
Myndbandið er óklippt fyrir utan þegar ég rak mig í upptökutakkann. Þið afskakið hljóðgæðin enn einu sinni : )

28/07/2021

Gísli og félagar hafa staðið í ströngu undanfarnar vikur við lokafrágang á innviðum hússins. Innréttingarnar komu í síðustu viku og eru að mestu komnar á sína staði. Það er búið að sparsla og pússa alla fleti. Það er verið að mála lokaumferð á veggina. Allri flísavinnu er lokið. Það á eftir af setja upp glerveggi í baðherbergjum. Næstu sólarhringa verða gólfin pússuð og gengið frá gólflistum.

Handriðin fóru upp um daginn og þau eru geggjuð : )

10/07/2021

Handriðin mættu á svæðið í gær og það ríkir mikil spenna fyrir uppsetningunni. Ráðgert að ráðast í það verkefni um miðja næstu viku.

04/06/2021

Gísli Sigmundsson ræðir við Bergþór Bjarnason, pípulagningarmeistara um vinnubrögð og annað tengt svansvottunarferlinu.

02/06/2021

Gísli Sigmundsson ræðir við Eirík Hjaltason, rafvirkjameistara um vinnubrögð og annað tengt svansvottunarferlinu.

31/05/2021

Gísli Sigmundsson ræðir við Hermann Óla Finnsson, málarameistara um vinnubrögð og annað tengt svansvottunarferlinu.

24/05/2021

Jæja, loksins er myndbandið tilbúið : )

Gísli Sigmundsson ræðir um endurbætur á Þingholtsstræti 35. Gísli keypti húsið í byrjun september 2020 og viðtalið er tekið 16. maí 2021.

Langar að þakka Óla Jóni fyrir aðstoðinu.

________________

Hér er listi með þeim einstaklingum og fyrirtækjum
sem koma að endurbótunum á Þingholtsstræti 35.

>> Verktakar:
Aðalverktaki - Breyting ehf.
Arkitekt - Hans Unnþór Ólason (TUL ehf)
Jarðvinna - H. Illugason
Steinbrot og múrvinna - Aquila
Pípulagnir - Bergþór Bjarnason
Rafmagn - Eiríkur Hjaltason
Málningarvinna - Málarasmiðjan ehf.
Frágangur á lóð: B.T. Verktakar

>> Samstarfsaðilar:
Rakavarnar og byggingartækileg ráðgjöf.
Björn Marteinsson, arkitekt.
Verkefnastjórn Svansvottunar og fagleg ráðgjöf.
Finnur Sveinsson - visthus.is
Aðföng byggingarefnis:
Húsasmiðjan - husa.is
Förgun og endurvinnsla:
Terra - terra.is
Fagleg ráðgjöf um skaðleg byggingarefni:
Verkís - verkis.is

14/05/2021

Við Gísli frestuðum hittingnum frá á sunnudag.
Þar sem það er stutt niður að tjörn frá Þingholtsstræti 35, fáið þið andamyndband í staðinn : )

Address

Þingholtsstræti 35
Reykjavík
101

Website

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Þingholtsstræti 35 posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to Þingholtsstræti 35:

Share