18/06/2026
Leigubremsur og leiguþök eru oft kynnt sem leið til að vernda leigjendur og halda aftur af hækkandi leiguverði. En hvað segir reynslan frá öðrum löndum?
Í nýrri samantekt Húseigendafélagsins er farið yfir rannsóknir og reynslu frá meðal annars San Francisco, Berlín og Minnesota. Niðurstöðurnar benda til þess að þótt leigutakmarkanir geti veitt ákveðna vernd til skemmri tíma geti þær einnig dregið úr framboði leiguhúsnæðis, haft áhrif á fjárfestingar og jafnvel stuðlað að hærra leiguverði til lengri tíma litið.
Í samantektinni er jafnframt fjallað um sérstöðu íslenska leigumarkaðarins, þar sem einstaklingar eiga stóran hluta þess húsnæðis sem leigt er út. Það gerir markaðinn viðkvæmari fyrir breytingum á regluverki en víða annars staðar.
Hvernig er best að tryggja húsnæðisöryggi leigjenda án þess að draga úr framboði húsnæðis? Það er meðal þeirra spurninga sem samantektin varpar ljósi á.
Lesið samantektina hér 👇
Inngangur Hækkandi leiguverð er fyrir mörgum mikið áhyggjuefni og hafa stjórnvöld víða gripið til takmarkana á heimildum leigusala til að hækka leiguverð, t ...