ÞG Verk

ÞG Verk ÞG Verk var stofnað árið 1998 af Þorvaldi H Gissurarsyni sem er enn þann dag í dag forstjóri og eigandi félagsins.

Félagið er byggt upp á traustum grunni og hefur staðið af sér öll áföll í íslensku efnhagslífi sem og íslenskum byggingariðnaði og starfar enn á upprunalegri kennitölu. Markmið félagsins hefur ávallt verið að skila góðu verki til sinna viðskiptavina á íbúðamarkaði sem og útboðsmarkaði, að stunda traust og örugg viðskipti og uppfylla væntingar viðskiptavina.

Á annað þúsund fjölskyldna búa í dag í

húsnæði frá ÞG Verk og u.þ.b 700 íbúðir eru fyrirhugaðar í byggingu á næstu árum. Gæðakerfi ÞG Verk verndar hagsmuni kaupenda en ávallt er gerð sameiginleg úttekt á hverri fasteign fyrir afhendingu. Fyrirtækið hefur í gegnum tíðina byggt atvinnuhúsnæði sem hýsir margvíslega starfsemi.

ÞG Verk hefur yfirgripsmikla reynslu af störfum á útboðsmarkaði og meðal verkefna eru hátæknisetur lyfjafyrirtækisins Alvogen, höfuðstöðvar Orkuveitu Reykjavíkur, stærsta prentsmiðja landsins fyrir Morgunblaðið og virkjanir á Hellisheiði og Nesjavöllum. Félagið hefur áunnið sér traust opinberra aðila og stórfyrirtækja með skipulegu vinnulagi, skilum á réttum tíma, vönduðu verki og öruggum viðskiptum. Hjá fyrirtækinu er starfrækt gæðaráð og starfandi gæðastjóri. Í gegnum allt byggingarferlið eru gerðar reglulegar úttektir á öllum verkþáttum.

Í dag er ÞG Verk í sókn, bæði ef litið er til eigin framkvæmda á íbúðar og atvinnuhúsnæðimarkaði og verkefna á útboðsmarkaði. Lykillinn að farsælum rekstri er afburða starfsfólk og er fyrirtækið stolt af þeim trausta og hæfa hópi fólks sem starfar fyrir félagið í dag. Fyrirtækið leggur áherslu á góða starfsmanna aðstöðu og aðbúnað til að tryggja öryggi og starfsmannaánægju.

ÞG Verk er sterkt félag sem skilar góðu verki og faglegum vinnubrögðum. Allt frá stofnun hefur það verið meginmarkið félagssins að skila góðu verki, stunda örugg viðskipti og eiga traust og áreiðanleg samskipti við sína viðskiptavini.

Þorvaldur Gissurarson
Forstjóri ÞG Verk

Ölfusárbrú – Stálbitar fluttir til landsinsUm helmingur af stálbitum sem verða notaðir í burðargrind nýju Ölfusárbrúar k...
28/04/2026

Ölfusárbrú – Stálbitar fluttir til landsins

Um helmingur af stálbitum sem verða notaðir í burðargrind nýju Ölfusárbrúar komu til landsins um páskana. Allir bitarnir eru komnir á verkstað og hafin er vinna við að stilla þeim saman. Bitarnir eru tveggja metra háir og um 20 metra langir og hver biti vegur um 30 – 40 tonn. Til þess að flytja stálbitana á verkstað þurfti stærstu krana landsins til þess að hífa þá upp úr skipinu og fóru síðan flutningarbílar með þá í lögreglufylgd á verkstað.

Hér má sjá Video frá Vegagerðinni um stálbitana:
youtube.com/watch?v=-1Fq-5YqjLI&source_ve_path=MjM4NTE&embeds_referring_euri=https%3A%2F%2Ftgverk.is%2F

Staða framkvæmda er sú að búið er að steypa undirstöður landstöpla Ölfusárbrúar og unnið við uppslátt stöpla ofan á þær. Í Laugardælaeyju er lokið við fyllingu og steypu þrifalags og unnið við uppslátt og járnbendingu fyrir undirstöðu turnsins sem þar mun rísa. Gatnagerð er langt komin og búið er að steypa upp brú og ný mislæg gatnamót við Laugdælaveg sem mun tengjast við Þjóðveg 1. Verkið hefur gengið vel og allir verkþættir eru samkvæmt áætlun.

https://tgverk.is/2026/04/24/olfusarbru-stalbitar-fluttir-til-landsins/

ÞG Sjóður aðstoðar þig að komast inn á fasteignamarkaðinn.ÞG Sjóður er sjóður sem fjárfestir í íbúðarhúsnæði sem er bygg...
10/11/2025

ÞG Sjóður aðstoðar þig að komast inn á fasteignamarkaðinn.

ÞG Sjóður er sjóður sem fjárfestir í íbúðarhúsnæði sem er byggt af ÞG verktökum ehf., byggingaverktaka í eigu Þorvaldar Gissurarsonar, sem hefur verið starfandi á íslenskum markaði óslitið frá árinu 1998 og hefur byggt þúsundir íbúða.

ÞG Sjóður fjárfestir fyrir allt að 20% af kaupverði fasteigna og eignast því hlutdeild í viðkomandi fasteign. Einstaklingur leggur fram að lágmarki 10% af kaupverði og getur tekið allt að 70% lán fyrir kaupverði fasteignar. Einstaklingur eignast þannig heimili sem hann hefur fullan umráðarétt yfir en greiðir leigu af hlut ÞG Sjóðs.

Allir einstaklingar geta nýtt sér ÞG Sjóð, þú þarft ekki að vera fyrsti kaupandi.

Nánari upplýsingar um ÞG Sjóð má finna inn á heimasíðu okkar: https://www.tgsjodur.is

Allar eignir í Baughamri 21-25 falla undir ÞG Sjóð, sjá söluvef hér: https://tgverk.is/baughamar/

Kaupdæmi:

Ef þú villt kaupa þér 2ja herbergja 56.000.000 kr íbúð í Baughamri með aðstoð frá ÞG Sjóður þarf eigið fé þitt einungis að vera 5.600.000 kr. ÞG Sjóður leggur út 11.200.000 kr og þú tekur lán fyrir 39.200.000 kr.

Við erum með til sölu 3ja herbergja íbúðir á 69.000.000 kr þá þarf eigið féið þitt að vera einungis 6.900.000 kr. ÞG Sjóður leggur út 13.800.000 kr og þú tekur lán fyrir 48.300.000 kr.

ÞG Verk kaupir Arnarlandið í GarðabæÞG Verk hefur gengið frá kaupum á Arnarlandi í Garðabæ. Gert er ráð fyrir 450 íbúðum...
27/10/2025

ÞG Verk kaupir Arnarlandið í Garðabæ

ÞG Verk hefur gengið frá kaupum á Arnarlandi í Garðabæ. Gert er ráð fyrir 450 íbúðum og 36.000 fermetrum af atvinnuhúsnæði.

Arnarlandið er um 9 hektarar að stærð og er staðsett miðsvæðis á höfuðborgarsvæðinu. Við svæðið liggja m.a. núverandi stofnleiðir hjólreiða og öflugt stíganet sem býður upp á góðar tengingar við nálæga þjónustu, útivistarsvæði, grænan borða og strandlengjuna. Margvísleg þjónusta og samfélagslegir innviðir eru í nærumhverfinu, stutt er t.a.m. í Fjölbrautaskólann í Garðabæ, söfn, sund, Smáralind, dagvöruverslun, bakarí, líkamsrækt og fleira.

Við hjá ÞG Verk erum virkilega spennt fyrir þeirri uppbyggingu sem fram undan er í þessu nýja hverfi og hlökkum til að taka þátt í að móta framtíðar samfélag á svæðinu.

https://tgverk.is/2025/10/27/thg-verk-kaupir-arnarland/

Glæsileg árshátíð ÞG Verk í HörpunniÁrshátið ÞG Verktaka var haldin laugardaginn 11 október í Hörpunni. Starfsfólk og ge...
14/10/2025

Glæsileg árshátíð ÞG Verk í Hörpunni

Árshátið ÞG Verktaka var haldin laugardaginn 11 október í Hörpunni. Starfsfólk og gestir komu saman til að fagna góðu starfsári, njóta ljúffengra veitinga og skemmta sér í góðum félagsskap.

Árshátíðin hófst með fordrykk og hátíðarkvöldverði. Veislustjóri skemmti gestum yfir máltíðinni. Hljómsveitn Book store club tók síðan við eftir matinn og hélt uppi stuðinu fram á kvöld.

Á árshátíðinni voru veittar viðurkenningar til starfsmanna sem hafa unnið hjá ÞG Verk í 10, 15 og 20 ár eða lengur og þeim sem kláruðu sveinspróf á árinu. Þeim var þakkað fyrir framúrskarandi starf og mikilvægt framlag til fyrirtækisins í gegnum tíðina.

Við hjá ÞG Verk erum stolt af okkar öfluga hópi starfsmanna og þökkum öllum fyrir komuna á árshátíðina.

https://tgverk.is/2025/10/14/glaesileg-arshatid-thg-verk-i-horpunni/

Bráðabirgðabrú hífð á Ölfusá með stærsta krana landsins:Mikill viðbúnaður var á framkvæmdasvæði nýrrar Ölfusárbrúar á Se...
16/07/2025

Bráðabirgðabrú hífð á Ölfusá með stærsta krana landsins:

Mikill viðbúnaður var á framkvæmdasvæði nýrrar Ölfusárbrúar á Selfossi þann 4 júlí þegar bráðabirgðabrú var hífð á stöpla sína. Brúin vegur 44 tonn og var hífð með stærsta krana landsins. Hún mun þjóna vinnuumferð út í eyjuna en þar þarf að reisa undirstöður fyrir 60 metra háan turn Ölfusárbrúar.

Verkið er í höndum ÞG verktaka og brúin er eingöngu ætluð vinnuvélum sem vinna að brúargerðinni. Á næstu vikum verður farið í að steypa undirstöður undir brúna á Efri-Laugardælaeyju

Samningur við ÞG Verk vegna byggingu Ölfusábrúar var undirritaður í nóvember síðastliðinn og þá var tekin fyrsta skóflustungan að framkvæmdunum. Síðan þá hafa verið gerðar jarðvegsrannsóknir og unnið við jarðvegsskipti. Í maí og júní var unnið að því að koma upp varnargarði og vinnuvegi í Ölfusá.

Lesa frétt:https://tgverk.is/2025/07/16/bradabirgdabru-hifd-a-olfusa-med-staersta-krana-landsins/

Address

Lágmúli 7
Reykjavík
108

Opening Hours

Monday 08:00 - 16:30
Tuesday 08:00 - 16:30
Wednesday 08:00 - 16:30
Thursday 08:00 - 16:30
Friday 08:00 - 16:30

Telephone

+3545348400

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when ÞG Verk posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to ÞG Verk:

Share