25/08/2017
Uppbyggingin hefur verið hröð. Heilsugæslan Höfða og Apótekarinn opnuðu 1. júní, Heilsuborg og Örninn golfverslun í ágúst og svo munu Flexor og Röntgen Domus opna í september og fleiri fyrirtæki eru væntanleg.
S*x fyrirtæki leigja nú rými í atvinnuhúsnæðinu Höfða við Bíldshöfða 9. Aðeins um 20% rýmis eru nú laus til útleigu, en öll efri hæð hússins hefur nú verið leigð út. Í nágrenni hússins eru breytingar í farvatninu.