26/10/2023
Falleg eign í göngufæri við leikskóla, elsta grunnskóla Reykjavíkur, íþróttahús, sundlaug og upp á Esjuna. Göngustígur beint fyrir ofan húsið sem tengist öðrum göngustígum í hverfinu. Golfvöllurinn Brautarholt einn af betri golfvöllum landsins. Stórbrotin fjaran. Kjalarnes, nú hverfi í Reykjavík síðan 1998, aðeins í 12 mín akstursfjarlægð frá Mosfellsbæ og 26 km fjarlægð frá miðbæ Reykjavíkur. Á Kjalarnesi er líka Saurbæjarkirkja.
Bjart og fallegt endaraðhús á Kjalarnesi Borg fasteignasala kynnir til sölu fallegt 175,8 fermetra endaraðhús á einni hæð með bílskúr innst í botlanga á Kjalarnesi.Húsið skiptist í forstofu, tvær samliggjandi stofur, borðstofu, eldhús, baðherbergi, þrjú rúmgóð svefnherbergi...