04/06/2026
Laugarnesvegur 87, 105 Reykjavík. 🟡
Glæsileg og rúmgóð 3ja herbergja íbúð á 6. hæð (efstu) í lyftuhúsi við Laugarnesveg 87 í Reykjavík.
🔹Allar innréttingar íbúðarinnar eru sérsmíðaðar og hannaðar af arkitekt.
🔹Granít steinn er á borðplötum í eldhúsi.
🔹Gegnheilt eikarparket með sérstakri hljóðeinangrun er í herbergjum og alrými, og ljós náttúrusteinn á eldhúsi, baðherbergi, þvottahúsi og forstofu.
Yfirbyggðar sólríkar suður-svalir, sér inngangur af utanáliggjandi svölum og stæði í lokaðri bílageymslu. Hús og sameign er öll hin vandaðasta og húsið klætt með viðhaldslítilli klæðningu. Gott aðgengi er að húsinu, næg bílastæði á lóð og snjóbræðsla í stétt. Frábær staðsetning þar sem stutt er út á stofnæðar og alla helstu þjónustu.
Sunna fasteignasala, Marta Jónsdóttir, lögfr. og lfs. og Arnþór Jónsson, lfs., kynna í einkasölu glæsilega og rúmgóða 3ja herbergja íbúð á 6. hæð (efstu) í lyftuhúsi við Laugarnesveg 87 í Reykjavík. Yfirbyggðar sólríkar suður-svalir, sér inngangur af utanáliggjandi svöl...