19/02/2026
Nýtt á söluskrá 🏡 Parhús við Leiðhamrar 38, 112 Reykjavík.
Fallegt, vel skipulagt og fjölskylduvænt 204,7 fm. parhús með fjórum stórum svefnherbergjum og innbyggðum bílskúr á frábærum stað í nálægð við sjóinn og náttúruna.
Heitur pottur á verönd með skjólveggjum, gróin og flott lóð með góðri aðkomu með hellulögð upphituð bílastæði.
Húsið hefur fengið gott viðhald og lítur mjög vel út að sjá. Neðri hæðin var nýlega endurnýjuð að miklu leyti, skipt var þar um hurðir og gólfefni og stiginn teppalagður. Öll neðri hæðin var á sama tíma máluð, loft, veggir og gluggar.
Verð 148.900.000 kr.
Smelltu á linkinn til að skoða húsið á söluvef, hjá RE/MAX: https://remax.is/fasteignir/gdcgn4uvzjafzoz30q6qso
Smelltu á linkinn til að skoða húsið í 3D:
https://my.matterport.com/show/?m=QcDmCJddC5B
Nánari upplýsingar veitir: Guðlaugur J. Guðlaugsson/Gulli löggiltur fasteignasali í síma 661-6056 / [email protected]