CLT Hús ehf

CLT Hús ehf CLT Hús selur krosslímdar timbureiningar, glugga, hurðir, handrið, klæðningar og annað sem þarf til að byggja fasteignir.

CLT einingar (Cross laminated timber) eru lög af timbri sem límd eru saman undir miklum þrýstingi. Hvert lag er límt í 9...
09/06/2021

CLT einingar (Cross laminated timber) eru lög af timbri sem límd eru saman undir miklum þrýstingi. Hvert lag er límt í 90° ofan á næsta lag svo úr verður sterkt og gott byggingarefni.

Sendu okkur teikningar eða hugmynd af þínu draumahúsi á [email protected]. Við gerum þér tilboð. Við getum tekið verkefnið alfarið að okkur með meistara og byggingarstjóra. Við tökum eins mikið þátt og þú vilt. Hvort sem það er efni eða vinna, við erum til í slaginn með þér, alla leið.

11/12/2019
Rúmgaflar og bekkir fyrir hótel
11/12/2019

Rúmgaflar og bekkir fyrir hótel

Hverjar eru þínar þarfir þegar kemur að gluggum? Þrefallt gler er standard hjá okkur. Hins vegar getum við alveg eins ha...
06/05/2019

Hverjar eru þínar þarfir þegar kemur að gluggum? Þrefallt gler er standard hjá okkur. Hins vegar getum við alveg eins haft það skothelt í bókstaflegri merkingu. Að sjálfsögðu brunagler en ef þú ert með jáeindaskanna heima hjá þér þá... já við græjum það líka. Sólin angrar ekki okkar viðskiptavini nema þeir vilji það. Risagluggar eru ekki vandamál. Við getum ansi margt. En hvað með ég sé út en enginn inn? Jú það líka...

Hér eru nokkrar skemmtilegar myndir af veitingastaðnum í Ránargrund sem Jakob Ásmundsson húsasmíðameistari tók í dag. Þa...
30/03/2019

Hér eru nokkrar skemmtilegar myndir af veitingastaðnum í Ránargrund sem Jakob Ásmundsson húsasmíðameistari tók í dag. Þar er verið að setja upp límtrésbita sem CLT Hús flutti einnig inn.

Í Grindavík halda menn líka áfram. Þessar myndir eru teknar sem hluti af áfangaúttektum byggingarstjóra á burðarvirki. Þ...
28/03/2019

Í Grindavík halda menn líka áfram. Þessar myndir eru teknar sem hluti af áfangaúttektum byggingarstjóra á burðarvirki. Þar er athugað með burðarvirki. M.a. festingar á einingum, þaki og margt fleira. Erlendir hönnuðir hanna þetta verkefni en árvökul augu innlendra verkfræðinga og byggingastjóra vildu betri lausnir. Við bregðumst við því einsog skot! Í þessu tilviki var ekki látið nægja að krossskrúfa sperrur niður heldur er bætt við vinklum báðum megin við hverja sperru.

Veðrið er að stríða svakalega þessa dagana. Mikil vindur setur fólk í hættu þegar verið er að vinna með krana. En það má...
27/03/2019

Veðrið er að stríða svakalega þessa dagana. Mikil vindur setur fólk í hættu þegar verið er að vinna með krana. En það má gera margt annað á meðan einsog að setja klæðningarkerfi á hús og einangra að utan. Okkur sýnist að þeirri vinnu ljúki nánast samhliða uppsetningu þó að það hafi hægt á henni vegna veðurs. Hér fáið þið myndauppfærslu úr Garðabænum. Þar er verið að reisa hús undir veitingastað.

Það er líka gaman að segja frá því að margir eru að heimsækja vinnustaðinn og margir fagaðilar að hitta okkur og fara yfir málin. Við fögnum því. Við nýtum það í að þróa betri lausnir. Við munum svo auðvitað halda áfram að miðla upplýsingum hér þegar við fáum spurningar. Ef þið eruð að pæla í efninu ættuð þið endilega að senda okkur línu.

18/03/2019

Ef þú ætlar að byggja sjálfur. Þá mælum við með að eyða smá auka í að láta hönnuði útbúa magnskrár. Það eru okkar tvö sent. Ef allt er klárt þá muntu njóta góðs af því. Verktakar eru almennt ekki óheiðarlegir. Þeir bjóða í samkvæmt þeim upplýsingum sem þeir hafa. Þetta mættu mjög margir hugsa um. Við erum nákvæmlega eins. Ef allt er klárt og allt er upplýst þá færðu góð verð.

18/03/2019

Mér líst á CLT hvað þarf til?

Það sem við þurftum frá þér eru allar hönnunarteikningar. Best er ef burðarvirkið hefur verið hannað með CLT í huga. Ef ekki þá hönnum við það fyrir þig.

Þegar hönnuðir eru sáttir þá sendum við það til verksmiðju sem sker út einingar með öllum gluggagögum og höllum sem þarf til.

Svo eru einingarnar sendar til Íslands. Þar tekur okkar fólk á móti þeim nema þú hafir ákveðið annað.

Við förum eins langt og þú vilt. Það skiptir engu hvort það er efni eða vinna. Nákvæmlega einsog þú vilt.

Address

Reykjavík
110

Opening Hours

Monday 09:00 - 17:00
Tuesday 09:00 - 17:00
Wednesday 09:00 - 17:00
Thursday 09:00 - 17:00
Friday 09:00 - 16:00

Website

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when CLT Hús ehf posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to CLT Hús ehf:

Share

Category