Procura

Procura Procura leggur fasteignasölu á hilluna, í bili. Framtíðarsýn Procura liggur í rafrænni þjónustu.

Hjá okkur er það smæðin sem gerir okkur stór og til að gera betur höfum við skilgreint gildin sem við stöndum fyrir, allt í þeim tilgangi að bregðast rétt við og sinna þörfum notenda betur. Þessi gildi eru hugrekki, ábyrgð og hagsýni. Við erum hugrökk
Breytingar eru forsenda framfara og staðnað ástand er áskorun. Við búum yfir hugrekki til að breyta og tökum fagnandi þeirri áskorun að gera fasteig

naviðskipti betri, öruggari og ódýrari. Við erum ábyrg
Við stöndum við orð okkar og segjum og kynnum aðeins það sem er satt og rétt. Við umgöngumst málefni viðskiptavina okkar af ábyrgð, virðingu og trúnaði. Við ábyrgjumst að höfum réttindi til að sinna störfum sem okkur eru falin og að við búum ávallt yfir þekkingu til að sinna þeim störfum af fagmennsku. Við erum hagsýn
Við skipuleggjum vinnu okkar þannig að sem minnstur kostnaður falli til og bjóðum betri þjónustu fyrir lægra verð. Við kappkostum að bæta ferla, stytta boðleiðir og efla upplýsingakerfi með hagsýni og bætta þjónustu að leiðarljósi.

Um leið og við bendum þér á áreiðanlegasta og aðgengilegasta verðmatið á þinni eign, þá minnum við á að það er bara EIN ...
16/09/2024

Um leið og við bendum þér á áreiðanlegasta og aðgengilegasta verðmatið á þinni eign, þá minnum við á að það er bara EIN Procura - procura.one

Skoðaðu reiknað verðmat Procura og fáðu góð ráð um markaðsvirði og fasteignasölu í þínu hverfi.

Procura leggur fasteignasölu á hilluna, í bili. Nú leggjum við áherslu á uppbyggingu rafrænnar þjónustu við fasteignaeig...
15/07/2024

Procura leggur fasteignasölu á hilluna, í bili.

Nú leggjum við áherslu á uppbyggingu rafrænnar þjónustu við fasteignaeigendur sem frá upphafi hefur verið framtíðarsýn Procura.

Á næstunni kynnum við nýjan vef, á nýjum stað. Hægt en örugglega bætum við svo við þjónustuna og verðum aftur leiðandi í rafrænu mati á fasteignum.

Procura - meira virði

Frá upphafi höfum við hjá Procura haft eitt markmið: Að gera fasteignaviðskipti einföld, hagkvæm og gagnsæ. Við trúum, a...
25/06/2024

Frá upphafi höfum við hjá Procura haft eitt markmið: Að gera fasteignaviðskipti einföld, hagkvæm og gagnsæ. Við trúum, að með því að bæta líf viðskiptavina okkar, getum við breytt fasteignamarkaðnum til hins betra.

Við vorum fyrst á Íslandi til að bjóða rafrænt og áreiðanlegt verðmat allra íbúða. Við buðum fyrst allra frían aðgang að öllum eignum á netinu, með myndum og upplýsingum sem eru áreiðanlegar og aðgengilegar.

Við höfum alltaf staðið fyrir gagnsæi og sanngirni. Þess vegna var það rökrétt skref að bjóða upp á hagkvæm fasteignaviðskipti með föstu gjaldi þar sem allt er innifalið, þar með talið virðisaukaskattur.

Nú er komið að næsta kafla. Við erum spennt að deila með ykkur nýjum og spennandi þróunum sem við munum kynna þegar nær dregur haustinu.

Við hlökkum til að sýna ykkur af hverju við erum hér, hvernig við vinnum og hvert við stefnum.

Fylgist með - framtíðin er björt með Procura!

Margt er sagt, flest ýkt en eitt er víst, að vegna mikillar sölu og sívaxandi eftirspurnar eftir þjónustu okkar, þurfum ...
05/03/2024

Margt er sagt, flest ýkt en eitt er víst, að vegna mikillar sölu og sívaxandi eftirspurnar eftir þjónustu okkar, þurfum við stækka teymið. Við leitum að löggiltum fasteignasala til að aðstoða við uppbyggingu á ört vaxandi söludeild Procura og til að sinna kröfuhörðum viðskiptavinum okkar í takt við okkar metnaðarfullu markmið.

Vilt þú leggja fram vinnu þína og kunnáttu á föstum launum með bónusum og um leið eignast rétt til að gerast hluthafi í vaxandi fyrirtæki sem stefnir ákveðið á ráðandi markaðshlutdeild á markaði sem veltir yfir 10 milljörðum árlega? Það verður ekkert auðvelt, en það e...

Address

Bjargargata 1
Reykjavík
102

Telephone

+3544544400

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Procura posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Share

Category