Vernharð Þorleifsson - Löggiltur fasteignasali

Vernharð Þorleifsson - Löggiltur fasteignasali Fagleg þjónusta síðan 2005

Vernharð Þorleifsson lgf. og Magga Gísladóttir lgf. kynna fallega 3ja-4ra herbergja íbúð á 3. hæð með 8,4 fm auka íbúðar...
07/04/2026

Vernharð Þorleifsson lgf. og Magga Gísladóttir lgf. kynna fallega 3ja-4ra herbergja íbúð á 3. hæð með 8,4 fm auka íbúðarherbergi í kjallara sem hægt er að leigja út, auk 6,3 fm sérgeymslu.

Frekari upplýsingar veita Vernharð Þorleifsson löggiltur fasteignasali í síma 699-7372 / [email protected] og Magga Gísladóttir löggiltur fasteignasali í síma 698-7494 / [email protected]
Kíktu í heimsókn til okkar á Facebook eða á Instagram

Nánari lýsing:
Opið forstofurými.
Eldhús, nýlega endurnýjað, borðkrókur.
Stofan er björt og með útgengi á svalir.
Tvö svefnherbergi. Hjónaherbergið með góðum fataskáp og flottu útsýni.
Baðherbergi með fallegri innréttingu og sturtubaðkari. Flísar eru á gólfi og veggjum.
Rúmgott þvottahús með geymslurými inn af eldhúsi. Flísar á gólfi.
Bæði baðherbergið og þvottahúsið voru endurnýjuð fyrir nokkrum árum.
Í kjallara er 8,4 fm. íbúðarherbergi sem tilheyrir íbúðinni auk 6,3 fm sérgeymslu og aðgangur að sameiginlegu salerni og hjóla-/vagnageymslu.
Húsið var múrviðgert og málað 2023 og þá var einnig skipt um þá glugga sem þurfti.
Framkvæmdir standa nú yfir í Arnarbakka 2–6, 8 og 10 en þar er verið að byggja húsnæði fyrir 70 stúdentaíbúðir, 29 almennar íbúðir, leikskóla auk verslunar- og þjónusturýmis.

Þetta er virkilega björt og falleg eign með aðgengi að góðum garði með leiktækjum fyrir börnin. Stutt í alla helstu þjónustu, leik- og grunnskóla og verslanir.
Húsfélagið er virkt og ágætlega stætt og er í þjónustu hjá Eignaumsjón.

Vernharð Þorleifsson lgf. og Magga Gísladóttir lgf. kynna snotra tveggja herbergja íbúð á þriðju hæð á horni Njálsgötu o...
31/03/2026

Vernharð Þorleifsson lgf. og Magga Gísladóttir lgf. kynna snotra tveggja herbergja íbúð á þriðju hæð á horni Njálsgötu og Snorrabrautar.
Íbúðin skiptist í forstofugang, eldhús með útgengi á svalir sem snúa út í skemmtilegan miðbæjar bakgarð, rúmgott svefnherbergi, stofu og baðherbergi með sturtubaðkari.
Íbúðinni fylgir 13,1 fm geymsla í risi en aðeins 0,9 fm telja í heildar fm íbúarinnar þar sem hún er undir súð.
Sameiginlegt þvottahús er í kjallara þar sem hver íbúð getur verið með þvottavél og þurrkara og þar er líka hjóla- og vagnageymsla.
Múr og steining húss var yfirfarin 2015 og þá var skipt um rúður í stofunni. Þakrennur voru endurnýjaðar 2020.
Engar framkvæmdir eru ákveðnar en framkvæmdasjóður húsfélagsins á tæpar 4 milljónir.
Íbúðin greiðir 14.669 kr. í hússjóð mánaðarlega. Innifalið í þeirri upphæð er rekstur húsfélagsins, allur hiti, þrif á sameign, húseigendatrygging og framkvæmdasjóður.
Skemmtileg miðbæjareign sem er steinsnar frá Sundhöll Reykjavíkur, grunnskólanum og Tækniskólanum.

Vernharð Þorleifsson og Magga Gísladóttir lgf. kynna í sölu Víðihlíð 18. Um er að ræða neðri hæð í raðhúsi á góðum stað ...
06/03/2026

Vernharð Þorleifsson og Magga Gísladóttir lgf. kynna í sölu Víðihlíð 18. Um er að ræða neðri hæð í raðhúsi á góðum stað í rólegu og grónu hverfi. Stutt er í gönguleiðir, Nauthólsvík og Öskjuhlíð. staðsetningin er rétt við stofnbraut.
Sameiginlegur inngangur er með efri hæð hússins. Þegar komið er inn í íbúðina er gengið niður nokkrar tröppur. Til hægri er svefnherbergi með ágætu skáparými og glugga sem snýr út í garð. Úr svefnherbergi er gengið inn í opið rými þar sem eldhús og stofa eru saman. Í eldhúsi er lítil eyja og flísar á gólfi en parket er á stofu og í svefnherbergi. Úr stofu er útgengi út á sérafnotarétt.
Á þessari hæð er einnig þvottahús.
Frá alrými liggja tröppur niður á neðstu hæð. Þar er rými með skápum á einum vegg og lítil vinnuaðstaða. Úr því rými er annars vegar baðherbergi með snyrtilegri innréttingu og stóru baðkari og hins vegar herbergi sem í dag er nýtt sem tómstundaherbergi. Þar inn af er geymsla. Þessi rými eru án glugga.
Sameiginlegt bílastæði er staðsett beint fyrir framan inngang.
Skipt var um bárujárn, dúk og þakrennur ca. 2021.

24/02/2026
Fasteignasalarnir Vernharð Þorleifsson og Magga Gísladóttir kynna snyrtilega 55,4m2  þriggja herbergja íbúð á annari hæð...
13/02/2026

Fasteignasalarnir Vernharð Þorleifsson og Magga Gísladóttir kynna snyrtilega 55,4m2 þriggja herbergja íbúð á annari hæð í Jöfursbás 11E, íbúð 203 í húsi sem kallast Sif þar sem Þorpið vistfélag reisti Svansvottaðar íbúðir fyrir unga fólkið í Gufunesi. Áhersla er lögð á hagkvæmni í byggingarkostnaði, grænar lausnir og vistvænt umhverfi.
Forgang að kaupum á íbúðum hafa einstaklingar á aldrinum 18-40 ára. Sú kvöð fylgir eigninni að hámarks söluverð fylgir vísitölu í hverfinu og því er ekki hægt að yfirbjóða ásett verð.
Gæludýr eru velkomin í Jöfursbás.

Frekari upplýsingar veita Vernharð Þorleifsson löggiltur fasteignasali í síma 699-7372 / [email protected] og Magga Gísladóttir löggiltur fasteignasali í síma 698-7494 / [email protected]

Fasteignasalarnir Vernharð Þorleifsson og Magga Gísladóttir kynna fallegt 111,5 fm endaraðhús á einni hæð með innbyggðum...
13/02/2026

Fasteignasalarnir Vernharð Þorleifsson og Magga Gísladóttir kynna fallegt 111,5 fm endaraðhús á einni hæð með innbyggðum bílskúr við Jökulgrunn 8 í Reykjavík.
Eignin er í raðhúsaþyrpingu fyrir 60 ára og eldri. Virkilega gott skipulag er á eigninni sem er opin og björt með mikilli lofthæð í alrými. Sérafnotareitur út frá stofu er einstaklega skjólsæll.
Góðu og reglulegu viðhaldi hefur verið sinnt af félagi húseigenda við Jökulgrunn á ytra byrði húsa og lóð og er öll aðkoma hin snyrtilegasta.
Eignin getur verið laus við kaupsamning.

Frekari upplýsingar veita Vernharð Þorleifsson löggiltur fasteignasali í síma 699-7372 / [email protected] og Magga Gísladóttir löggiltur fasteignasali í síma 698-7494 / [email protected]

Sóltún 13Vernharð Þorleifsson lgf. og Magga Gísladóttir lgf. kynna rúmgóða og fallega 134,2 fm - 4ra herbergja endaíbúð ...
11/11/2025

Sóltún 13

Vernharð Þorleifsson lgf. og Magga Gísladóttir lgf. kynna rúmgóða og fallega 134,2 fm - 4ra herbergja endaíbúð á annari hæð á þessum vinsæla stað í eftirsóttu lyftuhúsi við Sóltún 13 í Reykjavík.
Eignin skiptist í stórt alrými með stofu, borðstofu og sjónvarpsrými, sólríkar suður svalir, eldhús, þrjú svefnherbergi og tvö baðherbergi, sér þvottahús og geymsla innan íbúðar. Tvö stæði í lokaðri bílageymslu fylgja með eigninni, merkt 25 og 27 (stæðið er ekki talið með í fermetratölu). Eignin er laus við kaupsamning.

105 Reykjavík • 5 herbergi • 134.2 m² • 117.000.000 kr.

Fossvogsbrún 8 - 159,4 m² Ásett verð 139,9 mill (877.666 kr/m2)3 svefnherbergi - 955 fm lóðStaðsett á frábærum stað mitt...
27/10/2025

Fossvogsbrún 8 - 159,4 m²
Ásett verð 139,9 mill (877.666 kr/m2)
3 svefnherbergi - 955 fm lóð
Staðsett á frábærum stað mitt á milli útivistar perlanna Fossvogsdals og Elliðarárdals.

200 Kópavogur • 5 herbergi • 159.4 m² • 139.900.000 kr.

Bauganes 3 - 125.000.000 kr.Skráð 138,6 fm en er sennilega ca. 155 fm.Fasteignamat 2025 er 105.800.000 en hækkar í 113.7...
30/09/2025

Bauganes 3 - 125.000.000 kr.
Skráð 138,6 fm en er sennilega ca. 155 fm.
Fasteignamat 2025 er 105.800.000 en hækkar í 113.700.000 2026

102 Reykjavík • 5 herbergi • 138.6 m² • 118.900.000 kr.

Address

Skeifan 17
Reykjavík
108

Telephone

+3546997372

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Vernharð Þorleifsson - Löggiltur fasteignasali posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Share

Category