Verksýn

Verksýn Sérhæfð ráðgjöf vegna viðhalds og endurbóta, framkvæmdaeftirlit og hönnun. Viðskiptavinir fyrirtækisins eru t.d.

Verksýn ehf er tækniþjónusta og ráðgjafarfyrirtæki með sérhæfingu á sviði viðhalds og endurbóta á mannvirkjum. Eftirlit með nýbyggingum er einnig stækkandi verkefnasvið hjá fyrirtækinu. Þá starfar fyrirtækið við almenna framkvæmdaráðgjöf, við álitsgerðir og verkefnastjórnun, ásamt hönnun mannvirkja. einstaklingar, fyrirtæki, fasteignafélög og húsfélög. Markmið fyrirtækisins er að mæta þörfum viðsk

iptavina á besta mögulega hátt með nýtingu þeirrar þekkingar og þess mannauðs sem fyrirtækið býr yfir. Hjá Verksýn starfa sérfræðingar með áratuga reynslu af störfum við mannvirkjagerð ásamt viðhaldi og endurbótum fasteigna.

17/03/2026
Verksýn styður Mottumars og allir starfsmenn fengu sína sokka í morgun. Við tengjum sterkt við slagorð þeirra í ár Engin...
06/03/2026

Verksýn styður Mottumars og allir starfsmenn fengu sína sokka í morgun. Við tengjum sterkt við slagorð þeirra í ár Enginn einn, því hér stöndum við öll saman.

Grunar þig að það sé kominn tími á viðhald fasteignarinnar? Með ástandsgreiningu er eðli og umfang nauðsynlegs viðhalds ...
05/03/2026

Grunar þig að það sé kominn tími á viðhald fasteignarinnar?
Með ástandsgreiningu er eðli og umfang nauðsynlegs viðhalds og endurbóta greint og sett fram með skýrum hætti.
Við leggjum áherslu á vandaðan undirbúning og ítarlegar skoðanir úr vinnulyftu. Með góðri ástandsskýrslu er grunnurinn lagður að ákvarðanatöku um framkvæmdir.
Eigendur fá í hendur skýrslu þar sem ástandi fasteignarinnar er lýst og tilgreindur er áætlaður kostnaður fyrir þær tillögur sem settar eru fram.

Grunar þig að það sé kominn tími á viðhald fasteignarinnar? Með ástandsgreiningu er eðli og umfang nauðsynlegs viðhalds ...
12/02/2026

Grunar þig að það sé kominn tími á viðhald fasteignarinnar?

Með ástandsgreiningu er eðli og umfang nauðsynlegs viðhalds og endurbóta greint og sett fram með skýrum hætti.

Við leggjum áherslu á vandaðan undirbúning og ítarlegar skoðanir úr vinnulyftu. Með góðri ástandsskýrslu er grunnurinn lagður að ákvarðanatöku um framkvæmdir.

Eigendur fá í hendur skýrslu þar sem ástandi fasteignarinnar er lýst og tilgreindur er áætlaður kostnaður fyrir þær tillögur sem settar eru fram.

Þegar undirbúningur framkvæmda hefst er nauðsynlegt að gera ástandsgreiningu á fasteigninni – að greina eðli og umfang nauðsynlegs viðhalds og endurbóta og í framhaldinu að áætla kostnað vegna þess.Við leggjum áherslu á vandaðan undirbúning og ítarlegar skoðanir. Skemmdir ...

Framkvæmd mánaðarins hjá okkur í febrúar er Stigahlíð 22-28, Reykjavík.Síðla hausts var lokið við seinni áfanga í umfang...
06/02/2026

Framkvæmd mánaðarins hjá okkur í febrúar er Stigahlíð 22-28, Reykjavík.

Síðla hausts var lokið við seinni áfanga í umfangsmiklum endurbótum á húsinu. Lokið var við endurnýjun á eldri gluggum hússins, gerðar múr- og steypuviðgerðir og síðan var húsið endursteinað. Í fyrri áfanga utanhússframkvæmda hafði stór hluti glugga verið endurnýjaður, ásamt þakjárni og fylgihlutum þess.

Útveggir Stigahlíðar 22-28 eru steinsteyptir og að mestu steinaðir. Einnig eru á húsinu sléttmúraðir veggfletir og sléttmúruð vatnsbretti glugga, málað í áberandi rauðum og gulum litum. Litavalið á húsunum ljáir þeim sérstakt yfirbragð og setur sterkan svip á þau.

Byggingarfélag verkamanna stóð að byggingu húsanna við Stigahlíð 6-32 og fékk lóðunum úthlutað við lok uppbyggingar verkamannabústaða við Rauðarárholt, sem hófst árið 1939. Húsaröðin við Stigahlíð 2-36 er kennileiti í umhverfinu og afmarkar íbúðabyggðina frá Miklubraut. Stigahlíð 22-28 var skv. fasteignaskrá fullbyggt árið 1961. Fjölbýlishúsin við Stigahlíðina mynda eins konar horn á mörkum hverfisins og jafnframt skjól fyrir norðanvindi. Enda eru suðurgarðar þessara húsa sólríkir og skjólgóðir.

Tómas Vigfússon byggingameistari hannaði Stigahlíð 22-28, en hann var formaður Byggingarfélags verkamanna í Reykjavík þegar húsaröðin var byggð. Hann var fæddur 24. júní 1906, lauk prófi í húsasmíði 1928 og hlaut réttindi sem húsasmíðameistari árið 1935. Hann stundaði framhaldsnám í byggingafræði, bæði í Reykjavík og Kaupmannahöfn. Hann var lengi formaður Landssambands iðnaðarmanna og Byggingarfélags verka-manna. Þess má geta að hinn kunni Kjartan Sveinsson bygginga-tæknifræðingur, sem var afar umsvifamikill hönnuður íbúðarhúsnæðis á Íslandi, lærði húsasmíði hjá Tómasi á árunum 1946-1950. Tómas Vigfússon lést um aldur fram árið 1973.

Verktaki framkvæmdanna var K16 ehf. en Verksýn sá um undirbúning framkvæmdanna og hafði með þeim umsjón og eftirlit.

Heimildir:
Dagblaðið Vísir. „Byggingarfélag verkamanna hefur reist 422 íbúðir í Reykjavík“. laugardagur 4. Júlí 1964. Timarit.is
borgarsogusafn.is/sites/borgarsogusafn.is/files/atoms/files/skyrsla_163.pdf
Tímarit iðnaðarmanna, 39. árgangur 1966, 1.-2. Tölublað - Timarit.is
Tímarit iðnaðarmanna, 46. árgangur 1973, 1.-4. Tölublað - Timarit.is
www.mbl.is/greinasafn/grein/514543, Katrín Nørgaard Vigfússon
mbl.is/frettir/innlent/2014/09/30/andlat_kjartan_sveinsson/
astromix.blog.is

Gulur 🌞 Rauður ♦️ Grænn 🍀og Blár 💧Framkvæmdir með litum gera skammdegið skemmtilegt! Húsin í bænum eru mörg klædd í liti...
10/01/2026

Gulur 🌞 Rauður ♦️ Grænn 🍀og Blár 💧

Framkvæmdir með litum gera skammdegið skemmtilegt! Húsin í bænum eru mörg klædd í liti, sem eru prýði fyrir húsin, íbúa og umhverfi. Njótum litanna saman - hér eru nokkrar myndir úr nýlegum verkefnum þar sem fallegir litir hafa orðið fyrir valinu.

Viðhaldsframkvæmdir við Háaleitisbraut 38-42 eru framkvæmdir mánaðarins hjá okkur í október. Þetta reisulega hús er stei...
30/10/2025

Viðhaldsframkvæmdir við Háaleitisbraut 38-42 eru framkvæmdir mánaðarins hjá okkur í október.

Þetta reisulega hús er steinsteypt, múrhúðað og málað. Upprunalegir gluggar eru ísteyptir trégluggar. Notaðir voru hefðbundnir trégluggar við endurnýjun, en í framkvæmdinni voru gluggar endurnýjaðir á austur- og vesturhlið hússins og víðar.

Í húsinu eru skráðar 29 íbúðir í 3 stigagöngum. Húsið stóð fullbyggt árið 1964 skv. fasteignaskrá og það því um 61 árs gamalt í ár. Húsið hannaði Bárður Daníelsson arkitekt.

Bárður fæddist þann 26. október 1918 á Kirkjubóli í Önundarfirði. Hann lauk prófi sem verkfræðingur frá Konunglega tækniháskólanum í Stokkhólmi árið 1948 og árið 1960 lauk hann prófi í arkitektúr frá sama skóla. Bárður átti þátt í vali og samningagerð um viðlagasjóðshúsin svokölluðu, einföld hús sem voru flutt til Íslands frá norðurlöndum til að mæta húsnæðisskorti eftir eldgosið í Heimaey.

Meðal bygginga sem Bárður hannaði má nefna Austurstræti 17, Skipholt 49-55 auk nokkurra húsa í Vogahverfi í Reykjavík og fjölda annarra bygginga. Auk þessara starfa sat Bárður í borgarstjórn og borgarráði Reykjavíkurborgar um skeið auk fjölbreyttra trúnaðarstarfa o.fl. Bárður lést árið 2012, á 94. aldursári.

Í nýlega loknum framkvæmdum var ráðist í umtalsverðar endurbætur á ytra byrði Háaleitisbrautar 38-42. Helst má þar nefna múr- og steypuviðgerðir, endurnýjun á gluggum og hurðum hússins og málun á ytra byrði.

Verktakar framkvæmdanna voru K16 ehf en við hjá Verksýn unnum að undirbúningi þeirra og höfðum umsjón og eftirlit með framkvæmdunum fyrir hönd húsfélagsins.

Heimildir:
Morgunblaðið, 18. desember 1977 bls. 57 – ”Heiðursmenn í kerfinu” – grein eftir Hafstein Stefánsson.

Sérhæfð ráðgjöf vegna viðhalds og endurbóta á mannvirkjum, innandyra sem utan.

Það verður vaskur hópur Verksýnarfólks sem ætlar að taka þátt í Reykjavíkurmaraþoninu 2025. Hver og einn valdi sér málef...
22/08/2025

Það verður vaskur hópur Verksýnarfólks sem ætlar að taka þátt í Reykjavíkurmaraþoninu 2025. Hver og einn valdi sér málefni til að styrkja og vegalengd. Við erum svo sannarlega stolt af þessum glæsilega hópi og vonum að sem flestir styrkji þau eða aðra góða hlaupara á morgun.

”Ekki blokk, ekki einbýlishús og ekki raðhús”...Með þessari lýsingu hefst umfjöllun um framkvæmdir mánaðarins hjá okkur ...
16/04/2025

”Ekki blokk, ekki einbýlishús og ekki raðhús”...

Með þessari lýsingu hefst umfjöllun um framkvæmdir mánaðarins hjá okkur í apríl, sem eru endurbætur ytra byrðis fjölbýlishússins við Hæðargarð 1-27 í Reykjavík. Í því eru 23 íbúðir, en gerð hússins er á margan hátt óhefðbundin. Lokið var við byggingu þess samkvæmt fasteignaskrá árið 1977 og er það því um 48 ára gamalt um þessar mundir.

Húsið hannaði Vífill Magnússon arkitekt, en viðhaldsframkvæmdirnar voru unnar í góðu samstarfi við Vífil sjálfan og íbúa hússins. Húsið á sér um margt áhugaverða sögu og við gripum því tækifærið nú til að ræða tilurð hússins við Vífil Magnússon, auk þess að kynna okkur betur hans fyrri störf á löngum starfsferli. Var það samtal afar ánægjulegt og við færum Vífli okkar bestu þakkir fyrir hans framlag að verkefninu.

Vífill lærði arkitektúr í Mexíkó, þangað sem hann flutti á sjöunda áratug síðustu aldar. Hann var um 12 ára skeið í Mexíkó, en hann hefur rekið eigin teiknistofu á Íslandi frá því að hann fluttist aftur til Íslands árið 1973.

Verktakafyrirtækið Ármannsfell var byggingaraðili hússins, en við úthlutun lóðar hússins varð umtalsverður styr í borgarstjórn og fjölmiðlum á sínum tíma.

Vífill rifjaði upp forsögu hússins og kveður forsvarsmann byggingaraðilans hafa nálgast verkefnið við sig þannig að þeir vildu ”Ekki blokk, ekki einbýlishús og ekki raðhús”, en úr varð byggingarlag hússins sem þykir sérkennilegt. ”Ég hef heyrt húsið kallað Kardimommubæinn”, segir Vífill og brosir við. Húsið er eins konar klasabygging með íbúðareiningum sem eru byggðar utan um inngarð hússins, sem er afar fallegur og hannaður af Stanislas Bohic, landslagsarkitekt. Inngarðar við hús eru algengir í Mexíkó og Vífill segir það hafa átt þátt í mótun hússins. Vífill rifjar einnig upp prýðisgott samstarf við Gunnar Rósinkrans og Steindór Haarde sem sáu um verkfræðihönnun hússins. Haukur Dór Sturluson listamaður gerði húsnúmer hússins sem eru afar vönduð.

Útihurðir og svalahandrið eru nokkuð áberandi fyrir skrautleg form. ”Þetta eru fjögur grunnform sem er raðað saman þannig að hver og ein útihurð hefur sitt útlit. Ég hef litið á útihurðirnar sem ákveðið vörumerki í minni hönnun”, útskýrir hann. Vífill segir að hugmyndin hafi verið að hvert og eitt svalahandrið hússins hafi átt að fylgja viðkomandi útihurð í myndun mynsturs, en að horfið hafi verið frá þeirri hugmynd á byggingartíma hússins. Í gegnum tíðina hafi litavalið á þessum formum einnig verið nokkuð fjölbreytt.

Fleiri atriði tóku breytingum frá fyrstu hugmyndum, en t.d. var upprunalega hugmyndin að hærri hluti hússins yrði hafður fjær Grensásvegi. Vífill sýnir teikningu þar sem þetta sést vel og útskýrir ýmis atriði sem lágu að baki þeirri hugmynd. Það er greinilegt að þrátt fyrir að hartnær 50 ár séu liðin frá byggingu hússins að þá er hönnunarferli þess Vífli í fersku minni.

Vífill tók þátt í sýningu arkitekta í Kairó í Egyptalandi árið 1985 þar sem húsið við Hæðargarð 1-27 var hans framlag, valið af Arkitektafélagi Íslands ásamt öðru verkefni.

Í framkvæmdunum sem nú er að ljúka var ráðist í umfangsmestu endurbætur á ytra byrði hússins frá byggingu. Helst má þar nefna múr- og steypuviðgerðir, þar sem málning var hreinsuð af útveggjum og þeir ”filtaðir” fyrir málun, endurnýjun á hluta glugga hússins, endurnýjun á svalahandriðum og úithurðum ásamt málun hússins. Haldið var í öll sérkenni hússins í framkvæmdunum, enda eru það smáatriðin sem gera húsið við Hæðargarð 1-27 sérstakt.
Óhætt er að segja að framkvæmdin hafi tekið prýðisvel og allt samstarf verið til mikillar fyrirmyndar.

Verktaki framkvæmdanna við Hæðargarð 1-27 var Múrkompaníið ehf, en við hjá Verksýn unnum að undirbúningi þeirra og höfðum umsjón og eftirlit með framkvæmdunum fyrir hönd húsfélagsins.

Address

Síðumúli 1
Reykjavík
108

Opening Hours

Monday 08:30 - 16:00
Tuesday 08:30 - 16:00
Wednesday 08:30 - 16:00
Thursday 08:30 - 16:00
Friday 08:30 - 15:00

Telephone

+3545176300

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Verksýn posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to Verksýn:

Share