Húsið verður til leigu hluta ársins. Þeir sem hafa áhuga endilega sendið á okkur fyrirspurn á [email protected], eða í síma 699 8559 Hús til leigu í Ventura, Orlando, Florida
Við erum með glæsilegt einbýlishús til leigu á Ventura svæðinu í Orlando. Ventura Country Club er vaktað hverfi og inni á svæðinu er glæsilegur og vel hirtur 18 holu golfvöllur þar sem margur íslendingurinn hefur átt góðar
stundir. Ventura er einstaklega vel staðsett og er aðeins í 10 mínútna fjarlægð frá Orlando International Airport, MCO. Svæðið er mjög miðsvæðis og aðeins tekur um 30 mínútur að aka til helstu skemmtigarða, s.s. Nánari upplýsingar um Ventura svæðið:
http://www.venturaccorlando.com/
Í húsinu eru þrjú svefnherbergi með svefnplássi fyrir 6 manns, tvö baðherbergi ásamt eldhúsi, stofu og bílskúr og er allt nýtekið í gegn. Fallegt hús á einstaklega skemmtilegum stað þar sem útsýnið er á flötina á 6 braut.
Þegar komið er inn um aðalinngang blasir við opið rými með sjónvarpsaðstöðu þar sem 6 geta setið saman. Innaf því rými tekur við falleg og björt borðstofa með sæti fyrir 8 manns.
Á vinstri hönd þegar gengið er inn eru tvö svefnherbergi sem deila saman baðherbergi. Hjónaherbergi er síðan við hliðina á alrýminu og inn af því er baðherbergi.
Þráðlaust internet er í húsinu sem og internet sími þannig að hægt er að hringja til Íslands og móttaka símtöl án endurgjalds. Einnig er sími til að hringja landlínusímtöl innan Bandaríkjanna.
Í húsinu er nýtt og vandað gasgrill og einnig eru rúmföt, handklæði, hárblásari og annað sem þarf er í húsinu, allt til að gera dvölina sem ánægjulegasta. Vikuleiga er $ 950
Endilega hafið samband í síma 699 8559 eða á netfangið [email protected]